Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Qupperneq 65
SAKAMÁL 6519. október 2018
Að ættingjum Billys hafði læðst
illur grunur – að Terrie væri ekki
öll þar sem hún væri séð. Réðu
ættingjarnir einkaspæjara sem
komst fljótlega að því að Terrie var
í óða önn að selja allar eigur Billys.
Einnig birtust í einkamálaaug
lýsingum fyrir einmana fólk aug
lýsingar frá henni, en hún hafði
reyndar hitt Billy fyrir tilstilli slíkra
auglýsinga.
Rifust um drykkju og fjárdrátt
Einkaspæjarinn lét slag standa og
spurði Terrie hreint út hvort hún
bæri ábyrgð á dauða eiginmanns
síns. Terrie bugaðist og játaði allt
saman.
Að hennar sögn höfðu þau farið
í göngutúr, hún með dóttur þeirra
á bakinu, og farið að rífast.
Þau rifust annars vegar um
drykkju Billys og hins vegar um
65.000 dali sem hún hafði dregið
sér frá fyrrverandi vinnuveitanda
í Utah. Það sem fór fyrir brjóstið
á Billy var að hún hafði ekki deilt
hinu illa fengna fé með honum.
Billy hefði slegið hana, dóttir
þeirra farið að gráta og hún seilst
eftir flösku til að verja sig.
„Slæmu“ persónurnar
Síðar breytti hún frásögninni; hún
dró byssu upp úr pússi sínu og
skaut eiginmann sinn í andlitið og
síðan í hnakkann þar sem hann lá
óvígur.
Síðar kom í ljós að Terrie hafði
allt í allt dregið sér 228.000 dali frá
tryggingafyrirtæki í Montana árið
1986.
Terrie fullyrti að hún glímdi við
rofinn persónuleika og það væru
„slæmu“ persónurnar sem fengju
hana til að gera eitthvað slæmt.
Eitthvað hafði Terrie fyrir sér í
þeirri fullyrðingu því réttarskip
aður geðlæknir komst að sömu
niðurstöðu. Terrie Sramek var gef
inn kostur á að játa sig seka og fá
15 ára fangelsisdóm í stað lífstíðar.
Hún tók boðinu. n
3 nýfædd börn sín myrti bandaríska konan Diane Odell. Börnin myrti hún árin 1982, 1983 og 1985. Diane var þó ekki handtekin fyrr en árið 2003.
Líkum barnanna vafði hún inn í teppi, setti síðan í rusla-
poka og tróð þeim þeim í pappakassa. Líkin fundust
í maí 2003 í geymsluhúsnæði sem Odell-fjölskyldan
hafði tekið á leigu árið 1992 og því ljóst að þau höfðu
fylgt Diane hvert sem fjölskyldan flutti; kannski vildi
hún hafa líkin hjá sér eða taldi að þannig væru minnstar
líkur á að upp um hana kæmist. Hvað sem því líður þá
fékk hún lífstíðardóm í janúar 2004.
EIGINKONAN MEÐ ROFNA PERSÓNULEIKANN
Við gömlu höfnina
EILÍF HAMINGJA
GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT,
HUMARSÚPA & BRAUÐ
HÁDEGIS TILBOÐ
VIRKA DAGA
2.850
MORÐIÐ Í MIÐASÖLUNNI
n James fór ekki leynt með áhuga sinn á Ash Vale-járnbrautarstöðinni n Hagaði sér engan veginn eins og bíræfinn þjófur
hafði verið stunginn mörgum
sinnum og skrifstofunni um
turnað.
Gistihús könnuð
Ekki var að undra að nafn James
Alcott bæri á góma í samtölum
lögreglu og starfsmanna járn
brautarstöðvarinnar, enda hafði
maðurinn verið eins og grár
köttur á stöðinni, þar á meðal í
miðasölunni.
Í ljósi þess beindist grunur lög
reglunnar nánast eingöngu að
James og þegar morgnaði kann
aði hún gistihús í grenndinni.
Fljótlega hljóp á snærið því í gisti
húsi við Victoria Road í Alder
shot fengust þær upplýsingar að
J.J. Alcott hefði tekið herbergi á
leigu kvöldið áður og hygðist vera
út vikuna. Hann var reyndar ekki
inni við þegar þar var komið sögu,
en kæmi heim fyrir lokun, klukk
an 23.15.
Nýr alklæðnaður
Við leit á herbergi James fannst
blóðugur jakki hans á rúminu. Í
einum jakkavasanum var blóðugt
veski, með bresku vegabréfi í og
tveir peningaseðlar með blóðslett
um á. Dálkinn fann lögreglan þar
sem hann hafði verið falinn í eld
stæðisloftrásinni. Við leit utandyra
fundust buxur James í runna í ná
grenninu.
Þegar James kom á gistihúsið
um klukkan ellefu varð ljóst að
hann hafði keypt ýmislegt þann
daginn. Hann klæddist nýjum
jakka, nýjum buxum og skórnir
voru einnig nýir. Gömlu skórnir
fundust síðar hjá skósmiði
nokkrum.
Í sjálfu sér þurfti ekki frekari
vitnanna við og sú varð raunin.
Borðleggjandi mál
Þegar James voru sýndir peninga
seðlarnir sem fundust í blóðugum
jakka hans, sagði hann. „Já, þetta
er einhver hluti peninganna.“ Síð
an bætti hann við að hann kærði
sig eiginlega ekki um þá, því hann
ætti sjálfur peninga fyrir fríið.
„Það var ljóst að þið mynduð
ná mér. Við tókumst harkalega á
og þið finnið fingraför mín úti um
allt,“ sagði James og málið taldist
upplýst.
Rannsókn lögreglunnar leiddi,
henni til mikillar undrunar, í ljós
að þetta var ekki í fyrsta sinn sem
James hafði orðið manni að bana.
Hann hafði sem breskur hermaður
verið í Þýskalandi árið 1949 og
hafði þá verið dreginn fyrir herrétt
fyrir að hafa banað almennum,
þýskum borgara.
Annar dauðadómur
Breska krúnan hafði þá hafnað að
staðfesta dauðadóm yfir James og
honum sleppt um síðir. Við réttar
höld yfir James vegna morðsins
á Geoffrey var annað uppi á ten
ingnum og niðurstaðan í Surrey
í nóvember 1952 var dauðadóm
ur. Í það skipti var dómnum full
nægt. n
James Alcott Var ekki undrandi
þegar hann var handtekinn.
Ash Vale-járnbrautarstöðin Vettvangur
glæps James Alcott.