Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Side 22

Bókasafnið - 01.07.2018, Side 22
22 Bókasafnið Fyrsti fundur háskólabókavarða á Íslandi var haldinn í Háskólanum á Akureyri 10. september 1999. Síðan þá hafa verið haldnir 45 fundir, sá síðasti var haldinn 23. janúar 2018. Í september 2016 var ákveðið að breyta heiti fundanna í stjórnendafundur háskólabókasafna sem þótti lýsa betur á hvaða vettvangi fundarmenn starfa en fundina sitja stjórnendur og forstöðumenn háskóla- bókasafnanna og hittist hópurinn að minnsta kosti tvisvar sinnum á ári, yfi rleitt í byrjun árs og að hausti. Fundir hafa verið tíðari, allt að fj órum sinnum á ári, sérstaklega fyrstu árin. Fulltrúar hverrar stofnunar halda fundina til skiptis á sínu bókasafni og eru skráðar fundargerðir. Fundirnir eru mikilvægur samráðs- og samstarfsvettvangur fyrir stjórn- endur háskólabókasafnanna, þar eru rædd málefni er snerta starfsemi og þjónustu þeirra og þau málefni sem efst eru á baugi hverju sinni í bókasafnsheiminum hérlendis og er- lendis. Frá upphafi hafa fj ölbreytt málefni verið rædd á fundun- um. Má þar meðal annars nefna undirbúning og val á nýju bókasafnskerfi , notendafræðslu/upplýsingalæsi, sameig- inlegan aðgang bókasafna að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum/hvar.is, þjónustu bókasafna við fj arnema og rafræn námsbókasöfn, endurmenntun og starfsþjálfun starfsmanna, stöðu kjaramála, áskoranir sem háskóla- bókasöfn standa fyrir í framtíðinni, varðveislu lokaverkefna í Skemmu, rafræn upplýsingaþjónusta, ritstuldarvarnir í háskólum landsins (Turnitin), rafbækur og rafbókarútlán, samning um ljósritun og hliðstæða eftirgerð verka til afnota í skólum (Fjölís), opinn aðgang og opin vísindi. Nokkur þeirra málefna sem rædd hafa verið hafa þróast og feng- ið formlegan farveg. Árið 2002 var stofnað til formlegs vinnuhóps sem hefur það hlutverk að vinna að þróun not- endafræðslu/upplýsingalæsis við háskólabókasöfn landsins auk þess sem samráðshópur um rafbókakaup var stofnaður árið 2016. Í verkefnastjórn Skemmunnar sem komið var á fót árið 2007 sitja nú fulltrúar frá hverju aðildarsafni og í verkefnastjórn Opinna vísinda eiga fl est háskólabókasöfnin sinn fulltrúa. Frá árinu 2011 hefur starfað samráðshópur um ritstuldarvarnir í háskólum landsins þar sem unnið hefur verið að innleiðingu Turnitin hugbúnaðarins til að styðja við og styrkja fræðileg skrif og rannsóknarvinnu stúdenta. Þar eiga háskólabókasöfnin einnig mörg sinn fulltrúa. Breytingar og nýjar áherslu í háskólasamfélaginu haldast í hendur við breytingar á háskólabókasöfnunum og verður sú þróun að endurspeglast í starfsemi þeirra og þar liggur einnig þeirra sóknarfæri og vaxtarbroddur. Meðal nýrra verkefna og áskoranna má nefna aukin stuðning og þjónustu við rannsóknir, birtingar í opn- um aðgangi, skipulag og vörslu rannsóknargagna, ORCID auðkenni og skráning birtinga þar og nýtt upplýsingakerfi um rannsóknir (Current Research Information System) sem stendur til að taka í notkun í háskólum landsins. Til þess að takast á við þessi nýju verkefni þarf nýja færni og hæfni en lítið hefur verið um endurmenntun hér á landi fyrir starfsfólk háskólabókasafnanna um þessi mál. Hægt er að sækja slíka endurmenntun erlendis og stefna nú stjórn- endur háskólabókasafnanna að halda saman á ráðstefnu er snerta málefnið. Tvær spennandi ráðstefnur verða haldnar í sumar. Evrópsku rannsóknabókavarðarsamtökin (Associ- ation of European Research Libraries – Liber) standa að Research libraries as an Open Science hub: from strategy to action í Frakklandi og Alþjóðleg samtök háskólabókasafna (International Association of University Libraries - IATUL) halda Libraries for the future – from inspiring spaces to Open Science í Noregi. Að mati undirritaðrar sem hefur setið fundina frá árinu 2002 hafa þeir verið einstaklega fræðandi og gefandi og ómetanlegt að fá að vinna saman að fj ölbreyttum og spennandi verkefnum í þessum hópi í gegnum árin. Samstarf stjórnenda háskólabókasafna – ágrip úr erindi flutt á Málþingi Upplýsingar um samstarf og samstöðu, 24. nóvember 2017 Astrid Margrét Magnúsdóttir hefur lokið MA í bókasafns- og upplýsingafræði. Hún starfar sem forstöðumaður Bókasafns og upplýsingaþjónustu Háskólans á Akureyri. Myndin er tekin á 45. fundi stjórnenda háskólabókasafna 23. janúar 2018. Talið frá vinstri Sara Stef Hildardóttir (HR), Vigdís Þormóðs- dóttir (LHÍ), Astrid Margrét Magnúsdóttir (HA), Anna Sigríður Guðnadóttir (LSH), Guðrún Tryggvadóttir (LBS-HBS), Gunnhildur Kristín Björnsdóttir (MVS). Fjarverandi voru fulltrúar LBHÍ, HB og landsbókavörður.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.