Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Page 43

Bókasafnið - 01.07.2018, Page 43
Bókasafnið 42. árg – 2018 43 Vinnan við að bæta texta vefs Rafbókasafnsins tekur þó aldrei enda því þegar breytingar eða viðbætur verða á þeirri þjónustu sem rafbókasafnsvefurinn býður upp á þarf að fara yfir þýðingarnar sem þær snerta. Upplýsingar um bókasöfnin Aðildarsöfn Rafbókasafnsins eru skráð á vef Rafbóka- safnsins og vef OverDrive. Þar er að finna upplýsingar um heimilisfang, símanúmer, netfang og veffang auk tenginga í samfélagsmiðla. Þar geta notendur Rafbókasafnsins nálgast leiðbeiningar og hjálp. Námskeið og þjálfun Áður en Rafbókasafnið opnaði hélt OverDrive námskeið fyrir starfsfólk Landskerfis bókasafna og Rafbókasafnsins á netinu. Þegar komið var fram á vor og nokkur reynsla var komin á rekstur Rafbókasafnsins og útlána úr því, kom leiðbeinandi frá OverDrive til landsins til þess að kenna, leiðbeina og svara spurningum um vinnu í Rafbókasafninu og vinnu við rekstur þess. Borgarbókasafnið fyrst Borgarbókasafnið reið á vaðið og Rafbókasafnið var stofnað og sett í loftið 30. janúar 2017. Þá voru í 803 titlar í safninu, um 500 rafbækur og 300 hljóðbækur. 13 stór almenningsbókasöfn Vorið 2017 var 13 völdum almenningsbókasöfnum boðið að tengjast Rafbókasafninu. Þau voru valin vegna stærðar sinnar og einnig vildum við fá inn aðildarsöfn alls staðar að af landinu. Boðið var til kynningarfundar þann 20. mars og umsóknarferli sett af stað. Kynntar voru reglur um kostn- aðarskiptingu en þær lúta sömu lögmálum og kostnaðar- skipting við rekstur Gegnis. Þá var rætt hvernig innkaupum í Rafbókasafnið og samstarfi um það skyldi háttað. Kostn- aðarskipting við rekstur Rafbókasafnsins og innkaup í það eru í umsjón Borgarbókasafnsins en Landskerfi bókasafna sér um kerfislegan rekstur þess. Til þess að gera langa sögu stutta, voru söfnin sátt við leikreglurnar og sóttu öll um að vera með í Rafbókasafnssamlaginu. Þá hófst sama vinna varðandi skráningu og auðkenningu nýju safnanna í Rafbókasafninu og verið hafði þegar Borg- arbókasafnið var virkjað á sínum tíma – nema vinnan var þrettánföld. Þessi vinna kallaði á tíð samskipti við forstöðu- menn þessara bókasafna og ljóst varð að eftirvæntingin eftir því að tengjast Rafbókasafninu var mikil. Rafbókasafnið var opnað lánþegum þessara 13 nýju aðildar- safna þann 1. júní 2017. Þá voru 3.154 titlar í safninu, 2.680 rafbækur og 474 hljóðbækur. Þá höfðu verið teknir inn í Rafbókasafnið um 1.300 titlar úr Gutenberg-verkefninu. 48 almenningsbókasöfn – restin af landinu Það hefur alltaf verið markmið í þessu verkefni að öll al- menningsbókasöfn landsins tengdust Rafbókasafninu. Þegar komin var reynsla á nýju bókasöfnin í Rafbókasafn- inu var ráðist í að bjóða þeim almenningsbókasöfnunum sem enn stóðu utan samlagsins aðild að því. 2. október var þeim boðið til kynningarfundar hjá Landskerfi bókasafna og umsóknarferli sett af stað. Eðli málsins samkvæmt tók það nokkuð lengri tíma að ná til 48 safna en 13 safna. Mörg þessara safna eru að auki lítil með fáa afgreiðslustundir í viku hverri. Því þurfti í sumum tilvikum að gera nokkrar atlögur að söfnunum og beita nokkrum sannfæringar- krafti til þess að fá þau smæstu með í samlagið. Það sem vann með verkefninu eru þær staðreyndir að safnkostur safnanna stækkar um tæplega 4000 titla við inngöngu í Rafbókasafnssamlagið. Allir lánþegar í Rafbókasafninu eru jafnir, hvort sem þeir koma frá stóru bókasafni sem greiðir bróðurpart kostnaðar við rekstur þess eða koma frá litlu bókasafni sem greiðir lágmarks framlag til samlagsins. Rafbókasafnið var svo opnað lánþegum allra almennings- bókasafna á Íslandi þann 19. desember 2017. Þá voru 3.715 titlar í safninu, 3.095 rafbækur og 611 hljóðbækur. Tölur um Rafbókasafnið í árslok 2017 Í Rafbókasafninu er hægt að draga út fjölbreytta tölfræði um virkni þess. Hér í töflunni að neðan eru nokkrir helstu vísar um notkunina á því. Það sem er einna eftirtektar- verðast er að útlán eru fleiri en nemur heildarfjölda titla í safninu, og hvað hljóðbækurnar varðar þá er nýting þeirra sérstakt ánægjuefni. Tölur 31. desember 2017 Íslensku bækurnar – hvar eru þær? Það er mikil eftirspurn eftir íslenskum bókum í Raf- bókasafninu, bæði nýjum og gömlum. Borgarbókasafnið Vísir Fjöldi Aðildarsöfn Rafbókasafnsins 62 Titlar í Rafbókasafninu 3.757 Rafbækur 3.135 Hljóðbækur 622 Skráðir lánþegar 1.361 Útlán frá opnun (30. janúar 2017) 9.614 Rafbækur 5.547 – hver titill 1,8 sinnum í útlán Hljóðbækur 4.067 – hver titill 6,7 sinnum í útlán

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.