Bókasafnið - 01.07.2018, Qupperneq 59
Bókasafnið 42. árg – 2018 59
Ársþingsgestir í verkefnavinnu. ©Marlene Kloster Hedegaard (Blue
Shield Denmark).
Breytingar og framfarir í þágu verndar
Á síðasta ári hefur verið unnið að breytingum laga samtak-
anna til að einfalda stofnunarferli landsnefnda. Samhliða
hefur stjórn alþjóðanefndarinnar ásamt hópi félagsmanna
samið drög að stefnu samtakanna „the Blue Shield Approach“
sem er ætlað að nota sem ramma fyrir alþjóða- og lands-
nefndina til að fara eftir.
Þetta er um 20 blaðsíðna plagg sem lýsir stefnumörkun og
aðferðafræði BS. Landsnefndum eru ekki settar þröngar
skorður í skjalinu svo fremi sem Haag sáttmálinn frá 1954
sé hafður í fyrirrúmi. Aðstæður landanna eru mjög ólíkar
hvað varðar stöðugleika, frið, frelsi, menningu og sögu. Þess
vegna telst nauðsynlegt að leyfa ákveðinn sveigjanleika
varðandi til dæmis eigin markmið landsnefnda. Sumir
leggja áherslu á að vera fyrst og fremst stuðningsaðilar og
veita upplýsingar, aðrir hafa burði til að taka þátt í aðgerð-
um.
Í stuttu máli eru helstu grunnþættir stefnunnar: a) samhæf-
ing (Bláa skjaldarins og annarra samtaka), b) stefnumótun,
c) fyrirbyggjandi aðgerðir og áhættumat, d) menntun og
þjálfun, e) viðbragðsáætlanir og f ) endurheimtur og stuðn-
ingur til lengri tíma.
Þá er mikilvægt að hlutverk Bláa skjaldarins verður skýr-
ari gagnvart öðrum alþjóðasamtökum eins og UNESCO,
ICCROM, ICA, ICOM og IFLA og um leið gert mikið úr
öflugu samstarfi við önnur samtök og stofnanir.
Á fyrsta degi fundarins var unnið í litlum hópum og rýnt í
drögin og svo unnið úr þeim athugasemdum sem komu. Að
lokum var samþykkt að vinna betur í textanum og reyna að
fullklára plaggið á næstu misserum.
Ný stjórn
Síðan 2014 hefur eingöngu varastjórn verið starfandi
hjá alþjóðasamtökunum. Kosið var um nýja stjórn og var
ánægjulegt að sjá hve margir buðu sig fram, sem ber vott
um áhuga og framtíðarsýn. Karl von Habsburg-Lothringen
frá Austurríki var endurkjörinn forseti stjórnar en hann
2 http://www.ncl.ac.uk/press/articles/archive/2015/10/peterstoneunescochair
3 Bandaríkjamenn voru mjög áberandi en þeir hafa verið mjög virkir í samtökunum frá upphafi sérstaklega á sviði endurmenntun hermanna.
https://www.uscbs.org/
hefur gegnt því hlutverki frá árinu 2008. Hann á langan
feril að baki á vettvangi stjórnmála, fjölmiðla og hersins
þar sem hann hefur komið að verndun menningarminja.
Aðrir sem kosnir voru í stjórn voru: Bae Kidong frá Suður-
Kóreu sem situr í stjórn ICOM þar í landi og er prófessor
í fornleifafræði; Manana Trevadze frá Georgíu, en hún
hefur komið að mörgum menningartengdum verkefnum í
sínu heimalandi auk þess að vinna fyrir UNESCO; Nancy
Wilkie frá Bandaríkjunum er fornleifafræðingur og er einn
af stofnendum Bláa skjaldarins þar í landi og hefur verið
formaður samtakanna frá 2013; Peter Stone frá Englandi en
hann hefur verið mjög virkur í starfi samtakanna. Hann er
prófessor við Newcastle háskóla og yfirmaður Alþjóðamið-
stöðvar menningar og menningararfs, við sama skóla.
Þá hefur hann verið sérstakur ráðgjafi breskra yfirvalda
þegar kemur að verndun menningarminja á stríðshrjáðum
svæðum2.
Ný stjórn mun halda áfram með að móta stefnu og fram-
tíðarsýn Bláa skjaldararins auk þess að taka á fjármálum
samtakanna en þau eru lítið fjármögnuð og því ekki ráðrúm
fyrir mikla yfirbyggingu.
Starf Bláa skjaldarins víða um heim
Að kosningu lokinni kom röðin að fyrirlestrum en þeim var
skipt upp í nokkra flokka eftir viðfangsefni. Margir fyrir-
lestranna fjölluðu um hlutverk hersins í verndun og björgun
menningarminja á stríðshrjáðum svæðum. Herinn kemur
reyndar einnig að uppbyggingu þar sem náttúruhamfarir
hafa riðið yfir. Landsnefndir Bandaríkjanna og Bretlands
voru áberandi og hafa verið í fararbroddi í þjálfun her-
manna á þessu sviði víða um heim3. Í öllum tilfellum voru
lagðar áherslur á samstarf við heimamenn og tekið fram
að aðstoð í útlöndum er veitt eingöngu ef hún er velkomin
og skal mannslífum aldrei stefnt í voða við björgun eða
verndun menningarminja.
Eins og áður hefur verið nefnt hefur björgun menn-
ingarminja á svæðum þar sem náttúruhamfarir hafa riðið
yfir verið bætt á aðgerðarlistann af Bláa skildinum. Fjöll-
uðu nokkrir fyrirlestranna um það viðfangsefni, sem er
Safnahúsið á Húsavík, menningarmiðstöð Þingeyinga.