Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 10

Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 10
10 Bókasafnið efnið höfðar til mjög margra. Söfn sem þessi eru afsprengi Open Access hreyfingarinnar, þó það hafi kannski ekki almennt verið vitað þegar Skemmunni var komið á fót. Þegar íslenskir vísindamenn tóku að birta í opnum aðgangi, var farið að huga að því hvar ætti að vista greinarnar. Margir háskólar erlendis eru með þetta allt í einu kerfi, en af því að Skemman var rekin á landsvísu, þá þótti eðlilegra að nemendaritgerðirnar væru á einum stað, en doktorsritgerðir og ritrýndar greinar á öðrum stað, í Opnum vísindum, sem einnig er á landsvísu. Næsta skref er svo að huga að varð- veislu opinna rannsóknargagna, sem verða til í rannsóknun- um og aðgengi að þeim. Þá hefur í mörg ár staðið yfir umræða og vinna um svo- kallað CRIS kerfi (Current Research Information System). Erlendir háskólar nota slík kerfi til að reka allt sitt rann- sóknarumhverfi. Upplýsingum um feril rannsóknarverkefna er haldið saman í CRIS kerfum frá upphafi, frá því einhver fær hugmynd og sækir um styrk til þess að framkvæma hana. Það er hægt að fylgja umsókninni eftir og ef hún fær framgang þá þarf að ráða inn fólk, kaupa efni og önnur aðföng og á endanum eru birtar niðurstöður. Niðurstöðurn- ar, það er greinin, bókarkaflinn, fyrirlesturinn eða hvaðeina sem kemur út úr rannsókninni fer síðan í varðveislusafnið Opin vísindi, sem tengist CRIS kerfinu. Í Opin vísindi fara birtingar, en CRIS kerfin halda utan um allt annað. Unnið hefur verið að því í nokkur ár í mennta- og menningarmála- ráðuneytinu að kaupa CRIS kerfi fyrir allt landið. Ég hef sóst eftir því að umsjón með kerfinu verði í safninu. Þarna verða til ný störf fyrir bókasafnsfræðinga, nýir möguleikar og ný tækifæri til að vera þátttakendur í rannsóknaheimin- um og veita sérfræðiþekkingu, til dæmis um opinn aðgang, um útgáfu og birtingu greina í opnum aðgangi, Orcid núm- er, DOI númer, efnisorð og svo framvegis. Þegar þessi opni aðgangur er kominn, þarf þá fólk meiri aðstoð? Við sjáum að þetta umhverfi er talsvert flókið. Fræðimenn og rannsakendur gefa sér ekki tíma til að sökkva sér ofan í öll tilbrigði opins aðgangs, fyrir þeim er aðalatriðið að fá greinina sína birta á góðum stað. Nú er kominn starfsmað- ur í safnið sem hefur umsjón með Opnum vísindum og í kringum hann verða til alls konar verkefni og starfsþættir sem eiga eftir að eflast. Sérðu þarna nýjan vettvang fyrir Landsbókasafnið eða fyrir upplýsingafræðinga? Já, hvort tveggja, og ég tel að upplýsingafræðingar sem fag- stétt ættu að einbeita sér að þessu sviði. Víða erlendis hafa orðið til einingar sem sjá um rafrænar áskriftir fyrir marga aðila, ekki ósvipað og Landsaðgangurinn okkar. Nokkrar slíkar einingar reka gjarnan CRIS kerfi og varðveislusafn og eru með umsjón með ýmsu í sambandi við opinn aðgang. Mín sýn er að til verði öflug eining innan safnsins sem sinni þessum málum í samvinnu við háskólana og rann- sóknastofnanir og að til verði þekking og reynsla þannig að við getum gert okkur gildandi á þessu sviði. Það hefur þó tafið okkur að í menntamálaráðuneytinu tilheyrum við skrifstofu menningarmála þar sem lítil þekking er á þessu sviði. Á skrifstofu mennta- og vísindamála sem sér um rannsóknir og háskóla fundum við þó sálufélaga sem hafa unnið með okkur, til dæmis að opnum aðgangi og CRIS verkefninu. Ég tel að safnið ætti að tilheyra báðum þessum skrifstofum því að starfsemin er þess eðlis. Við erum stund- um á skjön við það sem er að gerast í menningarmálunum, til dæmis er stefnan sú að menningarstofnanir vinni að fjölgun gesta hjá sér. Það gildir fyrir öll minjasöfnin og aðra í þessum geira, á meðan við höfum markvisst unnið að því undanfarin ár að setja sem mest af efninu okkar út á netið til að koma til móts við okkar notendur þar. Safnið er bæði landsbókasafn og háskólabóka- safn og síðan er þjóðmenningarhlutverkið sem er mikilvægur þáttur í starfseminni. Starfssviðið er mjög breitt og við höfum verið í talsverðu samstarfi við aðrar menningarstofnanir ríkisins. Þær unnu til dæmis saman að sýningunni Sjónarhorn sem er í Safna- húsinu við Hverfisgötu. Þjóðminjasafnið fékk það verkefni að reka Safnahúsið og setja upp sýningu með Listasafni Íslands, Náttúrufræðisafni Íslands, Stofnun Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum, Þjóðskjalasafni Íslands og Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Áherslan var á myndrænan eða sjónrænan menningararf og í upphafi var mjög misjafnt hvað söfnin töldu sig geta lagt til. Svo þegar farið var að kafa ofan í safnkostinn hjá öllum þá kom ým- islegt í ljós og fólk náði að tengja saman ólíkan efnivið og sýna hann í nýju ljósi. Þarna var horft á bókakápur, plötu- umslög og myndefni frá Lbs-Hbs og hjá Þjóðskjalasafni kom í ljós hellingur af fallegu og myndrænu efni, en í byrj- un sá fólk bara þéttskrifuð skjöl. Þetta var krefjandi verkefni Úr lestrarsal Safnahúss Gömul og lúin bók

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.