Morgunblaðið - 19.05.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Allir þessir erlendu fréttamenn vilja
tala við Heimi þjálfara og hann er
fullbókaður fram yfir kveðjuleikinn
við Gana 7. júní. Við höfum þurft að
velja og hafna og það þarf að vera
eitthvað sérstakt til að við reynum að
koma fleirum að. Hann er jú að und-
irbúa landslið Íslands fyrir þátttöku í
lokakeppni heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu,“ segir Ómar Smárason,
fjölmiðlafulltrúi
og markaðsstjóri
KSÍ.
Hann segir að
viðtöl við Heimi á
þessu ári skipti nú
þegar tugum í
miðlum frá öllum
heimshornum.
Auk þessa séu
hefðbundnir fjöl-
miðlaviðburðir
eins og blaða-
mannafundir þar sem Heimir hafi
verið í aðalhlutverki. Þá hafi margir
erlendir og innlendir miðlar líka
heimsótt leikmenn landsliðsins til
þeirra félaga.
Ómar segir að erlendir fjölmiðlar
sýni íslenska landsliðinu mikinn
áhuga og ný erindi berist á hverjum
degi. Þegar spjallað var við hann
hafði hann nýlega kvatt fulltrúa rík-
issjónvarpsins í Argentínu. Stöðin
boðaði komu sjónvarpsliðs frá úti-
búinu í Barcelona hingað til lands í
lok mánaðarins.
Plássið er að fyllast
„Margir erlendir miðlar fylgdust
með fyrstu umferðinni í Pepsi-
deildinni og svo verður fjöldinn allur
af erlendum stöðvum úr öllum heims-
hornum á leikjunum við Noreg og
Gana í byrjun júní. Við erum að taka
við umsóknum um aðstöðu og aðgang
að vellinum þessa dagana og þurfum
að loka fljótlega því við höfum tak-
markað pláss sem er að fyllast,“ segir
Ómar.
Hann segir að andstæðingar Ís-
lands í riðlakeppninni sýni mikinn
áhuga á Íslandi, sérstaklega Argent-
ína, en einnig Króatía og Nígería.
Fjölmargir miðlar frá Suður-
Ameríku, Bandaríkjunum, Japan,
Kína og Ástralíu hafi lagt leið sína
hingað og að sjálfsögðu frá Evrópu.
Fyrir Evrópumótið í Frakklandi 2016
hafi athyglin einkum verið frá
Evrópulöndum, en nú sé engin álfa
undanskilin.
Í mörgum tilvikum sé um fjölmiðla
og fréttastofur að ræða sem starfa á
heimsvísu, en sjónvarpsstöðvar hafi
verið áberandi. Ómar nefnir sem
dæmi að frá breska ríkisútvarpinu,
BBC, sem sé með margar stöðvar og
rásir, hafi komið fólk úr öllum áttum.
Af hverju á þessum stalli?
„Fyrsta spurning er yfirleitt af
hverju íslenska landsliðið sé á þess-
um stalli í heimsfótboltanum,“ segir
Ómar. „Við erum með svör á reiðum
höndum við mörgum spurningum og
tölfræði um knattspyrnuhús, þjálf-
aramenntun og þess háttar. Þeir sem
koma hingað mynda gjarnan æfingar,
aðstæður, knattspyrnuvelli og -hús
og krakka í fótbolta.
Okkur finnst mikilvægt að taka vel
á móti þessu fólki og greiða götu þess
eins og við getum. Auk knattspyrn-
unnar snýst þetta um Ísland og
ímynd landsins.“
Auk þessa er sérstök dagskrá þar
sem fjölmiðlar hafa aðgang að leik-
mönnum. Þar sé einkum miðað við
íþróttamiðla og „þar á bæ þekkja
menn okkar vinnulag og reglur“. Óm-
ar segir að starfið sé hálfgerður línu-
dans á milli þess að þjónusta fjölmiðla
vel, en um leið að tryggja að aðgang-
urinn verði ekki svo mikill að hann
trufli íþróttalegan undirbúning.
Lokaundirbúningurinn hafinn
Í gær hófst lokaundirbúningur
landsliðsins er þeir fimm leik-
menn sem komnir eru heim að
loknu keppnistímabili erlendis
mættu á æfingu á Laugardals-
velli. Næstu daga fjölgar í
hópnum og í byrjun júní
verða tveir landsleikir á
Laugardalsvelli. Laugar-
daginn 2. júní mætir Lars
Lagerbäck með sína menn
í norska landsliðinu og 7.
júní verður leikið gegn
Gana.
