Bókasafnið - 01.07.2018, Page 5
Bókasafnið 42. árg – 2018 5
Árið 2018 eru liðin 200 ár frá stofnun Lands-bókasafnsins. Safnið er í núverandi mynd, Lands-bókasafn Íslands - Háskólabókasafn, forystusafn
íslenskra bókasafna samkvæmt Bókasafnalögum. Þess
vegna vildi ritnefnd gera starfsemi safnsins góð skil í þessu
tölublaði. Forsíðumynd blaðsins er úr safninu og hér á eftir
fylgir viðtal við landsbókavörð, þar sem farið var yfi r bæði
starfsemi Landsbókasafnins og framtíðarsýn þess, en einnig
bókasafnaþjónustu í landinu, hvað ber hæst þar og hvað
bíður í nánustu framtíð.
Starf Upplýsingar er umfj öllunarefni í tveimur greinum.
Annars vegar er grein um málþing haldið í nóvember 2017
um samstarf og samstöðu, sem er innleiðing að greinum um
slíkt samstarf hjá almenningsbókasöfnum, framhaldsskóla-
bókasöfnum, háskólabókasöfnum og bókasöfnum grunn-
skóla. Einnig er í blaðinu grein um samstarf skólabókasafna
í Hafnarfi rði. Hins vegar er grein um starf stjórnar Upp-
lýsingar 2016-2018.
Þá fylgja greinar um opinn aðgang, um hégómaútgáfur og
svikamyllur í vísindalegri útgáfu, um hillur fyrir lesefni á
Akureyri sem hvetja til lestrar, um innleiðingu RDA skrán-
ingarreglanna og um Slamit. Þá eru tvær greinar um starf-
semi Rafbókasafnsins, önnur séð frá sjónarhóli bókasafns
sem miðlar efni þar og hin um tæknilegri þætti þess. Þá er
grein um hlaðvarp Borgarbókasafns.
Tvær greinar fj alla um skjalastjórn, annars vegar grein um
2. útgáfu staðalsins ISO 15489 um upplýsingar, skjalfestu
og skjalastjórn, og hins vegar um skipulegt eftirlit Þjóð-
skjalasafns.
Þá fylgir grein um þekkingarmiðstöð Aaltoháskóla sem er
ríkulega myndskreytt og sýnir hvernig hægt er að setja upp
aðlaðandi og hvetjandi námsumhverfi . Þá er grein um Bláa
skjöldinn, alþjóðlegt verkefni til að vernda skjöl og önnur
gögn frá utanaðkomandi hættu.
Við sláum botninn í þetta tölublað með sex stuttum
greinum eða tölvupóstviðtölum við nemendur sem nýlega
hafa lokið námi, og að okkar mati fengist við áhugaverð við-
fangsefni í lokaverkefnum sínum. Þetta er gert til að kynna
niðurstöður þessara verkefna fyrir fagstéttunum hér á landi.
Þetta mat okkar snýst engan veginn um gæði lokaverkefna,
sem er í höndum annarra. Þar réð eingöngu viðfangsefnið
og hvort okkur þætti það áhugavert að kynna betur fyrir
öðrum. Um þessar mundir er reyndar fremur einfalt fyrir
fólk að fl etta upp lokaverkefnum í Skemmunni. Sum þeirra
eru lokuð í einhvern tíma en fl est eru opin afl estrar og út-
drættir þeirra eru í öllum tilfellum opnir.
Tvö úr ritnefnd hafa nú starfað þar í þrjú ár og þrjár í tvö
ár. Nú er svo komið að við teljum nóg unnið og hyggjumst
öll hætta þessum störfum. Það eru nokkur vonbrigði að
sjá hversu litlar undirtektir hafa verið að fá fólk til þessara
starfa á vetri komanda. Það er hlutverk þeirra sem eru í
þessari nefnd að ákveða hvernig útgáfu skal háttað og ráða
þannig hvort efni verður gefi ð út á vef Bókasafnsins, sem er
undirvefur Upplýsingar, eða á prenti. Áherslur stéttarinnar
hafa verið að gefa blaðið út á prenti sem felur í sér meiri
vinnu fyrir þá sem gefa blaðið út og hverjir sem gefa kost á
sér verða að takast á við það. Það er von okkar að áhuginn
á þessari vinnu glæðist, en um leið verður að horfast í augu
við að þetta veldur miklu álagi við hlið fullrar vinnu. Við
árnum þeim sem gefa kost á sér í nefndina allra heilla.
Um blaðið
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
One býður hagkvæma heildarlausn í skjalamálum
með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi.
Vefgátt fyrir íbúa
Íbúalýðræði, þátttökulýðræði og samráð
Þróunarstefna OneSystems styður Moreq2, kröfur evrópulanda um gagnsæi, rekjaleika og öryggi.
Áherslur íslenskra sveitarfélaga eru að færast í átt að
íbúalýðræði, að virkja almenning til samráðs og
þátttöku í stjórnmálum. Tilgangurinn er að brúa
bilið á milli kjörinna fulltrúa og íbúa.
Með íbúagátt frá OneSystems er hægt að leggja mál
fyrir íbúa til samráðs og kosninga og auðvelda
aðgengi að kjörnum fulltrúum og umsóknum fyrir
þjónustu í sveitarfélaginu.
Citizen
Þjón
us
ta
vi
ð
íbú
a a
llan sólarhringinn alla daga ársins