Bókasafnið - 01.07.2018, Qupperneq 56
56 Bókasafnið
Þekkingarmiðstöðin býður upp á alla hefðbundna
bókasafns- og upplýsingaþjónustu, stuðning við útgáfu og
rannsóknir, og þjálfun í upplýsingalæsi. Hlutverk hennar er
einkum að auðvelda aðgang að upplýsingunum, bjóða upp
á fjölbreytt vinnurými fyrir einstaklinga og hópa, viðburði
og tækifæri til að hitta fólk með svipuð áhugamál, sem og
að ýta undir að nemendur stundi námið reglulega og bæti
þar með námsárangur. Afgreiðslutíminn er mislangur. Torg-
ið eða Tori sem svo er kallað og smiðjur (e. makerspace)
eru opin lengur en svæðið sem líkist mest hefðbundnu
bókasafni, eða alla daga 7-24. Afmarkað svæði á fyrstu hæð
er opið allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, en þar eru
meðal annars þægilegar pullur að liggja á fyrir þreytta nem-
endur sem vilja vera þar allan sólarhringinn. Alls staðar er
hugsað fyrir að auðvelt sé að tengjast rafmagni og neti.
Við greinarhöfundarnir höfum báðar reynslu af því að
skoða áhugaverð nútímabókasöfn sem bjóða upp á margs
konar þjónustu. Eitt af því sem kom okkur á óvart þarna
var nútímaleg hugsun í starfsmannarými. Þar á enginn fasta
vinnustöð, ekki einu sinni forstöðumaður safnsins. Þeir
sem hafa fylgst með nýjustu þáttaröð Brúarinnar á RÚV
vita hvað við erum að tala um en sjálfar erum við á sömu
skoðun og aðalpersónan, Saga, og alls ekki tilbúnar til að
fórna okkar eigin vinnustöð! Vinnurými starfsmanna er sem
sagt skipulagt þannig að hver og einn getur sest hvar sem er.
Hver hefur sína fartölvu og sinn læsta skáp þar sem geyma
má vinnugögn. Í rauninni er þetta þannig að þeir sem mæta
fyrstir, geta valið hvar þeir vilja vera – fyrstur kemur, fyrstur
fær. Þetta fyrirkomulag sparar heilmikið pláss og býður upp
á það að ekki er nauðsynlegt að taka frá pláss undir vinnu-
rými fyrir hvern og einn starfsmann. Vinnurýmin eru milli
60 og 70 fyrir um 90 starfsmenn. Eftir að hafa skoðað frá-
bæra aðstöðu fyrir viðskiptavini þekkingarmiðstöðvarinnar
Í óformlegu vinnurými má láta fara vel um sig i skemmtilegum
hægindastólum
Svæði sem opið er allan sólarhringinn. Hægt er að leggja sig í rauðu
hringina og hvíla líkama og sál þegar unnið er allan sólarhringinn
Frá vinnusvæði starfsfólks, til hægri má sjá skápa þar sem starfsmenn
geta geymt föggur sínar þegar þeir eru fjarverandi.
Mikið er lagt upp úr því að útbúa óhefðbundin les- eða vinnurými
til að hvíla langar setur við borð. Þarna má til dæmis sjá annan
greinarhöfunda máta hringlaga rými
Húsgögn Alvars Aaltos fyrir framan skrifstofu sem áður var ætluð
yfirmanni safnsins, en er nú opin fyrir alla