Breiðfirðingur - 01.04.1996, Page 127
SKÓLAHALD 1 NESHREPPI UTAN ENNIS
125
um nokkru áður en þær voru lögboðnar. Kennsluáhaldaeign
skólans var fram til ársins 1935 að mestu leyti í samræmi við
þær reglur sem í gildi voru. Eftir 1935 virðast þau kennslu-
áhöld sem til voru annað hvort ganga úr sér eða eyðileggjast.
Megineinkenni kennsluháttanna var fagkennsla, hver kenn-
ari kenndi sínar námsgreinar og fóru þeir á milli bekkjadeilda
til að kenna þær. Þróun kennsluhátta virðist í grófum dráttum
vera á þá leið að fyrri hluta tfmabilsins var lögð áhersla á
utanbókarnám barnanna, þ.e. að hvert bam gæti svarað þeim
spurningum sem kennarinn lagði fyrir það. Þessi aðferð víkur
síðan fyrir því að kennarinn fjallaði um efnið og spurði síðan
út í bekkinn og mátti sá svara sem vissi. í lok tímabilsins
hefur vinnubókagerð náð að skjóta rótum.
f prófamálum var farið að lögum framanaf. Ingveldur A.
Sigmundsdóttir skólastjóri virðist hafa í byrjun þriðja ára-
tugarins kynnst hugmyndum um skrifleg próf og aðhyllst þær.
Árið 1924 tekur hún upp skrifleg próf 13 árum áður en þau
voru lögboðin.
Skólahúsnæðið í Nesskólahéraði varð fljótlega of lítið. Árið
1914 var fyrst farið að tala um að stækka það og bæta við
stofu fyrir íþróttakennslu. Þegar börnunum fjölgaði, bæði
vegna fjölgunar íbúa og síðar vegna lengingar skólaskyldu,
varð krafan um stækkun skólans háværari og ákveðnari. Þrátt
fyrir vilja og eflaust góðan ásetning skólayfirvalda verður
ekkert úr stækkun hússins eða nýbyggingu. Á árunum 1935-
43 er kennt í leiguhúsnæði úti í bæ, því þrengslin voru mikil.
Gamli skólinn var orðinn úr sér genginn; hélt hvorki vatni né
vindi, þegar loksins árið 1945 var hafist handa við að byggja
nýjan skóla, sem flutt er inn í 1946. Þessi skóli var ekki
byggður fyrr en íbúum hafði fækkað stórlega. Þegar hér var
komið voru nenrendur 50 talsins. Þessi bygging hefur verið
stórvirki á þessum tíma og hreppsyfirvöld bjartsýn; jafnvel
viljað með þessu átaki snúa vörn í sókn, því íbúum fækkaði
stöðugt.
Þegar horft er yfir tímabilið í heild þá held ég, að öllum
ólöstuðum, að á skólastjórnarárum Ingveldar Á. Sigmunds-