Breiðfirðingur - 01.04.1966, Blaðsíða 44
Breiðfirzkir landkönnuðir
Það er mikið rætt og ritað um landafundi Norðurlanda-
búa. Og Leifur heppni hefur komizt á framsíður allflestra
heimsblaðanna nú á árinu 1965.
Hann hefur meira að segja skyggt á Kolumbus á þann
liátt að allur heimurinn, og þó sérstaklega hin fornu menn-
ingarlönd Suður-Evrópu hefur kippzt við eins og í jarð-
skjálfta.
Og vísindamenn hafa vaknað af værum blundi á mjúk-
um þægilegum kodda sögunnar og allt í einu uppgötvað,
að ýmislegt þyrfti að athuga betur, ef finna ætti hið eina
sanna og rétta um landkönnuði frá 10. og 11. öld og af-
rek þeirra.
En allt er þetta út af landabréfum upprunalegum eða
fölsuðum, en í öllu falli fundnum í Vesturheimi og talin
merkileg með tilliti til komu hvíta mannsins í þann heirns-
hluta.
Kannske skiptir þetta ekki ýkjamiklu máli fyrir mann-
kynið á 20. öld. En samt er það svo, að margir hafa farið
að hugsa, sem aldrei hafa tekið eftir neinu af þessu tagi
fyrri, og aðrir hafarumskað og litið í kringum sig, ef hafa
mætti það, sem sannara reynist, eins og Ari fróði sagði
forðum.
En okkur, sem að vissu leyti stöndum þarna öðrum nær,