Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Þú finnur rétta
bílinn
hjá okkur
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, tók mikla áhættu með þeirri
ákvörðun sinni að draga landið út úr
samningnum við klerkastjórnina í
Íran um kjarnorkuáætlun hennar, að
mati margra fréttaskýrenda. Þeir
telja ákvörðunina m.a. auka hættuna
á átökum milli herja Írans annars
vegar og Bandaríkjanna, Ísraels eða
Sádi-Arabíu hins vegar.
Ákvörðunin gæti einnig orðið til
þess að klerkastjórnin í Íran drægi
landið út úr kjarnorkusamningnum
og hæfi auðgun úrans sem hægt væri
að nota í kjarnavopn. Þar að auki
dregur ákvörðun Trumps úr trú-
verðugleika Bandaríkjanna sem við-
semjanda og hún gæti m.a. torveldað
forsetanum að ná samkomulagi við
einræðisstjórnina í Norður-Kóreu
um kjarnorkuafvopnun. Hvernig
geta viðsemjendurnir treyst því að
bandarísk stjórnvöld standi við
gerða samninga?
Með samningnum við Bandaríkin,
Bretland, Frakkland, Kína, Rúss-
land og Þýskaland frá árinu 2015
skuldbatt klerkastjórnin í Íran sig til
að takmarka verulega kjarnorku-
áform sín gegn því að viðskipta-
þvingunum gegn landinu yrði aflétt.
Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi,
Kína, Rússlandi og Þýskalandi segj-
ast ætla að standa við samninginn og
telja að Íranar hafi staðið að fullu við
skilmála hans. Alþjóðakjarnorku-
málastofnunin (IAEA) hefur einnig
staðfest það. Jafnvel hátt settir emb-
ættismenn í Bandaríkjunum hafa
tekið undir þetta, þeirra á meðal
Mike Pompeo utanríkisráðherra og
Dan Coats, yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar.
Gætu hafið auðgun úrans
Afleiðingar ákvörðunar Trumps
ráðast að miklu leyti af því hvernig
klerkastjórnin í Íran bregst við
henni á næstu mánuðum. Fréttaveit-
an AFP hefur eftir stjórnarerind-
reka vestræns ríkis í Teheran að
írönsku ráðamennirnir séu í erfiðri
stöðu því að þeir telji sig þurfa að
svara ákvörðuninni af hörku, án þess
þó að hætta á að missa stuðning Evr-
ópuríkjanna í deilunni.
Nokkrir fréttaskýrendur segja að
Íranar geti svarað ákvörðun Trumps
með því að skaða hagsmuni Banda-
ríkjanna í grannríkjum Írans, m.a.
Sýrlandi og Írak, þar sem áhrif Ír-
ana hafa aukist á síðustu misserum.
Hassan Rouhani, forseti Írans,
sagði eftir að Trump tilkynnti
ákvörðun sína að Íranar hygðust
hefja viðræður við ríkin sem styðja
enn samninginn en varaði við því að
tíminn til að semja um málið væri
naumur og Íranar kynnu að hefja
kjarnorkuáætlun sína að nýju með
því að auðga úran „án nokkurra tak-
markana“. Yfirmaður Kjarnorku-
málastofnunar Írans sagði að landið
gæti hafið auðgun úrans innan fimm
daga.
Styrkti stöðu harðlínumanna
Sérfræðingar í öryggismálum eru
ekki á einu máli um hversu langan
tíma Íranar þyrftu til að smíða
kjarnavopn. Kjarnorkusamningur-
inn frá 2015 átti að tryggja að Íranar
myndu þurfa að minnsta kosta eitt ár
til að framleiða nógu mikið af auðg-
uðu úrani til að geta búið til kjarn-
orkusprengju. Flestir sérfræðing-
anna telja að samningurinn hafi
tryggt þetta þar sem hann skyldi Ír-
ana til að minnka birgðir sínar af
auðguðu úrani um 98% og fækka um
tvo þriðju skilvindum sem notaðar
eru til að auðga úran.
Nokkrir sérfræðinganna telja að
Íranar myndu þurfa nokkur ár til að
smíða fyrsta kjarnavopnið, en aðrir
segja að þeir gætu gert það á um það
bil einu og hálfu ári. Óvissan stafar
m.a. af því að ekki er vitað hversu
mikla þekkingu Íranar hafa á smíði
kjarnavopna. Ennfremur er óljóst
hvort Íranar geti framleitt eldflaug-
ar sem gætu borið kjarnaodda.
Bandarískir embættismenn,
þeirra á meðal Mike Pompeo, hafa
látið í ljós efasemdir um að Íranar
hefjist strax handa við framleiðslu
kjarnavopna. „Íranar voru ekki að
flýta sér að framleiða vopn fyrir
samninginn,“ sagði Pompeo á fundi
með bandarískum þingmönnum í
síðasta mánuði. „Ég veit ekki um
neitt sem bendir til þess að þeir
myndu flýta sér að framleiða kjarna-
vopn núna ef samningurinn heyrði
sögunni til.“
Margir fréttaskýrendur telja að
Íranar hafi hag af því að hefja ekki
auðgun úrans og vísa ekki erlendum
vopnaeftirlitsmönnum úr landi þótt
Trump hafi dregið Bandaríkin út úr
samningnum. Þeir segja að Íranar
vonist til þess að halda viðskiptum
við Evrópuríki og vilji ekki stefna
þeim í hættu með tilraunum til að
verða sér úti um kjarnavopn.
Ákvörðun Trumps gæti þó styrkt
stöðu harðlínumanna og þjóðernis-
sinna í klerkastjórninni sem voru
andvígir kjarnorkusamningnum og
tilraunum Rouhanis forseta til að
bæta tengsl Írans við vestræn ríki.
