Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is DUX PASCAL SYSTEM Sérsniðna gormakaerfið Líkamar allra eru einstakir. Þess vegna býður Pascal de Luxe yfirdýnan upp á sérsniðin þægindasvæði sem gerir tveimur einstaklingum kleift að velja fullkomnu stillinguna fyrir axlirnar, neðra bakið og fótleggina þeirra. Pascal kerfið er í boði fyrir öll DUX rúm, annað hvort sem fellt inn í rúmið eða sem sérstök yfirdýna. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Besta leiðin til að takast á við daginn er að vinna hörðum höndum og búast við litlu frá öðrum. Hættu eltingaleik við aðra og hugsaðu um sjálfa/n þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Viljir þú styrkja vináttuböndin skaltu muna að góðir vinir geta verið saman bæði í sorg og gleði. Hlutirnir eru að breytast og það kemur sér vel að þú hefur mikla aðlög- unarhæfni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samskipti þín við fólk eru svo ná- kvæm og næm að þú þarft næstum aldrei að hækka röddina til að leggja áherslu á mál þitt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gættu þess að taka engu sem sjálf- sögðum hlut ella muntu iðrast þess síðar. Einbeittu þér að því sem þú ert að fást við og leyfðu engum að trufla þig á meðan. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þín kann að bíða einstakt tækifæri í dag og ríður á miklu að þú þekkir þinn vitj- unartíma. Mundu að hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa og þú þarft að hafa fyrir þeim. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt þú viljir hjálpa vinum með allt, þá getur það komið í veg fyrir að þeir læri sjálfir að bjarga sér. Hafðu gát á öllu, því þannig kemstu hjá áföllunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur látið ýmsa hluti reka á reið- anum en nú er komið að skuldadögum. Reyndu að dæma aðra með sama umburð- arlyndinu og þú vilt verða dæmdur með. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er hætt við valdabaráttu innan fjölskyldunnar í dag. Ef þú þarft að leggja spilin á borðið skaltu gera það kurt- eislega. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Veltu þér ekki upp úr gömlum málum því öllum verða á mistök. Þú þarft að huga vel að stöðu þinni jafnvel þótt það þýði að þú látir vandamál sem vind um eyru þjóta. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er freistandi að gefa loforð núna, en reyndu að standast það og ekki segja neitt sem gerir þig vandræðalegan seinna meir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mistökin eru til að læra af þeim svo hættu að refsa sjálfri/sjálfum þér og gerðu bara betur næst. Lausn verkefnis ligg- ur nær þér en þig grunar í fljótu bragði. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það á ekki alltaf við að treysta á guð og lukkuna. Það er alveg óvitlaust að leggja örlítið til hliðar og eiga varasjóð ef eitthvað óvænt kemur upp á. Þú skalt ekkert vera að lesa þetta,þú fyllist bara óþarfa bjartsýni,“ sagði yfirmaður íþróttadeildarinnar við Víkverja, þegar hinn síðarnefndi rambaði fram á próförk með viðtali við Pálma Rafn Pálmason, leikmann KR, sem valinn var besti leikmaður 2. umferðar Íslandsmóts karla í knattspyrnu. x x x Hann vissi sem var, að bjartsýni,sérstaklega þegar hún tengist KR, er ekki beint í genum Víkverja, og að ef hann leyfði sér að vona gæti áfallið í haust, þegar KR vinnur lík- legast ekki neitt hreinlega orðið Vík- verja til tjóns. Hver veit hvað það gæti gert þessum dagfarsprúða svartsýnismanni sem Víkverji er að trúa því að KR, af öllum liðum, gæti