Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 38
38 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
AKUREYRARKIRKJA | Laugardagur 19. maí.
Fermingarmessa kl. 10.30. Prestar eru Svavar
Alfreð Jónsson og Hildur Eir Bolladóttir. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór
Ingi Jónsson.
Hvítasunnudagur 20. maí. Fermingarmessa kl.
10.30 og 13. Prestar eru Svavar Alfreð Jónsson
og Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Guðsþjónusta á Lögmannshlíð kl. 15.
ÁRBÆJARKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl.
11. Séra Þór Hauksson þjónar fyrir altari og pré-
dikar. Krisztina Kalló Szklenár organisti. Kirkju-
kórinn leiðir safnaðarsöng. Arnar Jónsson syng-
ur einsöng. Barn borið til skírnar.
Sunnudagaskólinn kominn í sumarfrí.
Annar dagur hvítasunnu: Fermingarmessa kl.
11. í Árbæjarsafnkirkju.
ÁSKIRKJA | Messa og ferming kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt séra Bryndísi Möllu Elí-
dóttur. Kór Áskirkju syngur. Orgelleikari Bjartur
Logi Guðnason.
Sunnudaginn 27. maí verður aðal-
safnaðarfundur Ássóknar 2018 haldinn í safn-
aðarheimili Áskirkju eftir messu, sem hefst kl.
11.
ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Báðir kórar kirkjunnar syngja, kirkju-
kórinn og barnakórinn, undir stjórn Keiths
Reed. Prestur er Kjartan Jónsson. Hressing og
samfélag á eftir.
BORGARPRESTAKALL | Hátíðarguðsþjón-
usta í Borgarneskirkju kl. 11. Hátíðarguðsþjón-
usta í Borgarkirkju kl. 14. Annar dagur hvíta-
sunnu. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 16.30
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Prestur Magnús Björn
Björnsson. Kór Breiðholtskirkju undir stjórn Arn-
ar Magnússonar, organista, syngur.
BÚSTAÐAKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl.
11. Kór Bústaðakirkju og kantor Jónas Þórir
annast tónlist. Messuþjónar aðstoða. Prestur
Pálmi Matthíasson. Heitt á könnunni eftir
messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Gunnar Sigurjónsson. Organisti Sólveig
Sigríður Einarsdóttir. Vortónleikar Kórs Digra-
neskirkju. Samstarf Digranes- og Hjallasóknar.
Veitingar á vegum Digranessóknar í safnaðar-
sal að messu lokinni.
Annar dagur hvítasunnu. Mótorhjólamessa.
Prestur Gunnar Sigurjónsson. Tónleikar kl. 19.
Messa kl. 20. Vöfflusala til styrktar Hjálp-
arstarfi kirkjunnar.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Fermingarmessa kl. 11, séra
Sveinn Valgeirsson þjónar, Dómkórinn og org-
anisti er Kári Þormar. Bílastæði við Alþingi.
Æðruleysismessa klukkan 20. Séra Sveinn Val-
geirsson, séra Fritz Már Berndsen og séra
Díana Ósk Óskarsdóttir leiða stundina. Kristján
Hrannar leikur á flygilinn.
Mánudagur 21. maí. Prestsvígsla kl. 11.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Fermingarmessur kl.
10.30 og kl. 13. Nöfn fermingarbarna eru á
vefnum egilsstadakirkja.is. Kór Egilsstaða-
kirkju syngur, organisti Torvald Gjerde. Með-
hjálpari Ásta Sigfúsdóttir. Sr. Þorgeir Arason.
FELLA- og Hólakirkja | Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar
og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Reynir Þor-
mar leikur á saxófón. Meðhjálpari Kristín Ing-
ólfsdóttir. Kaffi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safn-
aðarprestur þjónar fyrir altari. Hljómsveitin
Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða
sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni organista.
GLERÁRKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju
leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organ-
ista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er
Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður í safn-
aðarheimili kl. 10 og síðan bænastund í kap-
ellu. Messa kl. 11. Messuhópur þjónar ásamt
nokkrum fermingarbörnum vorsins og sr. Maríu
Ágústsdóttur. Samskot eru tekin til Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga. Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 13 í Mörkinni við Suðurlandsbraut.
Ásta Haraldsdóttir leikur undir almennan söng
og stjórnar Kirkjukór Grensáskirkju í báðum at-
höfnum.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi
presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Séra
Jakob Ágúst Hjálmarsson þjónar. Grundarkór-
inn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org-
anista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming-
arguðsþjónusta kl. 10.30. Prestur Leifur Ragn-
ar Jónsson. Organisti Hrönn Helgadóttir og kór
Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari Guðný Ara-
dóttir og kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 11. Ferming. Sr. Þórhildur Ólafs predikar og
þjónar ásamt sr. Jóni Helga Þórarinssyni. Org-
anisti Guðmundur Sigurðsson. Félagar í Bar-
börukórnum syngja.
