Morgunblaðið - 10.05.2018, Qupperneq 76
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 130. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Ummæli Þórðar gerðu útslagið
2. Lýst eftir Hafþóri Helgasyni
3. Lægð í dýpri kantinum
4. Keyptu fokhelt hús í Mosó
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fjölbreytt eurovision-
lög í kórbúningi
Gradualekór Langholtskirkju flytur
fjölbreytt eurovisionlög, bæði gömul
og ný, íslensk og erlend, á tónleikum
sínum í Langholtskirkju á morgun,
föstudag, kl. 19.30. Sérstakur gestur
er Sigríður Thorlacius og stjórnandi
er Þorvaldur Örn Davíðsson sem
sjálfur útsetti fjölda laganna.
Myndlistarsýn-
ing Guðlaugar
Friðriksdóttur
verður opnuð í
dag, uppstigning-
ardag, kl. 15.30 í
Gallerí Göngum,
sem eru göngin
milli Háteigs-
kirkju og safn-
aðarheimilis kirkjunnar við Háteigs-
veg. Gengið er inn frá safnaðar-
heimilinu. Að sögn listakonunnar
hefur innihald bænadaganna verið
henni hugleikið allt frá barnæsku.
Myndirnar eru litaflæði, málaðar með
olíulitum á striga.
Guðlaug opnar sýn-
ingu í Gallerí Göngum
Komið er að lokum tveggja sýninga
í Listasafni Árnesinga, það eru Þjórsá,
sem er innsetning og umhverfisverk
eftir Borghildi Óskarsdóttur, og
Undirstaða og uppspretta – sýn á
safneign þar sem verk í eigu safnsins
eru til skoðunar. Í dag,
á síðasta sýningar-
degi, kl. 15 gengur
Inga Jónsdóttir sýn-
ingarstjóri um sýn-
ingarnar með gestum
og svarar spurn-
ingum.
Safnstjóri með leið-
sögn við sýningarlok
Á föstudag Austlæg átt, 10-15 og rigning, en hægari og yfirleitt
þurrt norðanlands. Hiti 7 til 12 stig.
Á laugardag Breytileg átt 3-8 m/s og víða þurrt og bjart, en aust-
an 8-13, skýjað og dálítil rigning á Suðurlandi og Austfjörðum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða suðvestan 8-15 síðdegis en norðaustan
10-15 á Vestfjörðum. Léttir til norðaustanlands undir kvöld.
VEÐUR
Á morgun verður kynnt
hvaða 23 leikmenn skipa ís-
lenska liðið í heimsmeist-
arakeppni karla í knatt-
spyrnu í Rússlandi í sumar.
Heimir Hallgrímsson lands-
liðsþjálfari getur þó gert
breytingar á hópnum allt
þar til einn sólarhringur er í
fyrsta leik Íslands á HM,
gegn Argentínu. Hann getur
skilað inn allt að 35 nöfnum
til FIFA þótt 23 skipi hóp-
inn. » 1
Svigrúm til breyt-
inga fram að HM
„Segja má að þetta komist nálægt
því að vera fullkomin leiktíð hjá okk-
ur. Menn hafa verið mjög einbeittir
frá því síðasta sumar. Í fyrra féllum
við um deild á markatölu og þegar við
hittumst í upphafi undirbúnings-
tímabilsins var stefnan sett á að fara
strax upp í efstu deild á ný. Það tókst
og menn eru rosalega ánægðir með
það,“ segir Arnór Þór
Gunnarsson, lands-
liðsmaður í hand-
bolta, um tímabilið
hjá Bergischer í
Þýskalandi. »4
Kemst nálægt því að
vera fullkomin leiktíð
Íslandsmeistararnir í Þór/KA
eru með sex stig eftir tvo
fyrstu leiki sína í Pepsi-deild
kvenna í knattspyrnu en Ak-
ureyrarliðið vann nýliðana í
HK/Víkingi 3:0 á heimavelli í
gærkvöld. ÍBV lék sinn fyrsta
leik á tímabilinu og gerði góða
ferð í Hafnarfjörð en þar unnu
Eyjakonur sigur á FH, 3:1. »2
Meistararnir eru
með fullt hús stiga
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Gunnar Karl Jóhannesson varð í 2.