Sumir þeirra vilja ekki aðeins að Ír-
anar dragi sig út úr kjarnorkusamn-
ingnum heldur einnig alþjóðasamn-
ingnum um bann við útbreiðslu
kjarnavopna, NPT.
Nýtt vígbúnaðarkapphlaup?
Gerald F. Seib, fréttaskýrandi
The Wall Street Journal, telur að
Trump hafi tekið meiri áhættu en
nokkru sinni fyrr með ákvörðun
sinni í Íransmálinu. Til að mynda
geti hún leitt til aukinnar spennu og
jafnvel átaka milli Írans annars veg-
ar og Bandaríkjanna, Ísraels eða
Sádi-Arabíu hins vegar.
„Í versta falli gætu Íranar hafið
ákveðna kjarnorkustarfsemi og
annaðhvort Bandaríkjamenn eða
Ísraelar teldu hana óviðunandi,
beittu hervaldi og Íranar svöruðu því
með því að beita öllum tækjum sín-
um í þessum heimshluta og víðar í
heiminum,“ hefur The Wall Street
Journal eftir Richard Haass, forseta
hugveitunnar Council on Foreign
Relations. Hann segir að á meðal úr-
ræða Írana séu hryðjuverkastarf-
semi og tölvuhernaður. Haass telur
einnig að ef Íranar byrja aftur að
auðga úran með það fyrir augum að
framleiða kjarnavopn geti það orðið
til þess að Sádi-Arabía og hugsan-
lega fleiri ríki í Mið-Austurlöndum
dragi sig út úr samningnum um bann
við útbreiðslu kjarnavopna til að
geta orðið sér úti um slík gereyð-
ingarvopn.
Trump tók mikla áhættu
Sagður hafa aukið hættu á kjarn-
orkuvígbúnaði og átökum Grefur
undan trausti á Bandaríkjunum
Heimildir: IAEA/NTI/ISIS/USNRC/World-nuclear.org
Fækka á skilvindum
úr um 19.000 í
5.060 á 10 árum
Minnka á birgðir Írana
af lítt auðguðu úrani
úr 10.000 kg í 300 kg.
Þær mega ekki vera
meiri í 15 ár
Markmiðið með samningnum er að koma í veg fyrir að Íranar geti framleitt kjarnavopn Samningurinn kveður
á um aukið eftirlit, m.a.
mögulega með
herstöðvum
Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin (IAEA) getur sett
upp eftirlitsbúnað í námum
og kjarnorkustöðvum
Á að vera eina stöðin
þar sem hægt er
að auðga úran
Kjarnorkusamningurinn við Íran frá árinu 2015
Gashin
FORDO
Þar mega vera 1.044
skilvindur sem ekki má
nota til að auðga úran
Anarak
Karaj
Bushehr
Isfahan
Breyta á kjarnakljúfi til
að koma í veg fyrir
framleiðslu plútons
sem hægt væri að
nota í kjarnavopn
ARAK
Parchin-
TEHERAN
KASPÍHAF
NATANZ
Ardakan
Saghand
Kjarnorku-
úrgangur
geymdur
Verksmiðja þar
sem úrangrýti
er unnið
Þar er búnaður
til að auðga
úran
herstöðin
Helsta kjarnorku-
rannsóknastöðin
Rannsókna-
kjarnakljúfur,
úranvinnsla
Kjarnorku-
ver
SÁDI-
ARABÍA
ÍRAK
AFGANISTAN
TÚRKMENISTAN
PAKISTAN
Hlutfall kjarnkleyfu
samsætunnar 235U er aukið
í skilvindum með því að
skilja hana frá
samsætunni 238U
Auðgun úrans
Samningsákvæði
Kjarnorkustöð Kjarnakljúfur ÚrannámaHelstu stöðvar
Talið er
að Íranar
eigi um
4.400 tonn
af úrani
Í kjarnavopn: Hlutfallið
þarf að vera a.m.k. 80%
til að hægt sé að nota
úranið í vopn
Til orkuframleiðslu:
hlutfall 235U er aukið í
4-5% til að framleiða
eldsneyti í kjarnaofna
Hvers vegna ætti Kim
að trúa Trump?
» John Brennan, fyrrverandi
forstjóri bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA, sagði í gær að
„brjálæði Trumps“ hefði „graf-
ið undan trausti heimsbyggð-
arinnar á skuldbindingum
Bandaríkjanna, reitt nánustu
bandamenn okkar til reiði, eflt
íranska harðlínumenn og fært
Norður-Kóreumönnum nýja
ástæðu til að halda kjarna-
vopnum sínum“.
» Antony Blinken, fyrrv. að-
stoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna tók í sama
streng. „Hvers vegna ætti Kim
Jong-un [leiðtogi Norður-
Kóreu] að trúa loforðum
Trumps forseta úr því að hann
riftir samningi sem viðsemj-
andinn hefur farið eftir?“
spurði hann á Twitter.
Námsmenn kveikja í bandarískum fánum fyrir utan byggingu, sem hýsti
áður sendiráð Bandaríkjanna í Teheran, til að mótmæla þeirri ákvörðun
Donalds Trumps að draga Bandaríkin út úr kjarnorkusamningnum. Harð-
línumenn á þingi Írans kveiktu einnig í bandarískum fánum í þinghúsinu í
Teheran og kröfðust þess að klerkastjórnin svaraði ákvörðun Trumps
með því að rifta samningnum. Ali Khamenei erkiklerkur, æðsti leiðtogi
landsins, kvaðst vera efins um að viðræður klerkastjórnarinnar við Evr-
ópuríki um að viðhalda samningnum bæru árangur.
Vilja að Íran rifti samningnum
HARÐLÍNUMENN Í ÍRAN MÓTMÆLA ÁKVÖRÐUN TRUMPS