Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Side 44
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018KYNNINGARBLAÐ Blómlaga ilmkerti í alls konar litum eru á meðal þess sem vefverslunin Vonir.is býður upp á en þessi fallegu kerti skapa feg- urð og stemningu í skammdeginu. Kertin geta hvort sem er verið hluti af jólaskreytingu eða einfaldlega lýsandi híbýlaprýði í hauströkkrinu. Þá tilheyrir líka að kveikja á reykelsi og framkalla unaðslegan og dálítið mystískan ilm en hjá Vonir.is er að finna gott úrval af reykelsum. Von er á reykelsum með jólailmi í verslunina innan tíðar. Vonir.is er vefverslun með alls konar fallega hluti fyrir heimilið; skartgripi, ilmvörur og fleira. Þess má geta að nú stendur yfir rýmingarsala á skartgrip- um í versluninni og því hægt að gera mjög góð kaup. Verslunin er í eigu Hönnu Margrét- ar Úlfsdóttur sem búsett er á Þórs- höfn. Hún rekur fyrirtækið samhliða kennaranámi sínu við Háskólann á Ak- ureyri en það stundar hún í fjarnámi. Staðsetning og fjarlægðir skipta því engu máli í lífi Hönnu því hún sendir varninginn úr versluninni hvert á land sem er og námið stundar hún líka í heimabyggðinni, Þórshöfn. Gjafabréfin eru áhugaverður kostur Fjölbreytni einkennir vefverslunina og þess vegna eru gjafabréf áhugaverð- ur kostur. Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir 3.000, 5.000, 10.000 og 15.000 krónur. Skýrar og góðar upplýsingar um kaup á gjafabréfum er að finna á heimasíðunni, Vonir.is. Umhverfisvænar áherslur og Fair Trade Umhverfisvernd og Fair Trade eru gegnumgangandi stef í öllu vöruúrvali hjá Vonir.is. Eingöngu eru seldar vörur frá aðilum með Fair Trade-vottun eða sambærilega staðfestingu. Þannig er tryggt að vörurnar séu búnar til við góð skilyrði og allt starfsfólk fær sann- gjörn laun fyrir vinnu sína. Auk þess er stuðlað að umhverfisvernd með því að nota endurunnin hráefni og hráefni sem aflað er á sjálfbæran hátt. Þess má geta að undanfarið hefur selst mikið af bambustannburstum og margnota sogrörum úr ryðfríu stáli – en þessi áhugi sprettur upp í fram- haldi af plastlausum september. Nánari upplýsingar á vonir.is og í síma 846-3237. VONIR.IS: Blómleg ilmkerti og umhverfisvænar jólagjafir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.