HALLGRÍMSKIRKJA | Hvítasunnudagur.
Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og messuþjónum.
Mótettukórinn syngur undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar, organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son. Opnun myndlistarsýningar Ingu Sigríðar
Ragnarsdóttur að lokinni messu.
Annar dagur hvítasunnu. Messa kl. 11. Sr. Sig-
urður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettu-
kórnum syngja, organisti er Hörður Áskelsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Háteigs-
kirkju leiðir söng. Jón Guðmundsson leikur á
þverflautu. Organisti Steinar Logi Helgason.
Prestur Eiríkur Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Tónlistarmessa
Kammerkórs Digraneskirkju kl. 11. Sr. Gunnar
og Sísa leiða helgihaldið. Messan er samstarf
Digranes- og Hjallakirkju.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Ferming-
arguðsþjónusta kl. 13. Kór Hólaneskirkju syng-
ur við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur.
Meðhjálpari Steindór Runiberg Haraldsson.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir og Kristín Leifs
Árnadóttir þjóna fyrir altari.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Ferming-
armessa kl. 13.30. Prestur Ninna Sif Svav-
arsdóttir, organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Söng-
kór Villingaholts- og Hraungerðissókna syngur.
HVALSNESKIRKJA | Fermingarmessa kl. 14.
Sjá mbl.is/ferming.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Samkoma á spænsku kl. 13. Reu-
niónes en español. Samkoma á ensku kl. 14.
English speaking service.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaupmannahöfn |
Annar dagur hvítasunnu. Íslensk hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. í Skt. Pauls kirkju. Kammerkór-
inn Staka syngur. Ferming. Orgelleik annast
Sólveig Anna Aradóttir. Kvennakórinn Dóttir
syngur. Altarisganga. Prestur Ágúst Einarsson.
Eftir guðsþjónustu er messukaffi í Jónshúsi í
umsjón Kammerkórsins Stöku.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Hátíðarguðs-
þjónusta í Västra Frölundakirkju kl. 14. Íslenski
kórinn í Gautaborg syngur. Orgelleik og kór-
stjórn annast Lisa Fröberg. Ferming. Söngur og
gítarleikur: Stella Marín Guðmundsdóttir. Ingvar
og Júlíus syngja. Altarisganga. Prestur Ágúst
Einarsson. Barnastund, smábarnahorn. Kaffi
eftir guðsþjónustu.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnakirkja og al-
menn samkoma kl. 13. Ragnar Schram prédik-
ar. Kaffi og samfélag eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Messuþjónar eru Guðrún
Hákonardóttir og Stefán Jónsson. Kór Keflavík-
urkirkju syngur undir stjórn Esterar Ólafsdóttur
organista. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 12.20.
KÓPAVOGSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11.
Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur
undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar.
Tveir drengir verða fermdir í messunni.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur
og sr. Jóhanna Gísladóttir þjóna. Organisti er
Magnús Ragnarsson. Félagar úr Kór Langholts-
kirkju leiða safnaðarsöng. Tólf börn verða fermd
í athöfninni. Kirkjuvörður og messuþjónar að-
stoða við helgihaldið. Sögustund á sama tíma.
LAUGARNESKIRKJA | Hvítasunnudagur.
Messa kl. 11. Kór Laugarneskirkju og Elísabet
Þórðardóttir organisti. Sr. Davíð Þór Jónsson
þjónar fyrir altari og prédikar. Kirkjukaffi á eftir.
Guðsþjónusta kl. 13 Betri stofunni, Hátúni 12.
Sr. Davíð Þór Jónsson og Elísabet Þórðardóttir
organisti.
Þriðjudagur 22. maí. Aðalsafnaðarfundur Laug-
arnessóknar kl. 17.30.
Fimmtudagur 24. maí. Vortónleikar Kóra Laug-
arneskirkju og Grindavíkurkirkju kl. 20. Stjórn-
endur: Elísabet Þórðardóttir og Elsa Rut Kára-
dóttir.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20,
Rokkkór Íslands syngur undir stjórn Matthías-
ar Baldurssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynj-
arsson þjónar.
Annar dagur hvítasunnu. Tónleikar Kórs Linda-
kirkju kl. 20. Miðaverð 2.000 kr. Miðar seldir
við innganginn.
NESKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.
Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms
Þórhallssonar. Prestur Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir. Að guðsþjónustu lokinni verður
opnuð sýningin The Maps of Things á ljós-
myndum Daniels Reuter í safnaðarheimilinu.
