Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 63
á við um furðulega mörg af þeim
handritum sem eru í umferð í dag –
þá sérstaklega hjá upprennandi
handritshöfundum. Þetta er algjör
brenglun. Aðlögunarhæfni karla-
valdsins er engum takmörkum háð.
Ef þú ætlar að skrifa kvikmynd sem
er ekki í kynbundnu jafnvægi, gerðu
það þá og stattu við það – ekki ljúga
að sjálfum þér og öðrum að þú sért
að gera eitthvað annað.
Það skal tekið fram að til er
fullt af frábærum kvikmyndum, þar
með talið femínískum, sem standast
ekki prófið – Run Lola Run er dæmi
um slíka mynd. Bechdel sagði það
til að mynda sjálf í viðtali árið 2014
að prófið væri langt frá því að vera
fullkomið og nefndi kvikmyndina
Jackie Brown sem dæmi um góða
mynd sem stæðist það ekki – prófið
átti einfaldlega að vekja fólk til um-
hugsunar. Prófið átti hins vegar
aldrei að verða sauðargæra karl-
manna sem kalla sig jafnréttissinna
en ala á ójöfnuði!
Karlmaður skrifar konu
Sjálfur er ég hvítur karlmaður.
Einhverjir gætu bent mér á að ég
væri hluti af vandamálinu og það að
ég skuli vera að tjá mig um þetta
væri ekkert annað en mín eigin
rottuleið til að vera réttum megin
við línuna. Það er eflaust ákveðið
sannleikskorn í þeim orðum. Mér
þykir það hins vegar liggja í augum
uppi að það sé betra að nýta sér for-
réttindastöðu til að reyna láta gott
af sér leiða en að sitja aðgerðarlaus.
„Ekki skrifa um eitthvað sem
þú veist ekkert um,“ eru einkunn-
arorð margra prófessora og spek-
inga þegar þekkingu er miðlað
áfram til upprennandi handritshöf-
unda. Og ég er sammála því að
mörgu leyti. Margir taka orðin hins
vegar svo, að það skuli aðeins vera
skrifaðar persónur sem eru sam-
kynja höfundi. Karlar skrifa karla
og konur skrifa konur. Ég meina,
hvernig á karlmaður að geta sett sig
í spor konu og skrifað slíka per-
sónu? Þvílíkur ógerningur! Viðkom-
andi handritshöfundur fer síðan og
skrifar um eiturlyfjabaróna án þess
að hafa nokkurn tímann séð kókaín í
sínu lifandi lífi eða guði og engla
þrátt fyrir að það næsta sem við-
komandi hefur komist hinu heilaga
er bíltúr í Breiðholtið; himnaríki á
jörðu.
Það er algjört kjaftæði að karl-
ar geti ekki skrifað konur og konur
geti ekki skrifað karla. Meðal fólks
ríkir margt sammannlegt sem
áhugavert er að kanna óháð því
hvaða kyn á í hlut. Orð þessi eru ef
til vill kristölluð í svari George R.R.
Martins þegar hann var spurður
hvernig í ósköpunum hann færi að
því að skrifa svona góðar kvenkyns
persónur þegar hann væri sjálfur
með typpi: „Ég hef alltaf staðið í
þeirri trú að konur væru mann-
eskjur.“
Vandamálið verður hins vegar
engan veginn leyst með því að fá
fleiri karlkyns handritshöfunda til
að skrifa fleiri kvenkyns persónur
með kjöt á beinunum. Enda fá
handritshöfundar sjaldnast að eiga
síðasta orðið. Vandamálið verður
leyst með því að auka fjölbreytni
þeirra sem á bak við verkin standa.
» Prófið átti hinsvegar aldrei að verða
sauðargæra karlmanna
sem kalla sig jafnréttis-
sinna en ala á ójöfnuði!
Hrollvekja Úr kvikmyndinni 28 Days Later sem stenst Bechdel-prófið. Sendill í London lendir í slysi og rankar við
sér á sjúkrahúsi 28 dögum síðar og kemst að því að djöflaveira hefur nær útrýmt öllu mannlífi í stórborginni.
Fellur Úr þýsku kvikmyndinni Lola rennt, eða Run Lola Run á ensku, er ein
þeirra fjölmörgu kvikmynda sögunnar sem standast ekki Bechdel-prófið.
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Roman Polanski ætlar að höfða mál á
hendur Bandarísku kvikmyndaaka-
demíunni, sem ár hvert útdeilir Ósk-
arsverðlaunum, í kjölfar þess að
hann var rekinn úr akademíunni
vegna brota á siðareglum hennar
sem kveða á um að koma skuli fram
við aðrar manneskjur af virðingu.
Í frétt á vef Guardian er vitnað í
bréf sem Harland Braun, lögmaður
Polanski, sendi akademíunni þar sem
hann bendir á að akademían hafi
hvorki farið eftir eigin reglum né
lögum sem gilda í Kaliforníu þar sem
Polanski hafi ekki verið veittur rétt-
ur til andmæla. „Við drögum ekki í
efa réttmæti ákvörðunarinnar, en
gerum athugasemd við að stofnunin
hafi virt að vettugi eigin viðmið og
brotið gegn lögum sem gilda í Kali-
forníu,“ segir í bréfinu sem Los Ang-
eles Times greindi fyrst frá.
Polanski hefur viðurkennt að hafa nauðgað 13 ára stúlku árið 1977 og er
sökum þess eftirlýstur í Bandaríkjunum og dvelur landflótta í París. Stuttu
áður en hann var rekinn úr akademíunni lýsti Polanski metoo-byltingunni
sem múgæsingi og móðursýki í viðtali við Newsweek Polska. „Allir eru að
reyna að styðja við þessa hreyfingu, aðallega út af ótta … Þetta er algjör
hræsni,“ segir Polanski. Jan Olszewski, lögmaður Polanski, segir það „al-
gjöran misskilning og áreitni“ að líkja Polanski við Bill Cosby, sem sam-
tímis var rekinn úr akademíunni eftir að hafa verið sakfelldur fyrir kyn-
ferðislegt ofbeldi og bíður nú dóms í máli sínu.
Polanski höfðar mál gegn akademíunni
Leikstjórinn Roman Polanski er
ósáttur við brottreksturinn.
AFP
Morgunblaðið/Kristinn
Stórsöngvari Kristinn Sigmundsson kemur fram á styrktartónleikum fyrir Kvennaathvarfið á laugardag.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s
Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s
Fim 17/5 kl. 20:00 31. s Fös 25/5 kl. 20:00 34. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Fim 17/5 kl. 20:30 23. s Fös 25/5 kl. 20:30 aukas.
Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Fös 18/5 kl. 20:30 24. s Lau 26/5 kl. 20:30 aukas.
Sun 13/5 kl. 20:30 22. s Lau 19/5 kl. 20:30 aukas.
Mið 16/5 kl. 20:30 aukas. Fim 24/5 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Hin lánsömu (Stóra sviðið)
Sun 13/5 kl. 20:00 3. s Mið 16/5 kl. 20:00 4. s
Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Sun 13/5 kl. 19:30 50.sýn
Síðustu sýningar komnar í sölu
Aðfaranótt (Kassinn)
Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200