Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 31
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018 KYNNINGARBLAÐ ET VERSLUN: Vinnuljós og öll ljós á bíla ET Verslun, Klettagörðum 11, er á meðal leiðandi aðila í sölu á ljósabúnaði fyrir ökutæki og vinnuvélar, þar á meðal eru ljóskastarar, vinnuljós og afturljós. Eigendur breyttra jeppa, vinnuvéla og vörubíla eru á meðal helstu við- skiptavina verslunarinnar sem sér þeim fyrir öllum þeim ljósum sem þá vanhagar um og kappkostar að selja gæðaljós undir þekktum merkjum á sanngjörnu verði. ET Verslun selur framljós, aftur- ljós, hliðarljós, vinnuljós og ljóskast- ara. Meðal merkja eru bandarísku Rigid-ljósin sem slegið hafa í gegn á Íslandi fyrir frábæra endingu. Einnig má nefna sænska merkið LEDSON sem sérhæfir sig í fram- leiðslu á díóðuljósum, meðal annars díóðuljóskösturum, vinnuljósum og perum. Vinsælasti kastarinn í dag kallast Pollox og kemur einmitt frá LEDSON, um er að ræða 9“ díóðu(LED)-kastara sem lýsir upp endurskinið á vegstikum í 850 metra fjarlægð. Nær allir breyttir jeppar eru með aukaljós og eigendur slíkra ökutækja ganga að góðu úrvali og framúrskarandi gæðum í ET Versl- un, hvort sem um ræðir kastara, vinnuljós, bakkljós eða inniljós. ET Verslun er þekkt fyrir góða þjón- ustu við jeppaeigendur og var nýlega með bás á jeppasýningu Ferðaklúbbsins 4X4. Jafnframt er ljósaúrvalið hjá ET Verslun ekki síðra þegar kemur að hliðarljósum og afturljósum sem eru fáanleg í mörgum stærðum og gerðum. ET Verslun hefur verið starfandi í 26 ár og hefur því mikla reynslu af þjónustu við bíleigendur og eigend- ur annarra ökutækja, til dæmis vinnuvéla. Fyrir utan ljósaúrvalið er verslunin framarlega í framboði á vagnavarahlutum, vökvabúnaði og mörgu öðru. Ávallt kappkostar ET Verslun að koma fram með nýjungar sem gagnast eigendum ökutækja vel. Sem fyrr segir er verslunin til húsa að Klettagörðum 11. Opið er virka daga frá kl. 8 til 18 og laugardaga frá 10 til 14. Sjá nán- ar á et.is undir Verslun og á Facebook- -síðunni ET Verslun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.