Morgunblaðið - 19.05.2018, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Tilkynnt hefur nú verið um tilnefningar
til Safnaverðlaunanna 2018. Íslensku
safnaverðlaunin er viðurkenning veitt
annað hvert ár íslensku safni fyrir fram-
úrskarandi starfsemi.
Sem fyrr gátu almenningur, stofnanir
og félagasamtök sent inn ábendingar
um safn eða einstök verkefni á starfs-
sviði safna sem þykja til eftirbreytni
og íslensku safnastarfi til framdráttar.
Valnefnd hefur tilnefnt eftirfarandi þrjú
söfn og hlýtur eitt þeirra verðlaunin.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson,
afhendir Safnaverðlaunin 2018 við hátíð-
lega athöfn þann 5. júní.
Íslandsdeild alþjóðaráðs safna – ICOM og
FÍSOS – Félag íslenskra safna og safnmanna
standa saman að verðlaununum.
ÍSLENSKU
SAFNAVERÐLAUNIN
2018
Listasafn Árnesinga
Grasagarður Reykjavíkur
Varðveislu- og rannsóknasetur
Þjóðminjasafns Íslands
TIL HAMINGJU MEÐ TILNEFNINGAR
TIL SAFNAVERÐLAUNANNA 2018
fór fram í Reykjavík 11.-12. október
1986 lágu þrjú hótelskip í Gömlu
höfninni. Tvö rússnesk skip lágu við
Ægisgarð, Baltika og Georg Ots.
Norska ferjan Boletta lá við Aust-
urbakka. Gorbachev og Raisa kona
hans kusu að búa um borð í Georg
Ots meðan á dvöl þeirra stóð.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Endurbyggja þarf bryggjuna í
Gufunesi ef hún á að geta þjónað
skipum. Hluti hennar brann fyrir
nokkrum árum auk þess sem ekkert
hefur verið gert fyrir hana frá því
að Áburðarverksmiðjan hætti starf-
semi þar árið 2002. Þetta segir Gísli
Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóa-
hafna.
Reykjavíkurborg hefur borist
fyrirspurn dagsett 27. mars síðast-
liðinn varðandi mögulega staðsetn-
ingu gistiskips við bryggju í Gufu-
nesi. Erindinu var vísað til
umsagnar verkefnisstjóra hjá borg-
inni.
Bryggjupláss ekki tiltækt
„Það koma reglulega fyrir-
spurninr til okkar um hvort hægt sé
að leggja skipi til að stunda hót-
elrekstur. Svar okkar hefur alltaf
verið neikvætt,“ segir Gísli.
Hann segir að í fyrsta lagi hafi
Faxaflóahafnir ekki bryggjupláss til
að taka skip í viðvarandi legu. Í
öðru lagi þurfi hótelstarfsemi tals-
vert svæði á landi sem ekki sé fyrir
hendi. Í þriðja lagi sé regluverk um
rekstur hótelskipa ófullkomið, t.d.
er varðar brunavarnir, leyfismál og
fleira. Í fjórða lagi hafi Faxaflóa-
hafnir ekki viljað heimila rekstur
sem væri í raun í samkeppni við
starfsemi á landi þar sem ýmis
gjöld eru greidd sem ekki eiga við
um viðlegu skipa (fasteignagjöld
o.fl.). Í fimmta lagi séu hugmyndir
um svona skip mismunandi, sum
séu með haffæri en önnur tæp á
slíku.
„Við höfum því ekki áhuga á að
taka í Gömlu höfnina svona rekstur
því ef hann fer illa þá sitjum við
uppi með skipin,“ segir Gísli. Hann
kveðst vita til þess að fleiri hafnir
hafi fengið svona beiðnir, t.d.
Hornafjörður og Hafnarfjörður.
Þegar leiðtogafundur Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta og
Mikhail Gorbachev Sovétleiðtoga
Gistiskip getur ekki lagst að Gufunesi
Gufuneshöfnin ónýt Starfsemi
hótelskipa ekki heimiluð í Reykjavík
Morgunblaðið/Ómar
Gufuneshöfn Gamli Þór lá lengi við bryggjuna, illa farinn eins og bryggjan sjálf..