Léttar veitingar. Annar dagur hvítasunnu. Sam-
vera kl. 18 í garði kirkjunnar. Ávaxtatré gróður-
sett. Kór Neskirkju syngur sumarsöngva og
vorsálma undir stjórn Steingríms Þórhalls-
sonar. Sumarlegar veitingar. Sr. Steinunn Arn-
þrúður Björnsdóttir leiðir stundina.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Annar dagur hvíta-
sunnu. Messa kl. 20. Sr. Pétur Þorsteinsson
predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Fjár-
laganefnd leiða söng og svör undir stjórn org-
anistans Árna Heiðars Karlssonar.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðumaður sr. Ragnar Gunnarsson.
Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11. Há-
tíðarsöngvar sungnir. Sr. Ninna Sif Svav-
arsdóttir þjónar, kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Edit Molnár organista.
SELTJARNARNESKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjón-
ar. Friðrik Vignir Stefánsson leikur á orgel. Fé-
lagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn.
Mánudagur 21. maí. Dagskrá í kirkjunni kl. 16
helguð minningu Sveinbjörns Sveinbjörns-
sonar tónskálds.
Miðvikudagur 23. maí. Kyrrðarstund í kirkjunni
kl. 12. Léttar veitingar eftir athöfn.
Fimmtudagur 24. maí. Vilhjálmur Bjarnason
lektor fjallar kl. 20 um Bessastaði, eigendur
og ábúendur.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 11. Kór Seyðisfjarðarkirkju, organisti Sig-
urbjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún
Tryggvadóttir þjónar og meðhjálpari er Jóhann
Grétar Einarsson. Kaffi í safnaðarheimili eftir
messu.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11.
VIÐEYJARKIRKJA | Messa kl. 14. Sveinn
Valgeirsson dómkirkjuprestur þjónar. Kári Þor-
mar organisti og félagar úr Dómkórnum
syngja.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa | Mánudag-
ur 21. maí. Fermingarmessa kl. 11. Prestur
Ninna Sif Svavarsdóttir, söngkór Villingaholts-
og Hraungerðissókna syngur undir stjórn Inga
Heiðmars Jónssonar organista.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarmessa kl.11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari og pre-
dikar. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jó-
hanns Baldvinssonar organista. Messukaffi.
Sjá gardasokn.is
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Hátíð-
arhelgistund kl. 20. Helga Þórdís Guðmunds-
dóttir spilar og leiðir söng. Prestur Stefán Már
Gunnlaugsson.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 11.
ÞINGMÚLAKIRKJA | Fermingarmessa kl.
16. Kór Vallaness- og Þingmúlakirkna leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Organisti er Torvald
Gjerde. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
ÞINGVALLAKIRKJA | Hátíðarmessa. Krist-
ján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir alt-
ari. Guðmundur Vilhjálmsson leikur á orgelið
og leiðir almennan söng.
ÞORLÁKSKIRKJA | Fermingarmessa kl.
13.30. Edit Anna Molnar. Kór Þorlákskirkju.
Altarisþjónustuna annast Guðmundur Brynj-
ólfsson og Baldur Kristjánsson.
Orð dagsins: Hver sem
elskar mig.
(Jóh. 14)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Skeggjastaðakirkja
Þegar ársreikningur
Reykjavíkurborgar fyr-
ir árið 2017 er skoðaður
kemur í ljós að fjár-
hagur Reykjavík-
urborgar er mjög
traustur. Rekstur sam-
stæðu Reykjavík-
urborgar, þ.e. borg-
arsjóðs og fyrirtækja í
eigu borgarinnar (t.d.
Orkuveitan og Faxa-
flóahafnir), gekk mjög vel á síðasta
ári og skilaði miklum hagnaði. Borg-
arsjóður sem heldur utan um rekstur
borgarinnar skilaði afgangi á fimmta
milljarð. Eiginfjárhlutfall samstæð-
unnar hefur vaxið í jákvæða átt, úr
30% í árslok 2010 í um 50% við síðustu
áramót, þar af hefur eiginfjárhlut-
fallið vaxið um 6% á kjörtímabilinu.
Á kjörtímabilinu hefur Reykjavík-
urborg staðið fyrir þróttmikilli starf-
semi eins og að reisa skóla og íþrótta-
mannvirki, sinnt viðhaldi og stuðlað
að kröftugri atvinnustarfsemi m.a.
með úthlutun lóða. Allt kjörtímabilið
hefur þess verið gætt að treysta fjár-
málastjórnina til að veita enn betri
þjónustu. Það svigrúm sem hefur
skapast með traustari fjármálastjórn
hefur verið notað m.a. með að lækka
skuldir, lækka gjaldskrár (eins og
fasteignagjöld) um leið og meira hef-
ur verið veitt til málaflokka eins og í
velferðarmál og í skóla- og frístunda-
mál. Sem dæmi má nefna að Reykja-
víkurborg leggur hlutfallslega miklu
meira til velferðarmála en nágranna-
sveitarfélög borgarinnar. Um 21% af
útgjöldum Reykjavíkurborgar fer til
velferðarmála, en sama
hlutfall hjá Kópavogs-
bæ er 15% og hjá
Garðabæ er það 13%.
