Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 60
60 Bókasafnið
okkur Íslendingum að mörgu leyti skylt. Fróðlegt var til
dæmis að heyra um markvissa þjálfun heimamanna og
aðkomumanna við björgun menningarminja í Tíbet eftir
hina stóru jarðskjálfta sem riðu yfir árið 2015. En það voru
ICCROM-samtökin sem stóðu fyrir þeirri þjálfun. Þá voru
reynslusögur af svipuðum hamförum á Ítalíu. Einnig var
nokkuð fjallað um björgun menningarminja vegna fellibylja
sem geisað hafa á suðvesturhluta Bandaríkjanna og eyja
í Karíbahafi en þær aðgerðir voru ennþá í gangi á meðan
á fundinum stóð og gátu fundargestir hlýtt á fyrirlesara í
útkalli í gegnum Skype og þannig fengið ákveðna innsýn í
þær erfiðu aðstæður sem björgunarfólk þarf að glíma við á
hamfararsvæðum.
Verkefni allra landsnefnda voru að lokum kynnt í einni
samantekt. Það vakti athygli að Ísland býr ekki yfir her sem
getur komið að fyrstu viðbrögðum ef vá steðjar að og þarf
að treysta á aðrar leiðir sem lesa má um hér á eftir.
Það er óhætt að segja að verkefni Bláa skjaldarins eru
margskonar og flækjustigin eftir því. Mikilvægt er að byggja
upp traust tengslanet og tryggja aðgengi að þekkingu og
reynslu sem nýtist áfram4. Þá er þörf er fyrir betri samhæf-
ingu á milli félaga sem starfa á svipuðum vettvangi.
Verkefni á Íslandi
Á árinu 2017 vann Íslandsdeild Bláa skjaldarins að sínu
fyrsta verkefni tengdu viðbrögðum við vá. Verkefnið ber
yfirskriftina „Pilot verkefni í Norðurþingi“og hefur verið
styrkt af safnasjóði. Unnið var að því að meta hagnýtni og
raunhæfni viðbragðsáætlunar Menningarmiðstöðvar Þing-
eyinga. Val landsvæðis og stofnunarinnar var engin tilviljun.
Menningarmiðstöð Þingeyinga hefur sérstöðu sem hentaði
verkefninu vel því að undir sama rekstri er að finna margar
menningarstofnarnir svo sem héraðsskjalasafn, bókasafn,
Byggðasafn Suður-Þingeyinga-Grenjaðarstað, Byggðasafn
Suður-Þingeyinga Safnahúsið á Húsavík, Byggðasafn Suð-
ur-Þingeyinga Sjóminjasafn og Byggðasafn Norður-Þing-
eyinga við Snartarstaði.
Tekin var staðan á viðbragðáætlun minjasafnsins,
skjalasafnsins og bókasafnsins hvað varðar björgun safnkosts
ef stór jarðskjálfti riði yfir á Húsavík. Athugað var einnig
hvernig þessi áætlun tengdist aðgerðaáætlun almannavarna
á þessu svæði. Haft var samband við alla aðila sem hafa
reynslu af viðbrögðum við náttúruhamförum í Norðurþingi
í þeim tilgangi að læra af þeim (til dæmis Rauða krossinn)
eða að leita samstarfs (Almannavarnir) og kanna möguleika
á að fá til dæmis aðstoð björgunarsveita vegna ýmissa verk-
efna eftir slík áföll.
4 http://www.ancbs.org/cms/en/home2/9-on-file-past-damage/11-blue-shield-network
Vinnan við verkefnið var afar lærdómsrík en niðurstöðurnar
komu á óvart því til dæmis var Menningarmiðstöðin ekki
á lista yfir opinberar byggingar sem Almannavarnir töldu
nauðsynlegt að athuga eftir hamfarir (Viðbragðsáætlun
vegna jarðskjálfta í Þingeyjarsýslu, 2013). Þegar spurt var
um björgunaraðgerðir kom í ljós að menningarverðmæti
væru ekki á neinum forgangslista.
Staða í litlu samfélagi eftir hamfarir er viðkvæm. Flestir
upplifa áfall og ringulreið og hafa áhyggjur af líðan sinna
nánustu. Þannig gætu liðið margir dagar áður en hægt yrði
að huga að björgun menningarverðmæta og því er mikil-
vægt að vera með áætlun þar sem tilgreint er hverjir taka
þátt: heimamenn, utanaðkomandi aðilar eða hvoru tveggja?
Seinni hluti verkefnisins felur í sér að búa til leiðbeiningar
til að hjálpa söfnum/bókasöfnum/skjalasöfnum að fara í
gegnum þetta ferli og tengja sig við aðila sem geta tekið
þátt eða haft áhrif á skipulagningu björgunaraðgerða. Í
framhaldi verður unnið að kynna niðurstöður verkefnisins
fyrir hagsmunaaðilum svo sem eigendum safna, aðildar-
félögum Bláa skjaldarins, safnastarfsfólki, minjavörðum,
almannavörnum og þeim aðilum sem sinna björgunarstarfi
í landinu. Stefnt er að því að kynna verkefnið á sameigin-
legum fundum þessara aðila, ársfundum, aðalfundum, mál-
þingum og farskólum.
Fulltrúar Bláa skjaldarins vilja hvetja aðstandendur safna í
að vinna í sameiningu að endurskoðun og úrbótum á við-
bragðs og -björgunaráætlun þeirra. Mikilvægt er að koma af
stað umræðu um ábyrgðarsvið hagsmunaaðila og ræða sam-
hæfingu við björgun menningarverðmæta. Þar skiptir miklu
að vera með fyrirbyggjandi aðgerðir en ekki síður raunhæfar
og vel skipulagðar áætlanir um viðbrögð eftir hamfarir.
Lesendur sem hafa áhuga á þessu eru hvattir til að kynna
sér heimasíður Bláa skjaldarins: http://www.ancbs.org/cms/
en/about-us og www.blaiskjöldurinn.is
Hægt er að fylgjast með starfsemi BS á Íslandi á facebook:
https://www.facebook.com/blueshieldiceland/
Heimildir
Njörður Sigurðsson. (2017). Blái skjöldurinn – samstarf um verndun
menningarverðmæta. Bókasafnið, 41, 26.
Ríkislögreglustjórinn, Lögreglustjórinn á Húsavík, Almanna-
varnanefnd Þingeyinga (2013). Viðbragðsáætlun vegna jarðskjálfta
í Þingeyjarsýslu : Útgáfa 1.0, 06.03.2013.