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Arnarlón ehf. sem viljað hefur kaupa
eignir Dalabyggðar á Laugum í Sæ-
lingsdal en hefur ekki uppfyllt skil-
yrði tilboðs síns hefur lagt fyrir
sveitarstjórnina tillögu að lausn.
Felst það í því að kaupandinn fellur
frá kaupum á jörðinni Sælingsdals-
tungu og mun kaupverðið lækka
sem því nemur.
Samkomulag var um að Arnarlón
ehf. keypti eignir Dalabyggðar á
Laugum þar sem áður var rekinn
grunnskóli. Þar eru skólahús,
heimavistir, íþróttahús, sundlaug og
fjögur íbúðarhús auk hótelálmu með
20 herbergjum sem eru áföst skóla-
húsinu. Þá fylgja hlutir úr jörðum. Á
Laugum hefur verið rekið sumar-
hótel og ungmennabúðir á vetrum.
Arnarlón hyggst efla þar ferðaþjón-
ustuna.
Sveitarstjórn féllst á að lána hluta
kaupverðsins gegn fyrsta eða öðrum
veðrétti en kaupandinn mun ekki
hafa getað fjármagnað kaupin með
því móti, að minnsta kosti óskaði
hann eftir því að veðið yrði fært á 3.
veðrétt. Það gat sveitarstjórn ekki
sætt sig við og sleit viðræðunum.
Fá áfram fullt verð
Í frétt á vef Dalabyggðar í fyrra-
dag kemur fram að Arnarlón hafi
gert athugasemdir við þessa af-
greiðslu á þeim forsendum að drög
að samningum hafi verið til umræðu
en ekki endanlegir samningar til
samþykktar eða synjunar.
Lagði Arnarlón fram tillögu til
lausnar á málinu. Jörðin Sælings-
dalstunga verði undanskilin í við-
skiptunum og kaupverðið lækkað
um 55 milljónir kr. Tilboð fyrirtæk-
isins var sundurliðað á sínum tíma
og þetta var söluverð jarðarinnar.
Arnarlón áskilur sér jafnframt
kauprétt og forkaupsrétt á þeim
hluta Sælingsdalstungu sem skipu-
lagður hefur verið fyrir frístunda-
húsabyggð og golfvöll. Meginhluti
jarðarinnar, þar á meðal allt beiti-
landið, yrði þá áfram í eigu Dala-
byggðar en um það hafði einmitt
verið kurr meðal nágrannabænda
þegar til stóð að selja jörðina.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri segir
að ef þetta gengur eftir fái Dala-
byggð sama söluandvirði fyrir eign-
irnar og áður var áætlað en haldi eft-
ir meginþorra lands Sælingsdals-
tungu. Seljendalán verði á 2. veð-
rétti, á eftir láni Byggðastofnunar,
og mönnum líði ágætlega með þá
stöðu. Hann segist hinsvegar ekkert
vita um niðurstöðuna en tillaga Arn-
arlóns verður lögð fyrir fund sveit-
arstjórnar 24. maí, tveimur dögum
fyrir kosningar. Aðspurður tekur
hann fram að sveitarstjórn hafi unn-
ið að þessu máli í mörg ár og hún
hafi fullt umboð fram að kosningum
og starfi raunar fram að fyrsta fundi
nýrrar sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn hefur áformað að
nota söluandvirði eignanna til að
byggja nýja íþróttaaðstöðu við
grunnskólann í Búðardal en þeim
áformum var frestað þegar menn
töldu að ekki yrði af sölunni.
Vilja undanskilja
Sælingsdalstungu
Ræða tveimur dögum fyrir kosn-
ingar nýjar hugmyndir um sölu Lauga
Morgunblaðið/Eggert
Laugar Útbúin þrautabraut fyrir unglingabúðir í Sælingsdal.