Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Karl Bretaprins leiðir Meghan
Markle síðustu metrana upp að alt-
arinu í dag þegar hún gengur að eiga
son hans, Harry prins. Til stóð að
faðir brúðarinnar, Thomas Markle,
leiddi hana inn kirkjugólfið en til-
kynnt var að hann gæti það ekki
vegna þess að hann hefði þurft að
fara í hjartaaðgerð.
Fyrr í vikunni var skýrt frá því að
Markle hefði sviðsett myndatöku af
sjálfum sér í samráði við ljósmynd-
ara slúðurtímarits og hann sagðist
skammast sín svo mikið að hann ætl-
aði ekki að fara í brúðkaup dóttur
sinnar. Hermt er að hann hafi fengið
jafnvirði rúmra 14 milljóna króna
fyrir sviðsetninguna. Fréttavefurinn
TMZ kveðst hafa heimildir fyrir því
að Markle hafi samþykkt myndatök-
una með það fyrir augum að bæta
ímynd sína, koma fram „sem ástrík-
ur faðir að búa sig undir brúðkaup
dóttur sinnar, en ekki sem ómann-
blendin fyllibytta“.
Fjölmiðlar í Bretlandi hafa enn-
fremur skýrt frá því að Meghan hafi
ekki boðið hálfbróður sínum og hálf-
systur í brúðkaupið. Hermt er að
hálfsystirin sé á sjúkrahúsi eftir að
hafa lent í bílslysi á flótta undan ljós-
myndurum slúðurblaða. Þótt hálf-
bróðurnum hafi ekki verið boðið í
brúðkaupið er hann sagður hafast
við í grennd við Windsor-kastala þar
sem brúðhjónin verða gefin saman.
Hirðinni brást bogalistin
Allur þessi vandræðagangur virð-
ist hafa komið hirðinni í opna
skjöldu og bresk dagblöð hafa gagn-
rýnt starfsmenn Kensington-hallar,
bústaðar prinsins, fyrir að hafa ekki
komið í veg fyrir „Markle-klúðrið“,
eins og það er kallað.
„Starfsmönnum Kensington-
hallar brást bogalistin í samskipt-
unum við tengdafjölskylduna,“ hefur
fréttaveitan AFP eftir blaðamann-
inum og rithöfundinum Penny Jun-
or, sem hefur skrifað bækur um ævi
Karls krónprins, Díönu prinsessu,
Vilhjálms prins og Harry. „Tengda-
fjölskyldan er orðin stærri frétt en
sjálft brúðkaupið og það er sorg-
legt.“ Junor segir að Meghan sé vön
því að vera í sviðsljósi fjölmiðla en
foreldrar hennar og systkin ekki.
„Hirðin í Kensington-höll hefði átt
að senda einhvern yfir Atlantshafið
til að hjálpa þeim, veita þeim ráðgjöf
og stuðning, búa þau undir brúð-
kaupið og allt sem því fylgir.“
Hermt er að Meghan taki það
nærri sér að faðir hennar skuli ekki
vera viðstaddur brúðkaupið. Í til-
kynningu frá Kensington-höll sagði í
gær að brúðurin hefði beðið Karl
krónprins um að ganga með sér upp
að altarinu og það væri honum sönn
gleði að geta boðið hana velkomna í
fjölskylduna með þeim hætti. Skýrt
var þó frá því að Meghan myndi
ganga ein inn kirkjugólfið, en Karl
tæki þar á móti henni og leiddi hana
síðustu metrana að altarinu.
Ennfremur var skýrt frá því að afi
brúðgumans, Filippus drottningar-
maður, sem er 96 ára, yrði við-
staddur brúðkaupið þótt hann hefði
gengist undir skurðaðgerð á mjöðm
nýlega. bogi@mbl.is
Karl leiðir Markle upp að altarinu
Vandræðagangur í tengslum við fjölskyldu brúðarinnar skyggði á undirbún-
ing brúðkaups Harrys prins og Meghan Markle Bresk blöð gagnrýna hirðina
Windsor-kastali
LONDON
3
Brúðkaup íWindsor
Trúlofuðust
Nóv. Harry staðfesti
samband þeirra
Fóru saman í náttúru-
skoðunarferð um
Botsvana
Júlí
Ágúst
2016
2017
Leiðir þeirra lágu
saman í matarboði
sameiginlegra vina í NewYork
2011
2000-2011
Giftist kvikmynda-
framleiðandanum
Trevor Engelson
Fékk hlutverk
Rachel Zane í
lögfræðidramanu
Suits
15. sept. 1984
Fæddist í London
1997
Móðir
hans,
Díana, dó
í bílslysi
2004
Starfaði á heimili
fyrir munaðarlaus
börn í Lesótó
2005-2006
Var í herþjálfun
í Sandhurst
Olli uppnámi
með því að
klæðast nasista-
búningi í veislu vinar síns
Jan. 2005
2007 og 2012
Gegndi
herþjónustu
í Afganistan
Kom á fót íþróttakeppni,
Invictus-leikunum,
fyrir fatlaða hermenn
2014
2013
Skildi
Starfaði m.a. með
Jafnréttisstofnun
Sameinuðu þjóðanna
4. ágúst 1981
Móðir hennar er jógakennari og
félagsráðgjafi af afrískum uppruna
Faðir hennar var ljósamaður
við upptöku sjónvarpsþátta
Fæddist í Los Angeles
Meghan tilkynnti að
hún hefði látið af störfum sem leikkona
Vann um tíma við
skrautskrift áður en hún fékk
hlutverk í sjónvarpsþáttum
Lauk BA-námi í
sviðslistum og
alþjóðasamskiptum
árið 2003
Stofnaði lífstílssvefsíðu
sem varð vinsæl
Nóv.
