Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Side 37

Bókasafnið - 01.07.2018, Side 37
Bókasafnið 42. árg – 2018 37 Á mynd 6 sést að fl estir eru sáttir við þá fræðslu sem í boði er, en aðrar tillögur gefa vísbendingu um aukna þörf á fræðslu. Hvers vegna RDA? Alþjóðlegt skráningarsamstarf fer sífellt vaxandi, einkum samnýting lýsigagna. Forsenda þess er að allir aðilar þekki og noti sameiginlega staðla. Við höfum um langt skeið fl utt inn færslur úr erlendum söfnum og gagnabönkum, svo sem OCLC, Library of Congress og þjóðbókasöfnum Norðurlanda. Nærri lætur að þriðjungur nýskráðra færslna sé innfl uttur. Öll séríslensk frávik eru til trafala og tefj a skrán- ingu. Við munum enn um sinn búa við frávik vegna röðunar íslenskra mannanafna, en því meira samræmi sem er í öðrum skráningaratriðum í sóttum færslum, því skilvirkari verður vinnan. Við viljum líka að erlendir aðilar geti leitað til okkar um skráningu á íslensku efni. Árið 2016 gerðust Landskerfi bókasafna og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn aðilar að VIAF (Virtual International Authority File). VIAF safnar nafnmyndum allra aðildarsafna saman og gerir aðgengilegar á nokkrum lý- sigagnasniðum, þar með töldu marksniðinu sem notað er í Gegni. Við getum lagt inn okkar íslensku nafnmyndir öðrum til afnota og viljum geta fl utt erlendar nafnmyndir hindrunarlaust inn í kerfi ð okkar. Innleiðingarferli - Nafnmyndaskrá Við höfum farið aðra leið í RDA innleiðingunni en fl est önnur lönd. Þau byrja yfi rleitt á að vinna nafnmyndaskrár sínar samkvæmt RDA. Okkar nafnmyndaskrá er frekar rýr, inniheldur mestmegnis íslensk mannanöfn og efnisorð, en efnisorð falla ekki undir RDA. Við hefðum líklega þurft að bíða ansi lengi með innleiðinguna ef við hefðum ætlað að koma nafn- myndaskráningunni í ásættanlegt horf. Aðild að VIAF er einn liður í uppbyggingu nafnmyndaskrár, sem við ætlum að vinna að samhliða öðrum aðlögunar- og innleiðingarverkefnum. Þýðing RDA Ekki reyndist unnt að ráðast í heildarþýðingu á nýju skráningarreglunum líkt og margar aðrar þjóðir gera, til dæmis Frakk- ar, Spánverjar og Norðmenn. Hollendingar og Svíar fara svipaða leið og við, þýða lykilhugtök og heiti til þess að auðvelda kennslu og gera reglurnar aðgengilegri. FRBR-hugtakalíkanið sem liggur til grundvallar RDA var þýtt. Það er sýnt á myndum 7-9. Ekki var hægt að íslenska erlendu heitin í líkaninu eins og fl estar Evrópuþjóðir gera. Við gátum ekki notað „expressjón“ og „manifestasjón“, heldur þurftum að fi nna íslensk heiti sem lýsa hugtakinu. Myndirnar sýna líkanið á ensku, á íslensku og með íslensku dæmi. Á mynd 10 er dæmi um þýðingu hlutverkaheita úr Handbók skrásetjara, en þýð- ingahópurinn valdi heiti til þýðingar. Þegar fram í sækir verður hægt að afmarka leitir við ákveðin hlutverk, til dæmis Silja Aðalsteinsdóttir sem höfundur, en ekki ritstjóri eða sögumaður. Við látum viðprent ná yfi r inngang, formála og eftirmála, enda er sjaldan skýr munur á efnislegu innihaldi þeirra. 5 Mynd Mynd 6 Hve s vegna RDA? Alþjóðlegt skráningarsamstarf fer sífellt vaxandi, einkum samnýting lýsigagna. Forsenda þess er að allir aðilar þekki og noti sameiginlega staðla. Við höfum langt skeið flutt inn færslur úr erlendum söfnum og gagnabönkum, svo sem OCLC, Libr ry of Congre s og þjóðbókasöfnum Norðurlanda. Nær i lætur að þriðjungur ýskráðra færslna sé in fluttur. Öll séríslensk frávik eru til trafala og tefja skráningu. Við munum enn um sinn búa við frávik vegna röðunar íslenskra mannanafna, en því meira samræmi sem er í öðrum skráningaratriðum í sóttum færslum, því skilvirkari verður vinnan. Við viljum líka að erlendir aðilar geti leitað til okkar um skráningu á íslensku efni. Árið 2016 gerðust Landkerfi bókasafna og Landsbóksafn Íslands – Háskólabókasafn aðilar að VIAF (Virtual International Authority File). VIAF safnar nafnmyndum allra aðildarsafna saman og gerir aðgengilegar á nokkrum lýsigagnasniðum, þ.m.t.ar með töldu marksniðinu sem notað er í Gegni. Við getum lagt inn okkar íslensku nafnmyndir öðrum til afnota og viljum geta flutt erlendar naf myndir hind unarlaust inn í kerfið okk . Innleiðingarferli - Nafnmyndaskrá Við höfum farið aðra leið í RDA innleiðingunni en flest önnur lönd. Þau byrja yfirleitt á að vinna nafnmyndaskrár sínar samkvæmt RDA. Okkar 3 33 20 12 18 9 23 20 0 5 10 15 20 25 30 35 Annað Sátt/sáttur við núvernadi fyrirkomulag Meiri notkun á samfélagsmiðlum Fjarkennslu Að Handbók skrásetjara sé virkari Fleiri fundi Meiri umfjöllun á Vöndu Fleiri námskeið Hvernig finnst þér að auka mætti skráningarfræðslu? ynd 6 Mynd 7

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.