Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 38
38 Bókasafnið
Breytt verkferli
RDA innleiðingin hefur í för
með sér meiriháttar breytingar á
ýmsum verkferlum. Samkvæmt
reglunum eru nú gerðar sér
færslur fyrir rafrænt efni. Áður
gátum við tengt slóð við færslu
fyrir prentefni, en nú „klónum“
við prentfærslu eða tónlistarfær-
slu og höfum aðskildar. Þannig
eru tvær færslur fyrir tímaritið
Milli mála sem komið hefur út
bæði rafrænt og á prenti. Það
á einnig við um greinifærslur
tímaritsins. Þessi breyting gefur
nákvæmari leitarniðurstöður
fyrir rafrænt efni, en hefur óneit-
anlega í för með sér aukna vinnu
við skráningu og torveldar að
sumu leyti aðgengi notenda
eins og færslur eru fram sett-
ar í bókasafnskerfum í dag.
Annað nýtt er að við gerum
betur við íslenska útgefendur.
Við gerum þá leitarbæra með
samræmdri nafnmynd og
hlutverki.
Enn sem komið eru RDA
upplýsingar í Leitum ekki
vel nýttar. Það mun von-
andi breytast þegar vélrænar
breytingakeyrslur hafa verið
gerðar. Eins og er skilar inn-
byggða FRBR-seringin í Leit-
um ekki ásættanlegum niður-
stöðum, heldur safnar saman
efni sem ekki á saman.
Skrásetjarar eiga stundum
erfitt með að sjá tilganginn
með því sem þeir eru að gera eins og
sést í athugasemdum við könnunina. Ýmsir kóðar og upp-
lýsingar sem settir eru fram í skráningarfærslum eru ekki
sýnilegar notendum og ekki hægt að nýta við leit. Sem
dæmi má nefna að frá upphafi markskráningar hefur erlent
útgáfuefni sem varðar Ísland eða er eftir Íslendinga verið
kóðað sem Islandica Extranea. Það er ekki fyrr en nýlega
sem reynt hefur verið að draga þetta efni út og setja fram í
„Þýðingaskrá“ sem enn er í vinnslu. Hafa verður í huga að
við erum að vinna til framtíðar. Í skráningarfærslum leynist
hafsjór upplýsinga sem nýtast í bókasafnskerfum framtíðar-
innar og miklu víðar.
Næstu skref
Mikil undirbúningsvinna hefur verið lögð í að skilgreina
þær breytingar sem hægt er að gera vélrænt á eldri færslum
svo þær samræmist betur nýju reglunum. Sú vinna hefur
þó tafist og er ekki komin til framkvæmda enn. Í upphafi
ársins 2018 voru 48.000 færslur merktar sem RDA færslur í
Gegni, sem inniheldur um 1,2 milljón færslur.
Þýðingahópurinn er enn að störfum og ljóst er að miklar
breytingar eru í vændum þegar RDA toolkit verður uppfært
vorið 2018. FRBR-hugtakalíkanið hefur verið endurskoðað
og þýða þarf ný hugtök, svo sem „Res“ og „Agent“. Inn-
gangskafli RDA þar sem þessi hugtök og heiti koma fyrir
var þýddur 2016 og hann þarf að endurþýða. Einnig þarf að
bæta við hlutverkaheitum.
Eins er mikil vinna við nafnmyndaskráningu í vændum sem
bæði tengist RDA og nýju bókasafnkerfi. Helsta verkefnið
framundan er skráning á nafnmyndum fyrir höfundargreind
verk. Þar með teljast útfærslur (expressions) eins og þýðingar,
sem líklega munu fá sér færslu. Þar getur aðild að VIAF
komið að góðu gagni. Ýmsum upplýsingum þarf að bæta í
eldri nafnmyndafærslur til þess að þær standist RDA kröfur.
Þessi nafnmyndaverkefni auðvelda bókfræðilega skráningu
og bæta leitarniðurstöður með því að safna saman því sem
saman á undir eina nafnmynd – það er að segja ef leitarvið-
mót notenda vinnur vel úr þessum lýsigögnum.
Mynd 9
Mynd 8