19. maí 2018
25 m
1
2
Frogmore
House*
Brúðhjónunum
ekið í opnum
vagni um
bæinn
Hjónavígsla
Formleg
veisla í boði
drottningar
Veisla fyrir fjöl-
skyldu og vini í boði
Karls Bretaprins
BRETLAND
Hádegi að staðartíma
Kl. 1 e.h.
1.30 e.h. Kvöldið
*Um
800 m frá
Windsor-
kastala
4
Harry
prins
Meghan
Markle
Veislu-
salurinn
Castl
e Hil
l Long
W
alk
Kapella heilags Georgs
Að minnsta kosti tíu manns biðu
bana í skotárás í framhaldsskóla í
bænum Santa Fe í Texas í gær.
Lögregluforingi á staðnum sagði að
níu nemendur skólans og kennari
hefðu látið lífið í skotárásinni.
Nokkrir særðust, þeirra á meðal
tveir lögreglumenn. Rörsprengjur
fundust einnig á staðnum.
Meintur árásarmaður, tánings-
piltur, var handtekinn og lögreglan
yfirheyrði annan ungling vegna
árásarinnar.
Hermt er að árásarmaðurinn
hafi hleypt af byssu í skólanum
klukkan hálf átta um morguninn að
staðartíma þegar kennsla var að
hefjast.
Þetta var 22. skotárásin í banda-
rískum skóla á árinu og sú þriðja á
átta dögum. Starfsmaður skóla í
Illinois skaut á fyrrverandi nem-
anda sem hleypti af byssu nálægt
hópi nema sem voru á útskriftaræf-
ingu á miðvikudaginn var. Byssu-
maðurinn særðist og hefur verið
ákærður fyrir skotárás. Fjórtán
ára piltur hóf skothríð í skóla í
bænum Palmdale í Kaliforníu á
föstudaginn var og einn nemandi
særðist. Árásarmaðurinn var
hnepptur í varðhald og ákærður
fyrir morðtilraun.
Sautján manns biðu bana í
mannskæðustu skotárás ársins sem
var gerð í framhaldsskóla í Flórída
14. febrúar. Hún kynti undir um-
ræðunni í Bandaríkjunum um hvort
bregðast ætti við tíðum skotárásum
í landinu með því að lögfesta nýjar
takmarkanir á byssueign. Donald
Trump Bandaríkjaforseti boðaði að
kennarar og aðrir starfsmenn skóla
yrðu þjálfaðir og vopnaðir í því
skyni að koma í veg fyrir fjölda-
morð en sú lausn hefur mælst mjög
misjafnlega fyrir.
Tíu manns
skotnir til bana
Enn ein árásin í bandarískum skóla
Houston
Santa Fe
Dallas
200 km
MEXÍKÓ
NÝJA-
MEXÍKÓ
OKLAHOMA
TEXAS
LO
U
ISIA
N
A
BANDARÍKIN
Heilbrigðisyfir-
völd í Austur-
Kongó juku í gær
viðbúnað sinn
vegna ebólu-
faraldurs í sam-
starfi við al-
þjóðastofnanir
og grannríki.
Hermt er að 45
manns hafi smit-
ast af sjúkdómn-
um og 25 þeirra dáið. Nefnd sér-
fræðinga Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO) kom
saman í gær til að ræða málið og
komst að þeirri niðurstöðu að ekki
væri ástæða til að skilgreina farald-
urinn sem alþjóðlega lýðheilsuógn
eins og staðan er núna.
AUSTUR-KONGÓ
Dauðsföll vegna
ebólufaraldurs
Læknir í
Austur-Kongó.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Tryggingastofnun
Laugavegi 114 | 105 Reykjavík
Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is
P
IPA
R
\TB
W
A
-
S
ÍA
Niðurstöður endurreiknings greiðslna ársins 2017
verða birtar á Mínum síðum 22. maí.
Nánar á tr.is
Endurreikningur
greiðslna
ársins 2017