Breiðfirðingur - 01.04.1996, Síða 30
28
BREIÐFIRÐINGUR
Tilvísanir
1 Vélritað eintak manntals í Þjóðskjalasafni íslands
2 Jón Guðnason, Dalamenn III, bls. 278, 335, 380.
3 Jón Guðnason Dalamenn I. 45-46, 250.
4 Artalið hef ég úr bréfi frá Eggerti Th. Kjartanssyni úr Fremri-Langey sem kannað hefur
manntöl og kirkjubækur úr Dalasýslu en hann dregur ályktun af sóknarmanntali sem sýnir að
Kristín er orðin húskona hjá dóttur sinni út í Hörðudal 1886.
5 Handrit í eigu Kristínar Kristvarðsdóttur. Fyrir bréfið eru greiddar til Landssjóðs tvær krónur.
6 Lovsamling for Island. Attende Bind. 1860-1863. Köbenhavn 1884. Bls. 549.
7 Áletrun prestsins séra Jóhannesar L. L. Jóhannessonar á húskveðju og líkræðu eftir Kristínu
Jónasdóttur frá Stóra- Skógi, 81 ára. Handrit í eigu Kristínar Kristvarðsdóttur.
8 Þennan sóknarmannatalafróðleik setti Eggert Th. Kjartansson á blað og sendi mér, sbr. Dala-
menn I. 250.
9 Það sagði mér Kristín Kristvarðsdóttir, bróðurdóttir Þjóðhildar, og fylgdi sögunni að þessi
herramaður hefði leitað eftir ástum Þjóðhildar, en það bar ekki árangur, og var Þjóðhildi farið
að leiðast í Vesturheimi. Þetta staðfesti Jóhanna Einarsdóttir frá Dunk, en hún hafði heyrt
þetta haft eftir Þjóðhildi sjálfri.
10 Dalamenn III, bls. 458, sbr. Þóra Marta Stefánsdóttir kennari, Niðjatal séra Jóns Benediktson-
ar og Guðrúnar Kortsdóttur, konu hans , bls. 39.
11 Sjá um þau systkin Jónas og Guðríði, Jón Guðnason, Dalamenn III, bls. 319 og 379. Um
Jónas J. Middal einkanlega, Æviminningarorð, Lögberg-Heimskringla, 22. febr 1962, nr. 8.
Ur Æviminningarorðum er að heita má allt sem hér segir af Jónasi sérstaklega.
12 Magnús Jósefsson bóndi á Hrafnabjörgum sem þekkir almannaróm í Hörðudal alllangt aftur
farast svo orð: „Þjóðhildur var að leita kunningja síns eða kærasta vestanhafs. Þegar hún kom
heim var hún sérleg í hátterni.“ Nafni mannsins ljóstaði bróðurdóttir Þjóðhildar upp, Kristín
Kristvarðsdóttir, og sagði mér. Hún heyrði eitthvað líkt um ástæður Þjóðu til Ameríkuferðar
og minnir að henni væri sagt að Jónas frá Skógskoti væri sá sem Þjóðhildur leitaði eftir. Þetta
fær stuðning af orðum Jóhönnu Einarsdóttur frá Dunk í Hörðudal. Hún heyrði eitthvað líkt um
ástæður Þjóðu til Ameríkufarar, þótt fleira kæmi til og minnir hana að henni væri sagt að
Jónas frá Skógskoti væri sá sem Þjóðhildur leitaði eftir. Þess ber þó að geta til varúðar að
Kristín hefur ekki nafn Jónasar frá Þjóðhildi sjálfri, og ekki Jóhanna, enda gat Þjóða lítt um
vesturför sína. En vísbending því til stuðnings að Þjóðhildur hafi leitað eftir Jónasi frá Skógs-
koti kynni það að vera sem Erlingur Hansson frá Ketilsstöðum í Hörðudal segir mér. Hann
minnir honum væri sagt að Þjóðhildur kæmist alla leið vestur að Kyrrahafi, en á þeim slóðum
starfaði Jónas sem fyrr sagði.
13 Jóhanna Einarsdóttir frá Dunk.
14 Erla Hjartardóttir frá Álfatröðum, Jóhannna frá Dunk.
15 Lauslega rakið eftir frásögn Kristínar Kristvarðsdóttur.
16 Eftir þessum kjól man Erla Hjartardóttir frá Álfatröðum og Helga Hansdóttir frá Ketilsstöð-
um, og er Erlu einkar minnisstætt að Þjóða tók kjólinn upp, þegar hún var til altaris í Snóks-
dalskirkju, enda skar Þjóða sig ævintýralega úr hópi húsmæðra í sókninni sem voru uppábúnar
á sína vísu; en Þjóðhildi brá um sinn í huldufólkskynið í framandleika sínum.
17 Einar Kristjánsson fv. skólastjóri á Laugum útvegaði mér ljósrit af uppboðsskrá sem ég kann
þakkir fyrir. Frumrit er heima í héraði.
18 I bréfi Magnúsar Gestssonar safnvarðar er það tekið fram að kistan sé komin frá Haraldi á
Sauðafelli. I fyrmefnefndri uppoðsskrá Þjóðhildarmuna er getið um kaup Haralds á kistu sem
ég hef gert ráð fyrir að sé byggðasafnskistan.
19 Heimildarmaður um þetta einstaka traust sem Þjóðhildur bar til Jóns Jóhannssonar er Teitur
kennari Þorleifsson frá Hlíð í Hörðudal.
20 Heimildarkona er Erla Hjartardóttir frá Álfatröðum.