Morgunblaðið - 10.05.2018, Page 52
Myllumerki Guðrún Harpa ásamt
Söru Safari, stofnanda samtakanna.
„Nepal er svo ótrúlegt land með
ótrúlegu fólki sem er alltaf bros-
andi og gjafmilt, þrátt fyrir að
eiga ekkert til að gefa,“ segir Guð-
rún Harpa Bjarnadóttir sem heim-
sótti landið í fyrsta skipti fyrir
tæpum tveimur árum síðan.
Eftir þessa heimsókn mætti
segja að tilviljun ein hafi ráðið því
að Guðrún Harpa setti á laggirnar
Íslandsdeild hjálparsamtakanna
Empower Nepali Girls sem hefur
það að markmiði að styrkja ungar
stúlkur til náms á fátækum svæð-
um í Nepal en þær eru í mikilli
hættu á að vera seldar í kynlífs-
þrælkun. Strákarnir eru aftur á
móti í ríkara mæli sendir til
menntunar og eiga samkvæmt
hefðinni að sjá fyrir fjölskyldunni.
„Ég hef nú ekkert verið með
marga fylgjendur á Instagram
nema hvað að það var einhver
ókunnug kona sem líkaði við mynd
mína,“ segir hún og vísar til
myndar sem hún hafði myllumerkt
everestbasecamp. „Ég varð voða
feimin og forvitin og fór að skoða
þessa konu sem heitir Sara Safari.
Á fyrstu myndinni sem ég sá af
henni þá var hún umkringd bros-
andi, litlum, nepölskum stelpum
sem var myllumerkt empower-
nepaligirls.“ Myndin snerti við
Guðrúnu Hörpu sem fór að kynna
sér Söru betur og komst að því að
hún hafði gefið út bók og gengið á
Everest til að vekja athygli á
stöðu stúlkna í landinu. „Ég sá
strax að þetta var eitthvað sem
mig langaði að hjálpa til við. Í
kjölfarið sendi ég henni póst og
bauð fram mína hjálp.“ Úr varð að
Sara kom til Íslands og Íslands-
deild samtakanna var formlega
sett á laggirnar.
Mitt eigið Everest
á Úlfarsfelli
Í dag, uppstigningardag, standa
samtökin fyrir útivistardegi fjöl-
skyldunnar á Úlfarsfelli og vekja
þannig athygli á sér ásamt því að
hvetja fólk til fjallgöngu. Allir
geta tekið þátt, farið eins margar
ferðir og þeir vilja, á þeim hraða
sem þeim hentar, því hver og einn
finnur sitt eigið Everest.
„Við ætlum að byrja að labba
klukkan níu í fyrramálið og vera
að til klukkan ellefu um kvöldið,“
segir Guðrún Harpa um viðburð-
inn.
„Um hádegið ætlar svo Vilborg
Arna, okkar eigin Everestfari, að
hafa Everest leiðsögn fyrir
krakkana upp á Úlfarsfell og fá
allir krakkar sem klára verkefnið
medalíu.“ Til þess að taka þátt í
viðburðinum er fólk hvatt til þess
að skrá sig á Facebook síðu sam-
takanna og að sjálfsögðu taka
alla stórfjölskylduna með.
„Fólk borgar bara eitt gjald
fyrir að taka þátt óháð því
hversu mörg börn eða afar og
ömmur eru í fjölskyldunni,“ segir
Guðrún Harpa að lokum og bætir
við að veðurspáin sé ljómandi
góð og hvetur sem flesta til að
koma og finna sitt eigið Everest
um leið og þeir styrkja stoðir
þessara mikilvægu samtaka.
rikka@k100.is
Myllumerkið opnaði nýjan heim
Guðrún Harpa Bjarna-
dóttir heillaðist af
gjafmildi og hlýju fólks-
ins í Nepal þegar hún
ferðaðist þangað fyrir
tæpum tveimur árum
og nú er hún farin að
láta til sín taka í hjálpar-
starfi til að valdefla
nepalskar stúlkur.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Alþjóðlegt hjálparstarf Guðrún Harpa og Guðrún Ragna með ungum skólastúlkum á vettvangi í Nepal.
Stofnandi Guðrún Harpa Bjarnadóttir ein af stofnendum Íslandsdeildar al-
þjóðlegu hjálparsamtakanna Empower Nepali Girls.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Glæsilegt úrval
af trúlofunar- og
giftingarhringa-
pörum
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Verð á pari: 236.141 kr.
„Kvart er svolítið svona eins og and-
fýla, þú tekur eftir þessu hjá öðrum,
en alls ekki ef þetta kemur ekki frá
sjálfum þér,“ segir Sólveig Guð-
mundsdóttir þegar hún lýsir því
hvernig kvart getur virkað í sam-
félaginu. Yfir 2.500 manns hafa þeg-
ar skráð sig í Facebook-hóp átaksins
þannig að áhuginn reynist töluverð-
ur á fyrstu dögum verkefnisins.
11 milljónir manna
tileinka sér kvartleysi
Hugmyndin er upphaflega komin
frá presti í Kansas, sem gaf söfnuði
sínum armband sem átti að nýta sem
verkfæri í þeirri áskorun að kvarta
ekki. Fljótlega fór fólk að biðja um
bönd fyrir maka og vini. Í dag eru yf-
ir 11 milljónir manna í yfir 100 lönd-
um búnir að taka þátt í verkefninu
sem ber heitið Complaint free world.
Þeim fannst hugmyndin svo sniðug
að þær ákváðu að taka málin í sínar
hendur og skora á íslenska þjóð.
Armböndin eru áminning
Þær stöllur fjárfestu sjálfar í arm-
böndum og bjóða nú fría heimsend-
ingu á armböndunum þannig að fólk
geti strax byrjað að vinna kvartleys-
ið markvisst. Maður kemur arm-
Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir er ein þeirra sem ætlar sér að hætta
að kvarta. Hér með armbandið sem hægt er að fá heimsent.
„Kvart er svolítið
svona eins og andfýla“