Eftir 28 daga, laugar-
daginn 16. júní klukkan
13, mætir Ísland síðan
liði Argentínu á Spartak-
vellinum í Moskvu í fyrsta
leiknum í lokakeppni HM.
Heimir um allan heim
Landsliðsþjálfarinn eftirsóttur og nánast fullbókaður Mikill fjölmiðlaáhugi
og erlendar stöðvar úr öllum heimshornum boða komu sína á landsleikina í júní
Morgunblaðið/Eggert
Heima Landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson glaðbeittur á æfingu á Laugardalsvelli í gær. Ýmist snjóaði á þá
leikmenn sem mættir voru á æfinguna eða sólin skein. Létt var yfir mönnum, en stóra stundin nálgast.
„Við erum oft spurð um fjöl-
skylduhagi leikmanna, uppáhalds
þetta og uppáhalds hitt, en látum
allt slíkt afskiptalaust. Alls
konar fyrirspurnum um
menningu, mataræði,
þjóðareinkenni og þess háttar
vísum við gjarnan á Íslands-
stofu,“ segir Ómar Smárason.
„Skrýtnasta spurning
sem ég hef fengið í þessu
starfi var í tengslum við
Evrópumótið í Frakklandi.
Þá spurði breskur frétta-
maður að því hvort
mörgæsir væru al-
mennt á matardiskum
Íslendinga. Ég spurði á
móti hvort hann væri
að grínast því mör-
gæsir væru ekki á
norðurhveli jarðar.
Það virtist koma flatt
upp á manninn.“
Mörgæsir
í matinn?
ÓLÍKAR SPURNINGAR
Ómar
Smárason
28 DAGAR Í FYRSTA LEIK ÍSLANDS
Í júní verða steindir gluggar Gerðar
Helgadóttur á suðurhlið Kópavogs-
kirkju teknir niður og sendir til við-
gerðar í Oidtmann-glerverksmiðj-
unum í Þýskalandi, sem annaðist gerð
þeirra og uppsetningu á sínum tíma. Á
meðan verður gert við gler á utan-
verðri suðurhlið kirkjunnar, sem er
mest áveðurs. Steindu gluggarnir
verða svo settir aftur upp eftir viðgerð
í september. Í sumar verður jafnframt
gert við allt rafkerfi kirkjunnar.
Að sögn Sigurðar Arnarsonar,
sóknarprests í Kársnessókn, var orðin
þörf á að gera við blýið sem tengir ein-
ingarnar í gluggunum. Gler í gluggum
Gerðar er í raun innra byrðið, en skipt
verður alveg um ytra byrðið. Þessi
viðgerð og aðrar endurbætur á hús-
næði kirkjunnar eru orðnar brýnar og
skiptir kostnaður milljónum króna.
Ýmsir sjóðir, Kópavogsbær og vel-
unnarar kirkjunnar hafa lagt henni
ómetanlegt lið á margvíslegan hátt í
þessum stóru verkefnum, að sögn Sig-
urðar.
Breyting á helgihaldi
Kópavogskirkja var reist 1958-1962
eftir teikningum frá embætti húsa-
meistara ríkisins sem Hörður Bjarna-
son veitti forstöðu á þeim tíma. Ragn-
ar Emilsson, arkitekt hjá embættinu,
vann ásamt húsameistara mikið að
teikningu kirkjunnar. Steindir
gluggar listakonunnar Gerðar Helga-
dóttur sem prýða kirkjuna setja mik-
inn svip á hana og ljá henni yfirbragð
helgi, friðar og listrænnar fágunar,
segir á heimasíðunni.
Ekki verða guðsþjónustur og mess-
ur í kirkjunni á sunnudögum frá júní-
byrjun og fram eftir sumri og er bent
á helgihald í öðrum kirkjum Kópa-
vogs. Í ágúst og september verða
guðsþjónstur og messur á sunnudög-
um í Safnaðarheimilinu Borgum.
aij@mbl.is
Ljósmynd/Sigurður Arnarson
Listasmíð Gluggar Gerðar setja
mikinn svip á Kópavogskirkju.
Viðgerðir
á Kópa-
vogskirkju
Gluggar Gerðar
sendir til Þýskalands