Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Page 20

Bókasafnið - 01.07.2018, Page 20
20 Bókasafnið til að nota við lyklun safnefnis bókasafna framhaldsskóla – en þá var tölvuvæðing spjaldskráa hafin og staðlaðan efn- isorðalykil vantaði sárlega. Tóku höfundarnir, þær Þórdís T. Þórarinsdóttir (MS) og Margrét Loftsdóttir (Flensborg), verkefnið alvarlega og gáfu út efnisorðalykil árið 1992. Síðar gengu Borgarbókasafn, Bókasafn Landspítalans og Skóla- safnamiðstöð Reykjavíkur til liðs við höfunda um þróun hans. Alls urðu prentuðu útgáfurnar þrjár. Skránni er nú haldið við af Efnisorðaráði Gegnis sem hélt á dögunum sinn 280. fund. SBF hefur verið ötull við finna sér tilefni til að víkka sjóndeildarhringinn og fara í kynnis- og fræðsluferðir sem ávallt eru einstaklega vel skipulagðar, fróðlegar og áhugaverðar. Allir koma með hugmyndir um hvert eigi að fara og hvað eigi að skoða og almenn ánægja og jákvæðni ríkir í ferðunum. Fyrsta kynnisferðin til útlanda þar sem skólasöfn og skólasafnamiðstöð voru heimsótt var haustið 2007 til Glasgow og Edinborgar. Árið 2015 var haldið til Kaupmannahafnar og Málmeyjar og starfsemi framhalds- skólasafna þar skoðuð ásamt almenningsbókasöfnum og öðrum menningarstofnunum. Hérlendis sem erlendis hefur verið tekið einstaklega vel á móti hópnum. Nú er verið að skipuleggja þriðju utanlandsferðina, til Amsterdam nú vorið 2018. Sótt var um styrk til Erasmus+ í samvinnu við hvern skóla um sig. Undanfarið hafa allir sem sótt hafa um styrk fengið úthlutun. SBF stefnir að því að fara í kynnis- og fræðsluferðir til útlanda á 3-5 ára fresti. Helsta markmið kynnis- og fræðsluferða til annarra landa er að víkka fag- legan sjóndeildarhring og kynnast starfsháttum skólasafna utan landsteinanna. Miklu máli skipti fyrir SBF að fá styrkinn frá MMR þó hann væri ekki mjög hár því hann var hvatning og viður- kenning. Fyrstu árin nam styrkurinn einum mánaðarlaun- um kennara en skömmu eftir hrun var hann lækkaður í 150.000 á ári og felldur alveg niður árið 2016. Á fundi í haust (2017) var ákveðið félagsgjald, kr. 5.000 á hvern meðlim SBF – til að koma í stað styrksins. Með styrknum var greidd smáþóknun og útlagður kostnaður til þeirra sem tóku að sér verk fyrir hópinn að ógleymdri rithöfundar- kynningu á jólafundi. Verulega hefur kreppt að söfnum framhaldsskólanna nú eftir hrun. Fjárveitingar hafa verið skertar verulega – stund- um meira en 50%. Einnig hefur verið sagt upp starfs- fólki. Dæmi eru um að þar sem áður voru tvö stöðugildi (bókasafnsfræðingur og bókavörður) sé nú hálft stöðugildi bókasafnsfræðings. Þetta þýðir styttri afgreiðslutíma og verulega skerta þjónustu við nemendur. Á tímum sem þyrfti að auka þjónustuna og leggja aukna áherslu á upplýsinga- læsi og hagnýtingu upplýsingatækni. Á flestum framhalds- skólasöfnum landsins vinnur aðeins einn eða mjög fáir bókasafns- og upplýsingafræðingar. Því er mikilvægt fyrir félaga í SBF að hafa gott og öflugt samstarf sín á milli. Nauðsynlegt er fyrir einyrkja á safni að fá tækifæri til að bera saman bækur sínar og fylgjast með nýjungum og þró- un innan fagsins með því að heimsækja önnur söfn, bæði innanlands og erlendis. Fræðsluferðir stuðla að faglegri og persónulegri starfsþróun, auka nýbreytni í starfi og gefa víðari sýn á viðfangsefnin. Miklvægt er að SBF haldi áfram að hittast reglulega til að vinna saman að faglegum hagsmunamálum og efla faglegan og persónulegan þroska félagsmönnum til gagns og gleði. Greinin er að stofni til fyrirlestur frá málþingi Upplýsingar, Samstarf og samstaða, 24.11.2017. Nánari upplýsingar Auður M. Aðalsteinsdóttir, Ása Þorkelsdóttir, Ásdís H. Hafstað, Ás- gerður Sveinsdóttir, Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, Kristín Björgvins- dóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. (2016). Skyggnst yfir pollinn. Bókasöfn í Svíþjóð og Danmörku sótt heim. Bókasafnið, 40, 38-42. Bára Stefánsdóttir. (2008). Samstarfshópur bókasafnsfræðinga í fram- haldsskólum heimsækir Skotland. Fregnir, 33(2-3), 30-31. Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir. (2004). Samstarfshópur bókasafns- fræðinga í framhaldsskólum. Fregnir, 29(1), 40-42. Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir. (2007). Kynnisferð SBF til Skotlands 27.-30. sept. 2007. Fregnir, 32(3), 42-43. Hulda Björk Þorkelsdóttir, Kristín Björgvinsdóttir, Margrét Lofts- dóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. (1994). Bókasöfn í framhalds- skólum. Bókasafnið, 18, 24-25. Hulda Björk Þorkelsdóttir og Steinunn Stefánsdóttir. (1991). Samstarfs- hópur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum. Bókasafnið, 15, 35. K.B. [Kristín Björgvinsdóttir]. (1989). Samstarfshópur bókavarða í framhaldsskólum. Fregnir, 14(2) 11-12. Samstarfshópur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum. (1998-2017). Ársskýrslur 1997-2016. (Þórdís T. Þórarinsdóttir tók saman). (Skjalasafn SBF). Samstarfshópur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum. (1985-2017). Fundargerðir 1-155. (Skjalasafn SBF). Þórdís T. Þórarinsdóttir. (1997). Bókasöfn í framhaldsskólum. Í Sál aldanna (s. 343-365). Reykjavík, Félagsvísindastofnun Háskóla Ís- lands, Háskólaútgáfan. Þórdís T. Þórarinsdóttir. (1999). 82. fundur Samstarfshóps bókasafns- fræðinga í framhaldsskólum. Fregnir, 24(2), 18-19. Þórdís T. Þórarinsdóttir. (2001). Samstarfshópur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum. Fregnir, 26(3), 32-33. Nýtt bókasafn og upplýsingamiðstöð opnað í MS 8. mars 2016

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.