Einar af mikilvæg-
ustu skuldbindingum
sveitarfélaga og fara
vaxandi eru lífeyris-
skuldbindingar.
Reykjavíkurborg hefur
gætt þess að standa að
fullu við allar lífeyr-
isskuldbindingar sínar,
ólíkt t.d. hvernig málum
er háttað hjá ríkinu og sveitarfélög-
unum í Kraganum. Sem dæmi má
nefna að Reykjavíkurborg er eina
sveitarfélagið sem hefur gert upp
áfallnar skuldbindingar þar á meðal
framtíðarskuldbindingar við Lífeyr-
issjóðinn Brú, en á síðasta ári greiddi
borgin lífeyrissjóðnum um 15 millj-
arða.
Í stuttu máli er fjárhagur Reykja-
víkurborgar traustur. Borgin hefur
lækkað skuldir undanfarin ár, lækkað
gjaldskrár, ýtt undir kröftuga at-
vinnustarfsemi og reksturinn hefur
skilað afgangi. Þetta eru allt skýr
merki um góða fjármálastjórn.
Traust fjármála-
stjórn hjá
Reykjavíkurborg
Eftir Gunnar Alex-
ander Ólafsson
Gunnar Alexander
Ólafsson
» Þegar ársreikningur
Reykjavíkurborgar
fyrir árið 2017 er skoð-
aður kemur í ljós að
fjárhagur Reykjavík-
urborgar er mjög
traustur.
Höfundur er heilsuhagfræðingur.
Ég kenni í því sögu-
fræga húsi Brúar-
landi, sem er útibú frá
Varmárskóla í Mos-
fellsbæ. Húsið er ekki
einungis fallegt held-
ur ríkir þar frábær
andi sem mér hefur
fundist vera forrétt-
indi að starfa í.
Ástæðan er einfald-
lega sú að einingin
okkar er lítil og álagið
því mun minna á okkur starfsfólk-
inu en í mörgum stærri einingum.
Ég er t.d. með 13 frábæra nem-
endur í umsjónarkennslu, en það
eru yfirleitt um og yfir 20 nem-
endur í hverjum bekk. Núna undir
árslok mun einingin okkar flytja í
nýjan og glæsilegan skóla í Helga-
fellslandinu. Skólinn mun stækka,
það mun fjölga í hópnum, bæði
nemendum og starfsfólki, og álag
mun aukast.
Eftir stendur þessi frábæra
bygging með mikla möguleika til að
þjónusta skólakerfið í Mosfellsbæ.
Við í Framsókn viljum árið 2019
nýta húsnæðið Brúarland fyrir
nemendur með alvarlegan hegð-
unar-, tilfinninga-, félags- og aðlög-
unarvanda svipað því sem kennarar
Hlíðarskóla á Akureyri eru að gera.
Við teljum að þetta úrræði geti
skapað jákvæða brú á milli skóla og
heimilis og létt álagið innan skól-
anna. Skólinn yrði hugsaður sem
tímabundið úrræði sem tæki við
þegar allt hefði verið reynt til
þrautar til að mæta þörfum nem-
andans í sínum heima-
skóla. Þar myndi þver-
faglegt teymi starfa
með það að markmiði
að hjálpa nemandanum
að vinna úr sínum
vanda. Þar myndu
heimilið, heimaskóli og
skólinn í Brúarlandi
vinna saman að því að
aðlaga barnið sem fyrst
aftur inn í sinn bekk í
samstarfi við umsjón-
arkennara barnsins.
Úrræðið myndi nýtast
öllum skólum Mosfellsbæjar.
Sérúrræði í Brúarlandi mun því
koma til með að létta álagið á skól-
unum, starfsfólki og börnum. Nán-
ast engin úrræði hafa verið í boði
fyrir börn með mikinn vanda. Mik-
ilvægt er að huga að öllu starfsum-
hverfi starfsmanna og barna í skól-
um og minnka álag og áreiti.
Hugmyndafræðin „skóli án að-
greiningar“ er flott á blaði en hefur
ekki verið fylgt inn í skólakerfið
með því fjármagni og sérþekkingu
sem þarf til og því þarf að finna ráð
sem virka. Við í Framsókn-
arflokknum teljum að lausnin í Brú-
arlandi sé svarið við því.
Sértækt úrræði fyrir
börn með hegðunar-
og tilfinningavanda
Eftir Þorbjörgu
Sólbjartsdóttur
Þorbjörg
Sólbjartsdóttir
»Nánast engin
úrræði hafa verið
í boði fyrir börn með
mikinn vanda.
Höfundur er grunnskólakennari og
íþrótta- og heilsufræðingur. Skipar 2.
sæti í Framsókn í Mosfellsbæ.