Breiðfirðingur - 01.04.1996, Page 16
14
BREIÐFIRÐINGUR
ekki. Sé þetta rétt er hún farin frá frændfólki sínu í Suður-
dölum 1899, en úr sýslunni 1901 eða fyrr, og er annað tveggja
að hún hefur lagt í Ameríkuferðina um þetta leyti eða hún
hefur flutt manntalsheimili sitt í aðra sýslu þar sem hún er
ófundin.
Um Ameríkudvöl Þjóðhildar er flest á huldu sem fyrr sagði,
en svo mikið er víst að ekki hefur orðið úr ævikynnum við
Jónas frá Skógskoti í fyrirheitna landinu hafi Þjóðhildur vænst
þess. Hann var bundinn öðrum böndum. Og fleira mætti nefna
til sem valdið gat ráðabreytni hennar eða ýtt undir Vestur-
heimsferðina. Ekki fer hjá því að Þjóðhildur hefur haft spumir
af bræðrum sínum í Ameríku, og er ekki að vita hvað þeim
systkinum hefur farið á milli. Að minnsta kosti má ætla að
vitneskja um bræðurna vestanhafs hafi aukið Þjóðhildi kjark
sem þurfti til að leggja út í óvissuna alein og óstudd, og trú-
lega hefur ævintýralöngun og útþrá leikið með í huga lausa-
konunnar óvistráðnu.
Af samfundum Þjóðhildar og Jónasar í Amerfku fer ekki
mörgum sögum enda er óvíst þeir hafi verið miklir eða lang-
vinnir. Kyrrahafsströndin, vinnustaður Jónasar fyrstu árin í
Ameríku, hefði orðið lausakonu af íslandi drjúgur spölur í leit
að kunningja sínum og sjálfur gekk Jónas að eiga aðra konu
og stofnaði heimili í Seattle 1907 sem fyrr sagði. Þá er Þjóð-
hildur að vísu komin heim til íslands, en hugsanlega hefur
Jónas kynnst eiginkonunni og verið bundinn henni allmiklu
fyrr en þau giftu sig.
Sú sögn er uppi að Þjóðhildur hafi hitt kunningja sinn og
konu fyrir vestan og hafi Þjóðhildur sætt sig við það sem
orðið var og þau skilið sem vinir hún og Jónas13 sem hefði þá
verið áður en Jónas giftist. En hvernig sem því var háttað er
hitt víst og leikur ekki á tveim tungum að Vesturheimur gerð-
ist Þjóðhildi leiður, og fylltist hún slíkri heimþrá að ekki varð
á móti staðið. Það sagði Þjóðhildur síðar á ævi, og mátti heyra
að hún velti því stundum fyrir sér hvort henni hefði ekki verið
betra að ílendast í Ameríku og harka af sér í stað þess að láta
óhemjuskapinn ráða og snúa heim.14