Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Side 31
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
ET VERSLUN:
Vinnuljós og öll ljós á bíla
ET Verslun, Klettagörðum 11, er á meðal leiðandi aðila í sölu á ljósabúnaði fyrir ökutæki
og vinnuvélar, þar á meðal eru
ljóskastarar, vinnuljós og afturljós.
Eigendur breyttra jeppa, vinnuvéla
og vörubíla eru á meðal helstu við-
skiptavina verslunarinnar sem sér
þeim fyrir öllum þeim ljósum sem
þá vanhagar um og kappkostar
að selja gæðaljós undir þekktum
merkjum á sanngjörnu verði.
ET Verslun selur framljós, aftur-
ljós, hliðarljós, vinnuljós og ljóskast-
ara. Meðal merkja eru bandarísku
Rigid-ljósin sem slegið hafa í gegn
á Íslandi fyrir frábæra endingu.
Einnig má nefna sænska merkið
LEDSON sem sérhæfir sig í fram-
leiðslu á díóðuljósum, meðal annars
díóðuljóskösturum, vinnuljósum
og perum. Vinsælasti kastarinn í
dag kallast Pollox og kemur einmitt
frá LEDSON, um er að ræða 9“
díóðu(LED)-kastara sem lýsir upp
endurskinið á vegstikum í 850
metra fjarlægð.
Nær allir breyttir jeppar eru
með aukaljós og eigendur slíkra
ökutækja ganga að góðu úrvali og
framúrskarandi gæðum í ET Versl-
un, hvort sem um ræðir kastara,
vinnuljós, bakkljós eða inniljós. ET
Verslun er þekkt fyrir góða þjón-
ustu við jeppaeigendur og var
nýlega með bás á jeppasýningu
Ferðaklúbbsins 4X4.
Jafnframt er ljósaúrvalið hjá ET
Verslun ekki síðra þegar kemur að
hliðarljósum og afturljósum sem
eru fáanleg í mörgum stærðum og
gerðum.
ET Verslun hefur verið starfandi í
26 ár og hefur því mikla reynslu af
þjónustu við bíleigendur og eigend-
ur annarra ökutækja, til dæmis
vinnuvéla. Fyrir utan ljósaúrvalið er
verslunin framarlega í framboði á
vagnavarahlutum, vökvabúnaði
og mörgu öðru. Ávallt kappkostar
ET Verslun að koma fram með
nýjungar sem gagnast eigendum
ökutækja vel.
Sem fyrr segir er verslunin
til húsa að Klettagörðum 11.
Opið er virka daga frá kl. 8
til 18 og laugardaga frá
10 til 14. Sjá nán-
ar á et.is undir
Verslun og
á Facebook-
-síðunni ET
Verslun.