Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Side 18
18 UMRÆÐA
Sandkorn
19. október 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Gullið tækifæri fyrir meirihlutann
B
raggabókhaldið er eins og
blanda af grískum harmleik
og farsa. Ef það væri sett á
svið yrði fullt út úr dyrum
í margar vikur enda fær frægasta
bókhald Íslandssögunnar fimm
stjörnur fyrir vitleysu og bruðl. Þar
má lesa um hönnuð sem sat í 1.300
klukkutíma á þriggja ára tímabili
að hanna. Þá greiddi Reykjavíkur
borg iðnaðarmanni tæplega 500
þúsund krónur fyrir „ýmislegt“. Já,
það er ýmislegt hægt að gera fyrir
hálfa milljón. Það er alveg nóg af
góðum en sorglegum bröndurum
inni á milli bruðlsins. En með
birtingu reikninganna úr bragga
bókhaldinu hefur almenning
ur fengið fordæmalausa innsýn í
hvað Reykjavíkurborg gerir með
útsvar borgarbúa. Dýrasti braggi
í heimi er alls ekki fyrsta og eina
dæmið þar sem kostnaður fer úr
böndunum. Það sem er einstakt
við þetta mál er að fjöldi manns
innan kerfisins vissi af framúr
keyrslunni en á þessum tíma
punkti virðist sem kjörnir full
trúar hafi ekkert vitað fyrr en það
var búið að greiða reikningana. Ef
þetta er allt satt og rétt þá erum við
að tala um fjölda manns sem hélt
á pólitískri sprengju áður en síð
ustu sveitarstjórnarkosningar fóru
fram.
Líkt og kom fram í leiðara síð
asta helgarblaðs hefur borgarkerf
ið reynt að kæfa þetta mál og það
er ekkert sem bendir til þess að
það sé að fara að breytast. Borgar
lögmaður er ekki að hringja til
baka og segja blaðamönnum
hvers vegna það tók innkaupa
ráð 14 mánuði að fá álit um hvort
samningarnir í kringum bragg
ann stæðust innkaupareglur. Það
er ekki verið að opinbera fundar
gerðir frá vikulegu fundunum þar
sem verkfræðingur var búinn að
reikna út kostnaðinn á hverjum
tíma. Gleymdu því að einhver fái
að vita hverjir höfðu aðgang að
þessum upplýsingum.
Þrátt fyrir að allir sem hugsan
lega geta borið ábyrgð séu að
harðahlaupum undan þessu
máli má segja að meirihlut
inn í borginni hafi gullið tæki
færi í höndunum. Sveitarstjórnar
kosningar eru aðeins á fjögurra
ára fresti þannig að þau hafa nú
meira en þrjú ár til þess að auka
traust á sér og borginni allri. Þrjú
ár í stjórnmálum er alveg nægur
tími til að byggja upp traust og
sanna fyrir borgarbúum að það
eru kjörnir fulltrúar en ekki kerfið
sem ræður ferðinni.
Til dæmis er hægt að koma því
þannig í kring að kerfið sé í alvör
unni gegnsætt þannig að borgar
búar geti flett upp í fundargerðum
um leið og búið er að skila þeim
inn. Í dag virðist það vera þannig
að ekki einu sinni borgarfulltrúar
vita hvað er verið að sýsla með
fjármuni borgarbúa á hinum og
þessum fundum.
Það er alveg ótrúlegt að horfa
á myndirnar og lesa fréttatilkynn
inguna þegar braggaverkefnið var
kynnt í Nauthólsvík á haustdögum
2015. Síðan þá hefur borist alveg
óteljandi fjöldi af jákvæðum frétta
tilkynningum. Það kom engin
fréttatilkynning þegar verkefnið
fór úr böndunum. Miðað við það
sem á undan er gengið þá eykst
traustið ekki með því að birta fleiri
myndir af skóflustungum, undir
ritun samninga eða borðaklipp
ingum.
Meirihluti Samfylkingarinnar,
Viðreisnar, Pírata og Vinstri
grænna getur svo auðveldlega
snúið þessu við. Nú eru þau líka
með fleiri borgarfulltrúa sem geta
þá farið í að skoða og leggja póli
tískt mat á hvað borgarkerfið er
að gera. Braggamálið hefur orðið
til þess að aðrar framkvæmdir á
vegum borgarinnar og annarra
sveitarfélaga fara undir smásjá.
Það munu koma upp erfið mál og
ef það á að halda áfram að hlaupa
í vörn þá eru þeim mun meiri líkur
á að meirihlutinn fái reisupassann
í næstu kosningum. n
Leiðari
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Sjálfstæðismenn niður
greiða kjöt fyrir komm
únista
Tveir ráðherrar Sjálfstæðis
flokksins hafa fundað með Kín
verjum og skrifað undir plögg
sem hafa þann tilgang að hefja
útflutning á lambakjöti til Kína.
Lambakjöt er niðurgreitt af rík
inu og þekkt er að það sé niður
greitt enn frekar til útflutnings.
Dæmi eru um að Íslendingar
kaupi íslenskt lambakjöt á
spottprís erlendis og flytji það
með heim.
Nú eru Kínverjar ansi margir
og telst mjög hæpið að margir
þeirra fái að smakka nýjustu
innflutningsvöruna. Yrði það
helst elítan. Í Kína tilheyrir
elítan Kommúnistaflokknum.
Því má segja að Sjálfstæðis
menn séu að niðurgreiða kjöt
fyrir kommúnista.
Usli í stjórn Miðflokksins
Deilur standa nú yfir um ráðn
ingu á framkvæmdastjóra Mið
flokksins. Tilraun var gerð til að
fá Grétu Björgu Egilsdóttur ráðna.
Hún er fyrrverandi varaborgar
fulltrúi Framsóknarflokksins
og eiginkona Reynis Þórs Grétars
sonar, formanns Miðflokks
félags Reykjavíkur. Í vor var
hún ráðin sem kosningastjóri
flokksins í Reykjavík.
Olli það kurr þegar ekki fékkst
samþykkt fyrir ráðningu Grétu
sem framkvæmdastjóra og er
staða Reynis nú í óvissu. Lík
legt þykir að Linda Jónsdóttir taki
við stöðu hans sem formanns
félagsins. Hún
er eiginkona
Baldurs Borg
þórssonar,
varaborgar
fulltrúa og
einkaþjálfara
Sigmundar Dav
íðs Gunnlaugs
sonar for
manns.
Spurning vikunnar Hvað myndir þú nota braggapeninginn í?
„Nota þá í góðgerðar-
starfsemi“
Ríkey Beck
„Ég myndi setja þá í verka-
mannabústaði“
Finnbogi Laxdal Finn-
bogason
„Að minnsta kosti ekki
í að gera upp bragga“
Páll Guðnason
„Margt.
Helst til barna, leik-
skóla og eftirlaunaþega“
Munda Jóhanns-
dóttir