Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Page 16
16 SPORT 19. október 2018
RÁIN
Hafnargata 19a
Keflavík
S. 421 4601
FERSK OG FALLEG
ÞJÓNUSTAR
ÞIG Í MAT OG
DRYKK
Eiður Smári sest á skólabekk
n Eiður Smári byrjaður að læra þjálf-
arafræðin n Hefur lært af þeim bestu
E
iður Smári Guðjohnsen, einn
allra besti íþróttamaður sem
Ísland hefur átt, hefur nú
sest á skólabekk ef svo má að
orði komast. Eiður hefur nefnilega
á síðustu vikum setið á skólabekk
hjá Knattspyrnusambandi Íslands,
þar nemur hann þjálfarafræðin.
Rúmar tvær vikur eru síðan Eið-
ur tók fyrsta stigið í þjálfaraskóla
KSÍ, hann var svo aftur mættur um
liðna helgi þar sem hann tók næsta
stig. Um er að ræða bæði bóklegt
og verklegt nám. Hann var í Fífunni
um síðustu helgi þar sem Janus
Guðlaugsson, frægur kennari í
þessum fræðum, var með
kennslu. Þar þurftu Eiður
Smári og samnemendur
hans að taka hressilega á
því auk þess sem 6. flokk-
ur karla Breiðabliks mætti
á æfingu hjá þeim. Ólafur
Ingi Skúlason, sem var lengi
liðsfélagi Eiðs í lands-
liðinu, var einnig
á námskeiðinu.
Þeir hafa
undan farið
einnig vak-
ið athygli
sem sér-
fræðingar
saman
í sjónvarpi og fengið mikið lof.
Framan af ferli Eiðs sem leikmanns
þá útilokaði hann alltaf að fara út í
þjálfun en það fór að breytast þegar
líða tók á ferilinn. „ Eftir því sem árin
færast yfir mann og þú verður vitr-
ari þá uppgötvar þú hversu mikla
reynslu þú hefur og hugmyndir.
Hver veit?“ sagði Eiður Smári árið
2015. „Sérstaklega þegar þú horfir
til þeirrar kynslóðar af leikmönn-
um sem við höfum fram að tefla í
augnablikinu, yngri landsliðin eru
að standa sig virkilega vel þannig
að það væri stórkostlegt að gera
það í framtíðinni.“ Eiður hefur
unnið fyrir marga bestu
stjóra í heiminum en þar
má nefna Jose Mourinho
og Pep Guardiola. Ekki
er ólíklegt að Eiður
haldi áfram að sækja sér
menntun á nýju ári þegar
þriðja og fjórða stig KSÍ
verður kennt. n
A
lfreð Finnbogason, fram-
herji íslenska landsliðsins
og Augsburg í Þýskalandi,
hefur komið til baka
eftir meiðsli. Þessi öflugi fram-
herji kom meiddur til baka eftir
heimsmeistaramótið í Rússlandi,
sem hann lagði allt í sölurnar til
að geta tekið þátt í. Það tók sinn
toll, hann missti af fyrstu leikjum
Augsburg. Hann varð á dögunum
markahæsti leikmaður félagsins í
efstu deild Þýskalands.
Alfreð er ótrúlegur markaskor-
ari, hann kom til baka hjá Augs-
burg og skoraði fjögur mörk í
tveimur leikjum. Framherjinn
var svo á skotskónum fyrir ís-
lenska landsliðið á mánudag
þegar hann skoraði magnað
mark í leik gegn Sviss í Þjóða-
deildinni.
„Það geta allir fótboltamenn
tengt við það að vera meiddir,
það er leiðinlegi hluti af leikn-
um og okkar starfi. Ég hef því
miður verið of mikið meiddur á
þessu ári, þessi fyrri meiðsli, þá
var maður að flýta sér of mikið
til baka og þá kemur oft eitthvað
annað í kjölfarið,“ sagði Alfreð
þegar DV ræddi við hann í vik-
unni.
Varð að hvíla eftir Rússland
Alfreð hafði mikið glímt við
meiðsli fyrir heimsmeistara-
mótið í Rússland, hann hélt til
Mið-Austurlanda til þess að ná
mótinu og skoraði fyrsta mark
Íslands á mótinu og var öflug-
ur. Það kostaði hann þó fjarveru
frá vellinum í nokkra mánuði.
„Núna í sumar glímdi ég bara
við of mikið af verkjum eftir að
hafa verið meiddur í 2–3 mánuði
og þurfti að hvíla ef þetta átti að
ná að skána. Ég þurfti bara að
taka minn tíma. Við settum upp
plan sem gekk gríðarlega vel og
ég er að spila núna og mér líður
vel. Þetta er í fyrsta skipti í leikj-
um á þessu ári sem ég er eymsla-
laus. Ég hef annars verið meidd-
ur, hálfmeiddur eða ný mættur
til baka eftir meiðsli. Það er mjög
þreytandi til lengdar að vera í
þannig ástandi.“
Meiðsli settu strik í
reikninginn
Alfreð hefur misst af 35 leikjum
með Augsburg eftir að hann
kom til félagsins í janúar árið
2016. Hann hugsar nú um að ná
heilsu. „Þetta hefur verið svolítið
tætt, fyrsta hálfa árið var ég heill
og gekk virkilega vel. Tímabil-
ið á eftir var ég frá í sex mánuði,
og í fyrra var mitt eina mark-
mið að spila 30 leiki. Fyrri hluti
tímabilsins gekk frábærlega, ég
spilaði alla leiki og gekk mjög vel.
Svo meiddist ég í tvígang í byrj-
un árs sem kostaði mig seinni
umferðina í deildinni. Markmið
mitt er meira í þá áttina að
halda heilsu. Alltaf þegar ég hef
verið heill hjá Augsburg, þá hef
ég verið liðinu mikilvægur og
okkur hefur vegnað nokkuð vel.“
Fundur um nýjan samning á
næstunni
Alfreð á eitt og hálft ár eftir af
samningi sínum við félagið. Hann
býst við að setjast niður með fé-
laginu á næstunni og ræða fram-
lengingu. „Það er ekki komið svo
langt, ég geri ráð fyrir að funda
með þeim nú í október eða nóvem-
ber. Þá skýrast línurnar, ég er lítið
að hugsa um þau mál og einbeitt
mér að því að koma til baka, heill
heilsu. Njóta þess að spila, þannig
áttu þín bestu augnablik, þegar þú
ert ekkert að pæla í samningum
eða félagaskiptum. Það er gamla
góða núið, þá næst góður árang-
ur. Ef maður er að setja einhverja
auka pressu á sig þá finnst mér
líkurnar aukast á meiðslum eða
gengið verði ekki gott, það er mín
reynsla. Ég er í frábæri stöðu hjá
Augsburg, alltaf þegar ég hef ver-
ið heill, þá hef ég byrjað leiki og
notið trausts. Ég kann virki-
lega vel að meta það.“ n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
VERKJALAUS OG BLÓMSTRAR
SEM ALDREI FYRR
n Alfreð Finnbogason er ótrúlegur markaskorari
n Elskaður og dáður í Þýskalandi
Tímabil Leikir Mörk
2018–19 2 4 mörk
2017–18 22 12 mörk
2016–17 13 3 mörk
2015–16 14 7 mörk
Mögnuð tölfræði Alfreðs með Augsburg: