Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 45

Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 45
Bókasafnið 42. árg – 2018 45 Hlaðvarp Borgarbókasafnsins hóf göngu sína í júní 2017 með þáttaröðinni Um allt land. Þar skröfuðu nokkrir starfsmenn safnsins um bækur sem tengjast landshlutunum fj órum á einn eða annan hátt, svo hlustendur gætu lagt upp í huglæga og bókmenntalega hringferð um landið áður en spólað var af stað í raunheimum. Hlaðvarpsþættir njóta mikilla vinsælda og eru orðnir ómissandi hluti af afþreyingu millj- óna manna um allan heim. Innan hlaðvarpsins rúmast allt: það eru til hlaðvarpsþættir um sögu, vísindi, bókmenntir, Hollywoodstjörnur, íþróttir, sakamál, ástina og ótalmargt fl eira. Á Borgarbókasafninu lítum við á hlað- varpsþætti sem tækifæri til þess að miðla safnkosti okkar á áhugaverðan og vonandi skemmtilegan hátt. Auk fyrstu þáttaraðarinnar, sem fór í loftið þegar ferðasumarið var hafi ð, hefur starfsfólk safnsins nú gert aðra þáttaröð um leikhúsbókmenntir og fengið til liðs við sig lestrarhesta úr Austurbæjarskóla til þess að fj alla um nýju barnabækurnar í jólabókafl óðinu 2017. Þá var jóladagatal Borgarbókasafnsins aðgengilegt á hlaðvarpi safnsins í lestri höfundar, Þórarins Leifssonar. Þættina má nálgast á Soundcloud-reikningi Borgar- bókasafnsins, en þangað er auðvelt að rata af heimasíðu safnsins, og í öllum helstu hlaðvarpsforritum. Samhliða eigin efnisframleiðslu var Kompan, hlaðvarpsstúdíó Borgarbókasafnsins sem innréttað var í litlu herbergi á annarri hæð safnsins í Grófi nni, gerð aðgengileg not- endum safnsins. Frá og með miðjum apríl hafa gestir Borgarbókasafnsins getað bók- að Kompuna til eigin afnota, með því að hafa samband við afgreiðslu í Grófi nni eða senda skeyti á hladvarp@borgarbokasafn.is. Kompan er búin húsgögnum úr eigu safnsins og hlaðin afskrifuðum bókum frá gólfi til lofts, í því skyni að gera hljóðvistina hentuga til upptöku. Gestir fá um leið aðgang að upptökutæki og hljóðnem- um, tölvu og klippiforriti til eftirvinnslu. Starfsmenn safns- ins, með fagþekkingu á upptökum, hafa útbúið greinargóðar leiðbeiningar um notkun tækjanna, en einnig stendur til að halda hlaðvarpssmiðjur, þar sem þátttakendur fá beina tilsögn frá fagmanni. Gestir fara með tilbúið efni heim, eða geta hlaðið því beint upp á netið, eins og þeim sýnist. Með tilkomu hlaðvarpsins styrkist Borgarbókasafnið enn í hlutverki sínu sem vettvangur sköpunar og menntunar, og starfsfólk safnsins fær um leið skemmtilegt tækifæri til þess að miðla af þekkingu sinni til enn stærri hóps en fyrr. Með safnkostinn í eyrunum: Hlaðvarp Borgarbókasafnsins Sunna Dís Másdóttir hefur lokið MA í hagnýtri menningarmiðlun. Hún starfar sem verkefnastjóri bókmennta á Borgarbókasafni.

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.