Breiðfirðingur - 01.04.1966, Blaðsíða 9
BREIÐFIRÐINGUR
7
in. Honum bar að höndum sonarlát, sem ekki varð honum
síður torvelt en Agli forðum. Ovægur sjúkdómur lagði
fjötur á tungu hans, sem hafði áður svo margt vel mælt og
af kyngi og loks andaðist Egill, sonur hans, snögglega nú
fyrir jólin, en skammt varð milli þeirra feðga.
Helgi Hjörvar kvæntist 15. júní 1917 Rósu Daðadóttur
frá Vatnshorni í Haukadal, glæsilegri sæmdar og gæða-
konu. Var hún manni sínum alla stund mikil heillastjarna.
Varð þeim átta barna auðið, og eru sex á lífi og ættgarður
þeirra hjóna stór orðinn. Voru þau Helgi og Rósa, kona
hans, samhent um höfðingsskap og ánægjulegt að gista
heimili þeirra þar sem saman fór myndarbragur húsfreyj-
unnar og skemmtiræður bóndans.
Ég votta frú Rósu, börnum hennar og vandamönnum
innilega samúð í hörmum þeirra og kveð Helga Hjörvar
með þökk fyrir margar skemmtilegar og lærdómsríkar
stundir, er við áttum saman forðum, og kemur mér þá
enn í hug vísa Gríms Thomsen, er hann mælti eftir annan
unnanda íslenzkrar fornaldar og við fórum stundum með:
Forn í skapi og forn í máli
farinn er hann til þeirra á braut,
er sálir áttu settar stáli,
situr hann þar hjá Agli og Njáli,
Abrahams honum er það skaut.
Andrés Björnsson.