Breiðfirðingur - 01.04.1966, Blaðsíða 33
breiðfirðingur
31
«instæðingar, munaðarleysingjar og öryrkjar, sem sakir ör-
orku, elli eða vanheilsu gátu ekki sjálfir séð sér farborða,
en áttu fáa eða enga að, sem gátu eða höfðu skyldu til
að annast um þá og veita heimilisskjól. Menn skyldu vera
þess minnugir, að í þann tíð urðu heimilin sjálf að reyna
að gegna því hlutverki, sem nú hefur að mestu flutzt yfir
lil elliheimila, barnaheimila, hæla og sjúkrahúsa.
Af þessum gömlu stórbýlum er mér eitt einkum minnis-
stætt frá bernsku- og æskudögum mínum — Reykhólar í
Austur-Barðastrandarsýslu.
Frá 1899 og fram að 1920 bjuggu á Reykhólum heið-
urshjónin Hákon Magnússon og Arndís Bjarnadóttir.
Bjuggu þau á allri jörðinni.
Arndís Bjarnadóttir var fædd 27. okt. 1862 í Akureyj-
um á Breiðafirði. Var hún dóttir Bjarna Þórðarsonar (er
þar var þá ráðsmaður hjá sr. Friðriki Eggerz) og fyrri
konu hans, Sigríðar Jóhannesdóttur úr Bjarneyjum. En
kornung fluttist Arndís með föður sínum að Reykhólum,
en þar bjó Bjarni síðan mörg ár stórbúi við mikla rausn.
1 oru Reykhólar því æskustöðvar Arndísar og föðurgarður.
Hákon Magnússon var heldur ekki langt að kominn. Hann
var fæddur að Kletti í Geiradal 1. sept. 1864. Foreldrar
hans voru Magnús Jónsson Jónssonar frá Hólum í Reyk-
hólasveit og kona hans Oddfríður Hákonardóttir Lofts-
sonar á Kinnarstöðum. Hákon var seinni maður Arndísar,
en fyrri maður hennar var Guðmundur Guðmundsson. Var
sambúð þeirra stutt, því að hann drukknaði á unga aldri.
Með Guðmundi átti Arndís þrjár dætur. Dóu tvær ungar,
en ein komst til fuRorðinsára — Kristín. Giftist hún ung
Jónasi Sveinssyni — húnvetnskum að ætt. Þau bjuggu að