sæti í Cadet-flokki (flokki framdrif-
inna bíla og ökumanna undir 25 ára
aldri) í fyrstu umferð breska meist-
aramótsins í ralli á dögunum. „Eng-
inn Íslendingur hefur náð svona
langt í þessu og það var einstök til-
finning að standa á verðlaunapalli
fyrir framan fjölda áhorfenda og
myndavéla,“ segir ökumaðurinn,
sem er aðeins 21 árs.
Áður en að keppninni í Carlisle í
Wales kom tók Gunnar Karl þátt í
tveimur mótum í annarri mótaröð,
varð í 10. sæti í sínum flokki í
Cambrian-rallkeppninni og í 7. sæti í
Rallynuts Stages (www.gunnarkarl-
rallydriver.com). Hann flutti til Wal-
es í febrúar og hefur síðan einbeitt
sér að atvinnumennskunni í akstr-
inum og því sem henni viðkemur.
Kostnaðurinn skilar sér
„Það tók tíma að læra á bílinn, það
er nýtt fyrir mig að keyra framdrif-
inn bíl, gírkassinn er líka öðruvísi en
ég á að venjast og ég hafði ekki ekið
með George Gwynn, aðstoðarmanni
mínum, í þrjú ár, en þetta hefur
gengið vel og ég er mjög ánægður
með árangurinn,“ segir Gunnar
Karl. Hann nýtur aðstoðar Matt-
hews Edwards, eins fremsta rall-
ökumanns Bretlands, en hann sigr-
aði í keppninni í Carlisle þegar á
heildina er litið. Þá er hann með við-
gerðarmenn sem störfuðu áður fyrir
M-sport, núverandi heimsmeistara í
greininni.
„Þessir menn hafa kennt mér mik-
ið á skömmum tíma, hraðinn eykst
stöðugt og öryggið samfara því,“
segir Gunnar Karl. Aðalatriðið sé að
vera þolinmóður og vandvirkur. „Ég
gæti farið hraðar en þá tæki ég of
mikla áhættu. Ég verð því að hugsa
um að auka hraðann jafnt og þétt án
þess að ætla mér um of.“
Næsta mót verður í Belgíu 21.-23.
júní. Gunnar Karl segir að það verði
enn stærra í sniðum og enn þekktari
keppendur bætist í hópinn. „Það er í
raun ótrúlegt að vera hluti af þessari
mótaröð en það kostar líka sitt og ef
ég næ ekki að fá nægar styrktar-
auglýsingar verð ég að selja rallbíl-
inn sem ég hef notað í keppni á Ís-
landi.“
Gunar Karl segist hafa gert sér
grein fyrir því að undirbúningurinn
og þátttakan yrðu mjög kostnaðar-
söm. Í því sambandi nefnir hann
kostnað vegna starfsmanna, æfinga-
daga, þjálfunar, dekkja og elds-
neytis fyrir utan uppihaldskostnað.
„Þetta er samt dýrara en ég hélt og
ég verð að gera hlé á undirbún-
ingnum úti þar til ég verð búinn að
tryggja mér nægt fjármagn,“ segir
Gunnar Karl, sem kom heim til Ís-
lands fyrir helgi í þeim erindagjörð-
um.
Hann ætlar samt ekki að leggja
árar í bát. „Ég tel mig eiga mögu-
leika á að sigra í samanlögðu í mín-
um flokki og fagna titlinum í haust
og stefni að því. Með það í huga læt
ég ekkert stöðva mig og 2. sætið í
nýliðinni keppni gefur mér auka-
kraft.“
Árangurinn gefur aukakraft
Í 2. sæti í 1. um-
ferð breska meist-
aramótsins í ralli
Árangrinum fagnað George Gwynn og Gunnar Karl kampakátir í Brampton með 2. sætið í fyrstu rallkeppninni.
Rall Félagarnir á fullri ferð í keppninni í Wales á dögunum.