Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 53
Bókasafnið 42. árg – 2018 53
1. The School of Business, Helsinki Univeristy of Technology (School of Chemical Technology, School of Electrical Engineering, School of
Engineering, School of Science) og School of Arts, Design and Architecture (Rämö, 2018).
Bókasafnsheimsóknir eru oftar en ekki með þvíeftirminnilegasta þegar heim er komið eftir ráð-stefnur erlendis. Í júní 2017 sóttu greinarhöfundar
ráðstefnu ARLIS/Norden í Helsinki. Dagskráin öll var
áhugaverð en fyrirlestur og skoðunarferð um nýskipulagða
þekkingarmiðstöð (e. Learning Centre) Aaltoháskólans,
vakti sérstaka athygli og þá ekki síst vegna þess hvernig
staðið var af fagmennsku að uppbyggingu bókasafns- og
upplýsingaþjónustu fyrir sameinaða háskóla.
Aaltoháskóli varð til við sameiningu þriggja háskóla1 sem
áður sinntu kennslu í viðskiptafræði, tækni, listiðnaði og
hönnun. Hinn sameinaði háskóli er enn staðsettur á þremur
stöðum í Helsinki og Espoo, en áætlað er að starfsemin
verði öll komin á Oaniemi háskólasvæðið í Espoo árið 2021,
þar sem Tækniháskólinn var fyrir. Það vakti athygli okkar
að það var ekki verið að sameina háskóla sem fyrir kenndu
sömu eða svipaðar greinar heldur þvert á móti. Skólarnir
sem voru sameinaðir voru á mjög ólíkum sviðum en saman
mynda þeir stóran háskóla með fj ölbreyttu námsframboði.
Þekkingarmiðstöð Aaltoháskóla
- Aðlaðandi og hvetjandi námsumhverfi
Gunnhildur Björnsdóttir hefur lokið BA í bókasafns- og upp-
lýsingafræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hún starfar sem
forstöðumaður bókasafns Menntavísindasviðs HÍ.
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir hefur lokið BA í bókasafns- og
upplýsingafræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hún starfar
sem forstöðumaður bókasafns Tækniskólans.
Hefðbundið bókasafnsrými á annarri hæðinni með húsgögnum eftir Alvar Aalto