Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 55
55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Módel: Sandra Ósk Aradóttir
Ég á tvö börn á aldrinum 9 og 11
ára sem gleyma alltaf öllu alls stað-
ar. Þau gleyma íþróttafötum á æf-
ingum, nótum í tónlistarskólunum,
skilja hjól eftir hjá vinum sínum,
vettlingaskúffan er full af stökum
vettlingum, dóttirin skilar afar sjald-
an teygjum úr hárinu, þau koma
heim í einum sokk (hvernig er það
hægt?), sundfötin verða eftir í skól-
anum og bara … allt sem getur
gleymst eða týnst gleymist eða týn-
ist. Ég er búin að öskra, hóta, brjál-
ast, biðja þau fallega, fórna hönd-
um, umbuna og ég veit ekki hvað.
Ég tek fram að þau eru ágætlega
greind þannig að gleymskan og
virðingarleysið gagnvart hlutum
skrifast ekki á greindarskort. Hvað
á ég að gera?
Ég skil þig mjög vel að verða
pirruð og leið yfir þessari hegðun
annars yndislegu (geri ég ráð fyr-
ir) barnanna þinna. Virkar eins og
einbeittur brotavilji í bland við
fullkomið virðingarleysi fyrir eig-
um sínum og þér. Ég vildi að ég
gæti gefið þér skothelt ráð eins og
t.d. að gefa þeim sítrónuvatn á
fastandi maga og málið væri
dautt, en því miður. Það er samt
margt hægt að gera.
Fyrst langar mig að biðja þig að
setja þig í þeirra spor, hegðun er
oft arfgeng svo kannski kannast
þú sjálf við að gleyma hlutum og
týna hér og þar? Nema þetta komi
beint frá tengdó? Hvort sem er
finnst öllum erfitt og leiðinlegt að
týna og gleyma hlutunum sínum.
Flest börn hafa góða færni til
þess að taka eftir mörgu í einu í
umhverfi sínu, frábær hæfileiki en
getur jafnframt orsakað að hlutir
eða atriði sem skipta þau ekki
eins miklu máli, gleymast. Þetta
er ekki einbeittur brotavilji og
trúðu mér þetta veldur þeim líka
mikilli streitu. Þetta „PANG“ í
hjartanu þegar þau fatta að þau
hafi gleymt eða týnt einhverju
einu sinni enn.
Góðar venjur þarf að kenna
Uppeldi á m.a. að beinast að því
að kenna ungunum okkar góðar
venjur sem nýtast þeim líka á full-
orðinsárum. Ég hvet þig til þess
að segja þeim að þú sért að æfa
þau í að passa hlutina sína því
þegar þau verða eldri geta þau
líklega keypt sér eða fá gefins
eitthvað sem þau virkilega langar
í. Þá væri nú fúlt að vera ekki bú-
in að læra að passa upp á dótið
sitt. Börn þurfa að sjá tilgang með
því sem þau eiga að læra eða
gera, alveg eins og við fullorðna
fólkið.
Svo þarf að skipuleggja! Fáðu
þau í lið með þér, það er best að
taka eitt atriði fyrir í einu og þá í
3-5 vikur. Tökum sem dæmi að þið
mynduð byrja á hjólinu, þá gætuð
þið sett litaða teygju á úlnliðinn
áður en þau fara út í daginn eða
eitthvað annað sem er þeim sýni-
legt og hjálpar þeim að muna eftir
hjólinu.
Þetta með að öskra og garga
virkar ekki, en umbun gæti frekar
virkað. Kannski vilja þau umbun í
lok vikunnar ef þau hafa náð að
standa sig alla vikuna, það gæti
virkað hvetjandi. Refsingu á að
nota sparlega og varlega, en
stundum þarf að grípa til þess að
refsa, aldrei lengi og eins lítið og
hægt er, gætir t.d. tekið skjátím-
ann þann dag sem hjólið gleymist.
Það er líka mikilvægt að þau finni
að þú trúir því að þau geti passað
hjólið sitt. Hafðu þau líka með í að
ákveða umbun og refsingu.
Ef þú nærð að fylgja skipulag-
inu ykkar eftir næst árangur. Það
mikilvægasta er að við foreldrar
höfum úthald í að kenna þessa
nýju hegðun. Eftir 3-5 vikur er
komin ný braut í heilann þeirra,
„ég man alltaf eftir hjólinu mínu“.
Þá er hægt að taka næsta hlut
fyrir. Stundum skilar einföld og
markviss vinna með einn hlut
þeim árangri að þau muna frekar
eftir öllu hinu. Ég hvet þig til þess
að leggja áherslu á það sem skipt-
ir mestu máli, ekki gera mál úr
sokkum eða hárteygjum, það veld-
ur bara óþarfa streitu og álagi á
ykkur öll.
Mundu líka að hrósa og hvetja
þig sjálfa, þú getur kennt þessum
bráðgáfuðu snúðum að passa hlut-
ina sína.
Nú ef þetta virkar ekki gætir
þú prófað sítrónuvatnið.
Spurt og svarað
Börn sem gleyma alltaf öllu alls staðar
Spurningum sem
berast Fjölskyld-
unni á mbl.is svar-
ar SÓL sálfræði- og læknisþjónusta
en þar starfar hópur fagfólks sem
leggur metnað sinn í að veita börn-
um, ungmennum og fjölskyldum
þeirra góða þjónustu.
Nánari upplýsingar á www.sol.is
Gleymin börn
Sítrónuvatn á
fastandi maga er
ólíklegt til að draga
úr gleymsku barna.
Getty Images/iStockphoto