Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Page 30

Bókasafnið - 01.07.2018, Page 30
30 Bókasafnið Haustið 2016 voru vígðar hillur í Oddeyrarskóla á Akureyri sem mynda stafi na LESTU. Þeim var komið fyrir á vegg í anddyri skólans, fyrir framan bókasafnið. Upphafi ð má rekja til þess að haustið áður sá fyrrum kennari við skólann mynd af sambærilegum hillum sem mynduðu stafi na READ á ensku, birti hana á Face- book síðu starfsmanna og skoraði á okkur að gera eitthvað svipað. Tveir kennarar tóku verkið að sér, söfnuðu styrkjum og sömdu við fyrirtæki um smíðina. Hafi st var handa við hana þetta sama haust með það að markmiði að hillan yrði tilbúin á Degi íslenskrar tungu þá um haustið. Það tókst. Skólastjóri fór í alla bekki skól- ans, kynnti hilluna og ræddi við nemendur um hvað stæði til. Auk þess sem nemendur skrifuðu niður nokkrar bækur sem þeir vildu sjá í hillunum. Skólasafnskennari vann svo inn- kaupalista upp úr þessum miðum og lagði fyrst og fremst áherslu á þær bækur sem oftast voru nefndar. Þetta voru bæði gamlar og nýjar bækur, jafnt á íslensku sem og ensku. Hugsunin að baki þessu var að nemendur hefðu á tilfi nningunni að þeir sjálfi r ættu eitthvað í þessu og myndu þar með nýta hilluna og bækurnar í henni betur. Samið var við bókaútgefendur sem tóku erindi okkar yfi r- leitt vel og gáfu oft á tíðum rífl egan afslátt af bókum. For- eldrafélag skólans safnaði styrkjum til bókakaupa hjá fyr- irtækjum á svæðinu. Eins voru utanlandsferðir kennara vel nýttar og fóru fl estir með innkaupalista með sér í farteskinu þegar þeir fóru á ráðstefnu eða námskeið erlendis. Allar þessar bækur lentu á borði skólasafnskennara sem skráði þær og plastaði með dyggri aðstoð annarra (og jafnvel fyrr- um) starfsmanna, sem og nemenda. Til að auðkenna þær bækur sem í hillunni eru var H sett í sviga á kjalmiða bók- anna, svo ekki færi á milli mála hvar þær ættu að vera. Allt tókst þetta að lokum og hillan var vígð við hátíðlega athöfn á Degi íslenskrar tungu haustið 2016. Kennarinn fyrrverandi sem átti upphafl egu hugmyndina klippti á borða og afhjúpaði hilluna. Nemendur tóku þessari nýjung afskap- lega vel eins og sést á niðurstöðum Skólapúlsins, sem fj allað verður nánar um hér á eftir, og fannst mikið til koma. Oftar en einu sinni hefur það gerst að nemendur vilja frekar fá að láni bækur sem eru í hillunni heldur en inni á safni, jafnvel þó um sama titil sé að ræða. Umræðan sem fram fór áður en hillan var sett upp, um bækur og lestur og sýnileiki hillunnar og bókanna sem í henni eru, hefur án efa ýtt undir áhuga nemenda og jákvætt viðhorf þeirra til lestrar. Í könnun Skólapúlsins eru eftirfarandi spurningar lagðar til grundvallar þegar viðhorf til lestrar er metið: • Ég les bara þegar ég verð að gera það. • Lestur er eitt af uppáhaldsáhugamálum mínum. • Mér fi nnst gaman að tala um bækur við aðra. • Ég verð ánægð(ur) þegar ég fæ bók að gjöf. • Lestur er tímasóun fyrir mig. • Mér fi nnst gaman að fara í bókabúð eða á bókasafn. Undanfarin ár hefur skólinn verið við landsmeðaltal þegar spurt er um viðhorf til lestrar en í Skólapúlsi sem lagður var fyrir bæði í janúar og apríl 2017 var skólinn talsvert yfi r landsmeðaltalinu. Til dæmis eru 52% nemenda Oddeyrar- skóla sammála eða mjög sammála því að lestur sé eitt af uppáhaldsáhugamálum þeirra en landsmeðaltalið er 33%. Eins segja 56% nemenda skólans að þeim þyki gaman að tala um bækur við aðra en 37% á landinu öllu eru þeirrar skoðunar. Þessar niðurstöður benda til þess að umræður um bækur og bókmenntir skili sér í auknum áhuga á lestri. Þá skiptir einnig máli að gefa nemendum tíma og tækifæri til að lesa í skólanum, á skólatíma og einnig að lesa fyrir nemendur alla skólagönguna. Þeim tíma er ekki illa varið en mikilvægt er að kennarinn lesi einnig og geti talað við nemendur um það sem þeir lesa. LESTU-hillur í Oddeyrarskóla og aukinn áhugi á lestri Þórarinn Torfason hefur lokið MA í bókmenntafræði og kennsluréttindanámi. Hann starfar sem skólasafnskennari við Oddeyrarskóla á Akureyri.

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.