Morgunblaðið - 19.05.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Tveir af sex prófessorum við Guð-
fræði- og trúarbragðafræðideild
Háskóla Íslands eru kaþólskrar trú-
ar. Eitt af höfuð-
hlutverkum
deildarinnar er
að mennta presta
og aðra starfs-
menn hinnar
lúthersku þjóð-
kirkju á Íslandi.
Það er gert sam-
kvæmt sérstök-
um samstarfs-
samningi
deildarinnar við
embætti biskups. Prófessorar deild-
arinnar eiga sjálfkrafa rétt til setu á
prestastefnu, einn úr þeirra hópi sit-
ur á kirkjuþingi og þeir taka þátt í
biskupskjöri. Það hefur þó nokkur
undanfarin ár verið skilyrði fyrir
kosningarétti við biskupskjör að við-
komandi prófessor sé innan þjóð-
kirkjunnar.
„Ég lít á það sem persónulegt mál
hvaða kirkjudeild hver og einn til-
heyrir. Þetta eru ekki opinberar
upplýsingar,“ sagði Arnfríður Guð-
mundsdóttir, forseti Guðfræði- og
trúarbragðafræðideildar, í samtali
við Morgunblaðið, þegar hún var
spurð að því hvort það hefði einhver
áhrif á samband deildarinnar við
þjóðkirkjuna að hluti hinna föstu
kennara væri kaþólskrar trúar. Hún
sagði að í deildinni ríkti akademískt
frelsi eins og í háskólanum öllum og
ráðningar í kennaraembætti færu
ekki eftir trúarskoðunum.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
gekk Rúnar Már Þorsteinsson, pró-
fessor í nýjatestamentisfræðum, í
rómversk-kaþólsku kirkjuna um síð-
ustu páska. Áður hafði Pétur Pét-
ursson prófessor gengið sömu
kirkjudeild á hönd.
Arnfríður segir að Guðfræði- og
trúarbragðafræðideildin muni hér
eftir sem hingað til uppfylla ákvæði
samnings við biskupsembættið um
starfsmenntun fyrir þjóðkirkjuna.
Þegar hún var spurð að því hvort
það skipti ekki máli hvaða trú guð-
fræðiprófessorar játuðu benti hún á
að hér væri ekki um ólíka trú að
ræða heldur aðild að mismunandi
kirkjudeildum sem báðar játuðu
kristna trú. Mjög mikilvægt væri að
hafa þetta atriði í huga.
Arnfríður bætti því við að í sjálfu
sér væri það ekki frágangssök þótt
kennarar í Guðfræði- og trúar-
bragðafræðideild væru ekki krist-
innar trúar. Í deildinni eins og há-
skólanum almennt ríkti akademískt
frelsi til kennslu og rannsókna.
Samningurinn við biskup um starfs-
menntun takmarkaði ekki akadem-
ískt frelsi einstakra kennara. Hins
vegar væru í honum ákvæði um
þjálfun nemenda í predikunarfræð-
um og öðrum fögum innan kenni-
mannlegrar guðfræði fyrir þjóð-
kirkjuna og á því sviði gæti komið
fram áherslumunur í kennslu. „En
það er bara úrvinnslumál hér hvern-
ig sá þáttur er leystur,“ sagði Arn-
fríður.
Tveir guðfræðiprófessorar kaþólskir
Hefur ekki áhrif á starfsmenntun
fyrir þjóðkirkjuna, segir deildarforseti
Morgunblaðið/Ómar
Trú Guðfræðideild Háskólans annast m.a. starfsmenntun fyrir hina lúth-
ersku þjóðkirkju á Íslandi samkvæmt samningi við embætti biskups.
Arnfríður
Guðmundsdóttir
Krakkar úr 3. og 4. bekk frá frístundaheim-
ilunum Frostheimum, Draumalandi, Eldflaug-
inni og Halastjörnunni hittust á Klambratúni í
auk þess sem frístundaheimilin kepptu um það
hver ætti besta stuðningsliðið og flottasta kassa-
bílinn.
gær þar sem haldið var torfærukassabílarall frí-
stundaheimila Tjarnarinnar. Í rallinu var keppt
um fyrsta og annað sætið í kynjaskiptum liðum
Knáir krakkar kepptu í kassabílaralli á Klambratúni
Morgunblaðið/Hari
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Við Skólaveg 5 í Hnífsdal má finna
130 fermetra einbýlishús sem staðið
hefur autt í nokkur ár, en fasteignin
er í eigu Íbúðalánasjóðs. Þegar ná-
grannar höfðu samband við sjóðinn,
meðal annars til að kvarta undan
órækt í garði hússins og útbreiðslu
kerfils þaðan í nálæga garða, kom í
ljós að húsið var ekki skráð á sölu.