orðið meistari? x x x Allt kom þó fyrir ekki, Víkverji lasviðtalið og viti menn, hann er eiginlega bara orðinn nokkuð hýr á brá varðandi knattspyrnusumarið. Í hillingum sér Víkverji fyrir sér að KR-ingar muni nú eflaust bara vinna rest, verða Íslands- og bikar- meistarar og jafnvel Evrópu- meistarar líka, þrátt fyrir það lítil- væga smáræði að KR komst ekki í Evrópukeppnina síðasta sumar. En það hlýtur bara að vera hægt að gera undanþágu fyrir Stórveldið, er það ekki? x x x Raunar minnir þetta allt saman áþað þegar Víkverji á unglings- aldri „stýrði“ hinum og þessum lið- um í „Championship Manager“- leikjunum og átti barasta ágætlega farsælan feril sem knattspyrnu- stjóri. Víkverji er að vísu ekki viss um það að þessir leikir hafi elst vel, en í minningunni voru þeir líkari því að horfa á Excel-skjal heldur en tölvuleik. Engu að síður var hægt að lifa sig aðeins of mikið inn í þá. Það þarf til dæmis ekki að leita lengi á netinu til þess að finna reynslusögur annarra „stjóra“ úr þessum leikjum. Sumar þeirra hafa verið færðar svo mikið í stílinn, að Víkverji virðist nánast „normal“ í samanburðinum. Og þá er mikið sagt. vikverji@mbl.is Víkverji Og Jesús sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér (Lúk: 9.23) Hjálmar Freysteinsson seturgjarna á fésbókarsíðu sína góðar stökur eða vísur, sem birst hafa á Boðnarmiði. Þessi er eftir Dagbjart Dagbjartsson ort 30. apríl: Þetta er ekkert glens né grín, gerist fátt um skjólin og lóan syngur ljóðin sín líkt og sálm um jólin. Nokkrar athugasemdir bárust. Reir frá Drangsnesi spurði hvort hret væri á Hrísum. „Nánast hvítt,“ svaraði Dag- bjartur og Árni Gunnarsson talaði um „kvíðabeyglu“: Sveljan ýfir vík og vog- vekur ugg hjá bændum. Hrímað tún á Hrísum og hungurjarm í vændum. Hljóðið í Gunnari J. Straumland var ekki gott: Lóur hvæsa dirrindí með drápsglampa í augum. Alkuls vorið olli því að þær fóru á taugum. Hljóðið var bjartara í Pétri Stefánssyni á Boðnarmiði á mánu- dag: Stíga öldur. Stormar geisa. Steypist regn á freðinn svörð. Brátt mun snjó af landi leysa, lóur syngja um alla jörð. Gróðurjurtir, grænir hagar glitra sólarljósi í, þegar vorsins vænstu dagar vekja allt til lífs á ný. Ekki er það fallegt veðurhljóðið í Jóni Gissurarsyni þegar hann skrifar: „Í suðvestanhryðjunum sem gengið hafa yfir landið síð- ustu dagana standa hrossahópar landsmanna við heyrúllurnar sem þeim eru gefnar og hama sig gegn veðrinu, en halda sig lítt að beit. Vítt um leiti varnar beit vindasteytingurinn Krenkir sveitir, kælir reit krapahreytingurinn. Það var í fréttum í Morgun- blaðinu að umboðsmaður Alþingis telur að það sé ekki í samræmi við lög að Matvælastofnun ráði til starfa dýralækna sem ekki hafa vald á íslenskri tungu. Anton Helgi Jónsson yrkir: Íslensku gjarnan mæla má maður sem lækna dýrin á. Dagfinnur best þó djobbið kann; dýramál skilur og talar hann. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lóur, kvíðabeygla og dýralæknar „ÉG BRAUST TIL METORÐA ÚR SÁRRI FÁTÆKT. ÞÚ ÆTTIR ENDILEGA AÐ FARA Í SÝNINGARFERÐ FYRIRTÆKISINS.“ „Í HVERT SINN SEM ÞÚ ÝTIR Á ÞENNAN HNAPP SKALTU MUNA AÐ ÞAÐ VERÐUR ÉG SEM TEK SAUMANA ÚR ÞÉR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera besti pabbi í heimi! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG SÉ Á ÚRINU MÍNU… …AÐ ÞAÐ ER KOMINN TÍMI TIL… …AÐ VELTA ÞVÍ FYRIR SÉR HVERS VEGNA ÉG ER MEÐ ÚR GRÍMUR GRIMMI, ÉG FRÉTTI AÐ ÞÚ HEFÐIR BITIÐ EYRAÐ AF ÓVINI ÞÍNUM! EKKI TRÚA SÖGUSÖGNUNUM! HANN VAR VINUR!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.