Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
HAFNARFJÖRÐUR
VEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Átta flokkar bjóða fram til bæjar-
stjórnar í Hafnarfirði að þessu sinni
og munu aðeins einu sinni hafa verið
jafn margir. Flokkarnir eru Fram-
sókn og óháðir, Viðreisn, Sjálfstæð-
isflokkurinn, Bæjarlistinn, Miðflokk-
urinn, Píratar, Samfylkingin og
Vinstrihreyfingin – grænt framboð.
Sjálfstæðisflokkurinn og Björt
framtíð mynduðu meirihluta eftir
síðustu kosningar. Ljóst er að breyt-
ing verður þar á því Björt framtíð
býður ekki fram nú. Ef marka má
nýlega skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins í bænum myndu sex flokkar ná
inn manni, allir nema Viðreisn og
Bæjarlistinn.
Umskipti hafa orðið í fjármálum
bæjarins eftir erfiða tíma. Ríflega 1,3
milljarða afgangur varð af rekstr-
inum í fyrra en skuldahlutfallið er
159%, hið hæsta meðal sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu.
Kominn tími á framkvæmdir
Íbúar sem Morgunblaðið ræddi
við telja að bjart sé yfir bænum og
tímabil uppbyggingar fari í hönd.
Eftir að hafa þurft að herða sultar-
ólina sé tímabært að huga að fram-
kvæmdum og löngu tímabæru við-
haldi í Hafnarfirði.
„Mér finnst ánægjulegt að sjá
hversu vel hefur gengið að grynnka á
skuldunum. Það er gömul saga og ný
að ef þú skuldar mikið þá geturðu
ekki gert mikið. Bærinn hefur látið á
sjá á síðustu árum, sem er svo sem
ekkert óeðlilegt, en nú myndi ég vilja
sjá gott og öflugt átak til að koma
honum aftur á sinn stall. Við viljum
fagran og snyrtilegan bæ. Ráðamenn
hafa verið að stæra sig af góðum ár-
angri, nú þarf að sýna bæjarbúum
þetta í verki,“ segir Guðjón Árnason,
iðnrekstrarfræðingur og fyrrverandi
handboltakempa í FH, sem hefur bú-
ið í bænum alla sína tíð.
Skortur á húsnæði
Íbúar í bænum nefndu margir
að mikill skortur væri á húsnæði.
Betra útlit væri í hjúkrunarrýmum
nú þegar verið væri að byggja við
Sólvang en unga fólkið hefði alveg
verið skilið eftir. Ógrynni af ungu
Morgunblaðið/Eggert
Hafnarfjörður Eftir mögur ár hefur fjárhagsstaðan batnað og nú virðist tímabil uppbyggingar fram undan.
Mikil tækifæri í
Notting Hill Íslands
Íbúar í Hafnarfirði telja kominn tíma á viðhald í bænum
„Þarna ætlum við að auka lífsgæði
fólks,“ segir Eva Michelsen, nýráðinn
verkefnastjóri Lífsgæðaseturs í hin-
um fornfræga St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði.
St. Jósefsspítali er eitt af þekktari
kennileitum bæjarins en hefur staðið
auður síðan 2011. Styr hefur staðið
um framtíð hússins en í fyrrasumar
festi bærinn kaup á því og skipaði
starfshóp til að móta framtíðar-
stefnu þess. Ákveðið var að setja á
stofn Lífsgæðasetur, heilsa – sam-
félag – sköpun, þar sem verði fjöl-
breytt og lifandi starfsemi á sviði
heilsuverndar og sköpunar í sam-
ræmi við heilsustefnu Hafnarfjarðar.
St. Jósefsspítali var byggður árið
1926 af St. Jósefssystrum. Arkitekt
hússins, sem er tæpir 3.000 fermetr-
ar, var Guðjón Samúelsson, húsa-
meistari ríkisins.
Eva segir í samtali við Morgun-
blaðið að alls kyns starfsemi geti
rúmast í húsinu.
Flottur hópur sótti um
„Hér gætu til dæmis verið sjúkra-
þjálfarar, jógakennarar, sálfræðingar,
leirlistarfólk, myndlistarfólk og hér
gæti verið heilsuefling fyrir eldri
borgara eða aðra sem þurfa á slíku
að halda. Hugtakið er mjög vítt og
nú er unnið að undirbúningi. Fyrsti
umsóknarfrestur um að koma með
starfsemi í húsið rann út 30. apríl og
það var mjög flottur hópur sem sótti
um. Nú þarf að huga að nýtingu
hússins og sjá hvaða starfsemi pass-
ar hér inn.“
Þessa dagana er unnið að endur-
bótum á húsinu sem hefur drabbast
niður á undanförnum árum. Verið er
að rífa glerhýsi sem var utan á hús-
inu og þjónaði sem anddyri. Þá á að
skipta um alla glugga og þeir nýju
verða í frönskum stíl eins og var í
upphafi. Hugmyndin er að St. Jósefs-
spítali verði færður í upprunalegt
horf eins og unnt er. „Það er áætlað
að taka húsið í notkun í áföngum.
Við vitum ekki hvenær nákvæmlega
en vonandi verður fyrsta fólkið kom-
ið inn einhvern tímann á þessu ári.“
Eva starfaði áður sem fram-
kvæmdastjóri Húss sjávarklasans og
hún kveðst vonast eftir að viðlíka
stemning myndist í St. Jósefsspítala
og gerði þar.
„Þar var ótrúleg samstaða. Ólík-
legustu fyrirtæki og aðilar hófu að
vinna saman og það getur vonandi
gerst hér. Ef til vill kemur líka ein-
hver frumkvöðlastarfsemi hingað, að
hér verði til nýjar hugmyndir, ný
verkefni og nýtt samstarf.“
Hægt er að fylgjast með fram-
vindu verksins á heimasíðunni
hafnarfjordur.is/stjo. hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Nýtt upphaf St. Jósefsspítali verður
Lífsgæðasetur undir stjórn Evu.
St. Jósefsspítali fær nýtt
hlutverk sem Lífsgæðasetur
„Við fengum þetta húsnæði fyrir
um tveim vikum síðan og þeir hafa
verið duglegir við að setja upp
veggi og undirbúa allt,“ segir
Hörður Sturluson, verkefnastjóri
hjá Rauða krossinum í Hafnarfirði.
Eins og Morgunblaðið hefur áð-
ur greint frá var í byrjun árs sett á
fót verkefnið Karlar í skúrum. Það
er að erlendri fyrirmynd og snýst
um að veita eldri mönnum tækifæri
til að sinna hugðarefnum sínum og
um leið að koma í veg fyrir fé-
lagslega einangrun. Fjórtán karlar
eru skráðir til leiks og hafa beðið
eftir hentugu húsnæði síðan í byrj-
un árs. Nú hafa þeir fengið inni að
Helluhrauni 8.
Þegar Morgunblaðið heilsaði
upp á karlana í vikunni lá vel á
þeim. Þeir sögðu stefnuna vera að
menn gætu sinnt listmálun, hnífa-
smíði, skartgripasmíði, tálgun og
ljósmyndun í „skúrnum“ en reynt
sé að skapa aðstæður fyrir allar
hugmyndir. Félagslegi þátturinn
vegur þungt og þeir sögðu einróma
að kaffitíminn og spjallið í honum
Kaffitíminn er heil-
agur hjá körlunum
14 karlar hittast nú í „skúrnum“Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Einfaldlega
hollt og gott
snakk