Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.07.2018, Qupperneq 49

Bókasafnið - 01.07.2018, Qupperneq 49
Bókasafnið 42. árg – 2018 49 Þjóðskjalasafn Íslands hefur undanfarin ár verið að leggja meiri áherslu á eftirlit með skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila. Eitt af megin- hlutverkum safnsins samkvæmt lögum nr. 77/2014 er að hafa eftirlit með framkvæmd afhendingarskyldra aðila á lögum og reglum sem lúta að skjalavörslu og skjalastjórn. Það felur meðal annars í sér að setja reglur og leiðbeiningar um skjalavörslu og skjalastjórn og svo hafa eftirlit með reglufylgni afhendingarskyldra aðila. Til þess að uppfylla þetta hlutverk sitt hefur Þjóðskjalasafn Íslands meðal annars staðið fyrir nokkrum eftirlitskönnunum, fyrstu árið 2004 og svo 2012 og 2016. Fyrsta könnunin tók aðallega til rafrænna gagna en þar var ákveðið að kanna umfang og eðli rafrænn- ar skjala- og gagnavörslu hins opinbera til að fá mynd af því hvernig Þjóðskjalasafn gæti best undirbúið sig fyrir móttöku rafrænna gagna, en safnið var þá að stíga sín fyrstu skref í þá átt. Könnunin leiddi í ljós að 64% svarenda skrá mál á skipulegan hátt eins og lög gera ráð fyrir en fæstar stofnanir störfuðu eftir skjalavistunaráætlunum, sem er heildar- skipulag fyrir vörslu allra skjala stofnunar. Þá kom í ljós að 46% stofnana notast við rafræn skjalavörslukerfi og búist var við að þeim myndi fj ölga á næstu árum, sérstaklega ef mark- mið stjórnsýslunnar var að verða rafræn. Þá var meirihluti stofnana með rafræna gagnagrunna og þyrfti safnið að taka afstöðu til varðveisluskyldu þeirra. Svarhlutfall könnunar- innar var 71%. Kannanir um skjalavörslu og skjalastjórn Könnunin 2012 tók til allra þátta skjalavörslu og skjalastjórnar afhendingarskyldra aðila og var þannig nokkuð viðameiri en fyrri könnun. Svarhlutfallið var 83,6% og voru meginniður- stöður þær að efl a þyrfti skilning og þekkingu starfsmanna á skjalavörslu. Það bar nokkuð á því að aðilar skildu ekki spurningar eða töldu sig hafa samþykki eða heimildir safns- ins fyrir ákveðnum þáttum skjalavörslu sinnar stofnunar en höfðu þær ekki. Þá kom í ljós að skráning mála og notkun málalykla var nánast óbreytt síðan 2004, en með aukinni notkun rafrænna kerfa við skjalavörslu verður enn brýnna að allar stofnanir uppfylli þessa lagaskyldu. Í ljós kom einnig að stofnanir voru stutt á veg komnar með að tilkynna rafræn gagnakerfi sín eins og þeim ber að gera samkvæmt reglum. Þá höfðu fáar stofnanir gert skjalavistunaráætlanir eftir reglum Þjóðskjalasafns og aðeins ein hafði verið lögð fyrir safnið. Könnunin sýndi að mikils misskilnings gætti hjá stofnunum hvað grisjun varðar og töldu margar sig grisja skjöl samkvæmt heimild Þjóðskjalasafns eða hreinlega ekki þurfa heimild til eyðingar skjala. Stofunum er með öllu óheimilt að eyða skjölum úr skjalasafni sínu án heimildar Þjóðskjalasafns og er það því lögbrot að eyða án heimildar. Í eftirfylgni með könnuninni um þennan þátt skjalavörslunn- ar kom í ljós að mun færri höfðu í raun grisjað ólöglega og mátti rekja það til vanþekkingar starfsmanna stofnunarinnar á lögum um opinbera skjalavörslu. Aðrir rugluðu saman hugtökunum að grisja og hreinsa1 skjalasöfn og enn aðrir höfðu í raun heimild til grisjunar skjala í lögum eða reglum. Árið 2016 var svo þriðja könnunin framkvæmd og kom þar fram að hlutfall þeirra sem skráir ekki mál sem koma til meðferðar hjá þeim á kerfi sbundinn hátt hefur lækk- að úr 36% frá síðustu könnun í 26% sem er ánægjulegt. Notkun málalykla hafði einnig aukist, ólögleg grisjun var þó enn einhver og enn voru fáar stofnanir að starfa eftir samþykktum skjalavistunaráætlunum. Þá notuðu margir svarmöguleikann Veit ekki, en hann hafði ekki verið í boði í fyrri könnunum. Var það skjalavörðum Þjóðskjalasafns nokkurt áhyggjuefni að starfsmenn við skjalavörslu ríkis- stofnana hafi ekki vitneskju um þá þætti sem snúa að skjala- málum sinnar stofnunar. Skipulagt eftirlit Þjóðskjalasafns Íslands Helga Jóna Eiríksdóttir, skjalavörður hefur lokið MA í sagnfræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hún starfar á Þjóðskjalasafni Íslands. Skýrsla Þjóðskjalasafns um niðurstöður eftirlitskönnunar 2016. 1. Grisjun er skipuleg eyðing skjalafl okka eða tegund skjala úr skjalasöfnum sem er veitt heimild til skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og fer eftir ákveðnum reglum og aðferðafræði. Með hreinsun er átt við tiltekt í skjalasafni þar sem svo sem rissblöðum, aukaeintökum, plasti, umslögum og þess háttar er hent þegar gengið er frá máli í skjalasafn. Sjá t.d. vef Þjóðskjalasafn Íslands ”Hugtök og heiti”.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.