Hafði þá gleymst að setja fasteigna-
auglýsinguna aftur í birtingu eftir að
ákveðið var að taka hana tímabundið
út af sölusíðum.
„Ég held að þetta hús sé nú bara
að verða ónýtt – það er orðið hálf-
myglað að innan,“ sagði íbúi í Hnífs-
dal í samtali við Morgunblaðið.
„Húsið lítur sæmilega út að utan, en
það er kerfill í öllum garðinum og
hann er farinn að breiða vel úr sér,“
bætti Hnífsdælingurinn við, en tekið
er sérstaklega fram í fasteignaaug-
lýsingu hússins, sem birt var í vik-
unni, að lóðin sé „falleg og gróin“.
Þar segir einnig um húsið að gólf
séu léleg, gler og gluggar ónýtir og
að „miklar rakaskemmdir og mygla“
sé í veggjum og lofti. Þá er innrétt-
ing í eldhúsi ónýt sem og baðkarið,
þakkantur lélegur og múrskemmdir
utanhúss. Svipaða sögu má segja af
bílskúr hússins, en hann er sagður í
„mjög lélegu ásigkomulagi“. Fæst
húsið keypt á 7,5 milljónir króna.
Nýtt verðmat skemmdi fyrir
Hjá Íbúðalánasjóði fengust þær
upplýsingar að söluauglýsingin hefði
verið fjarlægð úr birtingu þegar ver-
ið var að framkvæma nýtt verðmat.
„[E]n vegna mannlegra mistaka var
hún ekki sett inn á ný.“ Þá harmar
Íbúðalánasjóður þessi mistök og hef-
ur í kjölfarið „hert eftirlit með því að
allar eignir sem sjóðurinn er með til
sölu séu aðgengilegar almenningi á
netinu“.
Einbýlishús gleymdist í Hnífsdal
Húsið er í eigu
Íbúðalánasjóðs
Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is
Fundið Við Skólaveg stendur þetta hús sem gleymdist í nokkurn tíma.
Dómur var felldur í Héraðsdómi
Reykjaness í gær í máli Þorsteins
Halldórssonar. Hann var þar dæmd-
ur til sjö ára fangelsisvistar fyrir
gróf kynferðisbrot gegn ungum
dreng.
Tvær ákærur voru lagðar fram
gegn Þorsteini: Í þeirri fyrri var
hann sakaður um brot gegn hegn-
ingar- og barnaverndarlögum og
sagður hafa tælt dreng frá því að
brotaþolinn var 15 til 17 ára gamall.
Þetta hafi Þorsteinn gert með því að
bjóða drengnum fíkniefni, peninga,
tóbak, farsíma og aðrar gjafir. Einn-
ig er hann sakaður um að hafa brotið
ítrekað gegn nálgunarbanni.
Í seinni ákærunni var Þorsteinn
sakaður um að nauðga drengnum
þegar hann var 18 ára. Þar á meðal
er hann sakaður um að hafa haldið
honum nauðugum og nauðgað hon-
um ítrekað á fimm daga bili frá 6.-11.
janúar á þessu ári. Nauðganirnar
fóru fram á heimili Þorsteins og á
gistiheimili en brotaþoli kom skila-
boðum til foreldra sinna um það
hvar hann væri með smáforritinu
Snapchat.
Hyggst áfrýja dómnum
Guðrún Björg Birgisdóttir, verj-
andi Þorsteins, hefur staðfest sak-
fellingu skjólstæðings síns en segir
einnig að Þorsteinn hyggist áfrýja
dómnum á grundvelli sakleysis síns.
Þorsteinn hefur gert athugasemdir
við málsmeðferð og sönnunargögn í
seinni ákærunni.
Dæmdur
í sjö ára
fangelsi
Sakfelldur fyrir
gróf kynferðisbrot
Ekki er von á blíðviðri um hvíta-
sunnuhelgina. Veðurstofan hefur
gefið út gula viðvörun vegna veð-
urs á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiða-
firði, Suðausturlandi og miðhálend-
inu. Í dag er gert ráð fyrir krapa
eða snjó á Mosfells- og Hellisheið-
um fram eftir morgni. Akstursbann
er á fjölmörgum hálendisvegum um
þessar mundir þar sem þeir eru
margir viðkvæmir meðan frost
hverfur úr jörðu. Vegagerðin vek-
ur athygli á að venjubundinni vetr-
arþjónustu er lokið og að ekkert
ferðaveður sé nú fyrir húsbíla og
bíla með aftanívagna. Slydda gæti
myndast á fjallvegum og hált gæti
orðið að kvöldi og morgni.
Lítið ferðaveður um
hvítasunnuhelgina