Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 51
Hitið ofninn í 180 gráður. Bræðið smjör-
ið. Blandið þurrefnunum saman fyrst og
blandið svo smjörinu saman við. Ef þið vilj-
ið hafa deigið ögn blautara bætið þið við ½
dl af vatni. Þjappið ¾ dl af deiginu ofan í
24 cm eldfast mót og smyrjið sultunni ofan
á. Dreifið afganginum af deiginu yfir. Bak-
ið í um 25-30 mín.
Hjónabandssæla
180 g smjör
150 g hafrar
150 g gróft spelt
70 g kókospálmasykur eða lífrænn hrásykur
50 g kókosmjöl
2 dl sulta
Ljósmyndir/Snarlið
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Þetta var hræðilegt,“ segir Ebba hlæjandi
um undanfarnar vikur og mánuði. „Ég er búin
að dansa frá mér allt vit,“ segir hún en tvísýnt
var hvort hún gæti tekið þátt í úrslitaþætt-
inum vegna meiðsla.
„Ég hafði í raun ekki hugmynd um hvað ég
var að fara út í. Maður fékk svo lítinn tíma til
að hugsa sig um að þetta bara gerðist. Að
dansa í beinni útsendingu er ekkert grín.
Fyrsti þátturinn var erfiðastur en svo auðvitað
vandist þetta.“ En ertu ekki glöð núna að hafa
gert þetta? „Jú, mikil ósköp. Og stolt af mér.
Ég hef aldrei áður dansað þannig að þetta er
pínu galið ef maður hugsar út í það.“ Sem er
rétt. Það er ekkert grín að æfa í margar
klukkustundir á dag sleitulaust. Fara frá
heimilinu og vera ekki lengur miðja alheims-
ins? „Já, ætli það sé ekki rétt hjá þér. Börnin
eru að verða svo stór og þá er maður ekki eins
mikilvægur þannig að lífið bara gekk sinn
vanagang án mín. Sem var líka mjög hollt fyrir
mig að sjá. Þau geta svo miklu meira en maður
áttar sig á og það er einmitt þannig á nám-
skeiðunum líka,“ segir hún en undanfarna
mánuði hefur hún stýrt verkefni á vegum
Krónunnar sem miðar að því að fá ungt fólk
inn í eldhúsið og kenna því að elda einfaldan
mat.
„Ég er eiginlega alltaf frekar hissa hvað
þetta gengur vel. Krakkarnir eru svo miklu
flinkari en ég bjóst við. Þau eru líka svo úr-
ræðagóð og dugleg. Ég er öllu kærulausari en
þetta er ofboðslega skemmtilegt verkefni. Það
eru tveir aldurshópar og þetta eru tólf krakkar
á hverju námskeiði sem tekur tvo tíma.“
„Ég skipti krökkunum upp í tveggja eða
þriggja manna hópa og við eldum saman tvo
rétti sem við borðum síðan saman. Verkefnið
hefur gengið ótrúlega vel og ég hefði eiginlega
bara ekki trúað þessu að óreyndu.“ En hvað
hefur komið henni mest á óvart? „Kannski
hvað þau eru klár – miklu klárari en maður
áttar sig endilega á. Eins og með manns eigin
börn. Og svo úrræðagóð. Eins verð ég að við-
urkenna að ég bjóst við að þau væru matvand-
ari en það er fremur lítið um það.“
„En ég held að þessi námskeið geri mikið
gott því það er nauðsynlegt að læra handtökin
og öðlast sjálfstæði í eldhúsinu. Bara það að
geta fengið sér vöfflur eftir skóla sem þú steik-
ir sjálfur eða þið vinirnir saman í stað þess að
fara beint út í búð. Þetta finnst mér ómet-
anlegt og hlýtur að vera gott fyrir krakkana.“
Verkefnið er ókeypis fyrir þátttakendur og
hefur notið mikilla vinsælda. „Við höldum svo
úti öflugri heimasíðu sem er sneisafull af girni-
legum en einföldum uppskriftum,“ segir Ebba
en það er kannski viðeigandi að hún sé að
kenna unglingum í dag að bjarga sér í eldhús-
inu – svona í ljósi þess að meiri líkur eru á því
en minni að foreldrar þeirra hafi átt eintak af
hinni víðfrægu bók Hvað á ég að gefa barninu
mínu að borða? Sem Ebba gaf út fyrir meira
en áratug og er í huga margra hið heilaga gral
matarbókmenntanna. Og grunnurinn skiptir
máli. Ebba hefur alltaf verið mikil talskona
þess að búa vel í haginn fyrir framtíðina. Að
taka ábyrgð á mataræði barnanna og leggja
upp með gott og heilbrigt fæði. Þetta er því
rökrétt þróun sem skilar sér í sjálfstæðari ein-
staklingum sem færir eru um að bjarga sér í
eldhúsi.
„Maður á það líka til að hlífa börnunum,“
bætir Ebba við hugsandi. „Ég geri það alla-
vega. Átta mig oft ekki á því hvað þau kunna
og geta. En þetta skiptir máli. Virkilega miklu
máli að við kennum börnunum þetta og und-
irbúum þau fyrir framtíðina,“ segir Ebba að
lokum og lýsir því yfir að hún þurfi að leggja
sig. Það er nefnilega hvíldartími hjá dans-
drottningunni en eftir hasarinn undanfarna
mánuði er komið að kærkominni hvíld áður en
næstu átök hefjast.
Það er afskaplega þreytt Ebba
sem heilsar blaðamanni. Ebba
eða Ebba Guðný Guðmunds-
dóttir er nýbúin að ljúka keppni í
hinni æsispennandi danskeppni
Allir geta dansað þar sem hún
dansaði sig alla leið inn í úr-
slitaþáttinn eftir að hafa unnið
hug og hjarta þjóðarinnar eins
og henni einni er lagið.
Alltaf frekar hissa hvað þetta gengur vel
Fjölhæf Ebba Það
leikur allt í hönd-
unum á Ebbu enda
afburðarflink á
flestum sviðum.
Vinsæl námskeið Námskeiðin hafa slegið í gegn
enda stórskemmtileg og kosta ekki krónu.
Vöfflur
400 g spelt (eða það mjöl sem er til heima)
½ tsk. sjávarsalt
2 tsk. kardimommuduft
2 egg
40 g kaldpressuð ólífuolía (má nota kókos-
olíu eða brætt smjör)
3-4 dl mjólk að eigin vali
3-4 dl vatn
51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018