Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Síða 4
4 fólk 11. maí 2018
Bjarney er sólin í lífi MánaÍ sumarbyrjun hefur ástin bankað upp á hjá nokkrum pörum, sum sem eru að hefja kynni og
önnur sem eru að festa heitin fyrir hvort öðru,
vinum og vandamönnum. Þessir einstaklingar
eru þar á meðal. DV óskar pörunum innilega til
hamingju með ástina og hvort annað.
ragna@dv.is
Útvarpsmaðurinn beinskeytti Máni
Pétursson, annar Harmageddon-
bræðra, og Bjarney Björnsdóttir
giftu sig með pomp og prakt síðast-
liðinn miðvikudag. Davíð Þór Jóns-
son gifti parið með gleði og glans í
Hlégarði og á eftir var dansað fram
á rauða nótt. Parið notaði skemmti-
legt myllumerki sem gestir gátu
merkt myndir sínar undir: #bjani.
Rétt er þó að taka fram að orðið á
alls ekki við um parið, enda bæði
ríkum kostum gædd.
Sölvi Tryggva genginn út?:
Kósíkvöld með Guðrúnu
Fátt vakti meiri athygli í vikunni
sem leið en áhrifaríkt viðtal
Sölva Tryggvasonar við Guð-
rúnu Dögg Rúnarsdóttur.
Viðtalið, sem birtist í Frétta-
blaðinu, fjallaði um alvarlegt of-
beldi sem fegurðardrottningin
varð fyrir af hálfu kærasta síns
sem leiddi til þess að hún þurfti
að flýja land um tíma. Það tók
Guðrúnu Dögg sex ár að vinna
sig úr afleiðingum ofbeldisins
og meðal annars átti hún erfitt
með að fara út úr húsi í heima-
bæ sínum Akranesi. Guðrún
Dögg hefur unnið vel úr sinni
reynslu og ekki skemmir fyr-
ir að vinnsla viðtalsins virðist
hafa tendrað ástarbál hjá henni
og Sölva. Skömmu eftir að við-
talið birtist birti Guðrún Dögg
meðfylgjandi mynd af fjölmiðla-
manninum og sagði að „kósý-
kvöld“ væri framundan.
Marín Manda flýgur á
vængjum ástarinnar
Marín Manda
Magnúsdóttir,
flugfreyja hjá
WOW air, er virk
og vinsæl á sam-
félagsmiðlinum
Instagram.
Á dögun-
um brá hún sér
til Pittsburg,
eins af áfanga-
stöðum WOW
air í Banda-
ríkjunum, og
frumsýndi nýj-
an kærasta í
leiðinni. Sá
heppni heitir
Hannes Frímann
Hrólfsson og hefur komið
víða við í íslensku viðskiptalífi.
Hann starfar í dag sem fram-
kvæmdastjóri eignastýringar
Kviku banka.
Fjölnir Þorgeirsson undirbýr sumarbrúðkaup
Hestamaðurinn Fjölnir
Þorgeirsson er nú staddur
ásamt kærustu sinni, Mar-
gréti Magnúsdóttur, skrif-
stofustjóra RÚV, og vinafólki
í slökunarferð á La Marina.
Tíminn í sólarlöndum
er notaður í kjólamátun
þar sem Fjölnir og Margrét
undirbúa nú brúðkaup sitt.
Ekki er vitað hvenær stóri
dagurinn er, en parið hefur
verið saman í rúmt ár. Þau
opinberuðu samband sitt á
árshátíð RÚV í febrúar í fyrra.
Kærastan fylgdi Ara til Lissabon
Ari Ólafsson var okkar fulltrúi
í Eurovision þetta árið og þó að
margir hafi haft skoðun
á ágæti lagsins og hvort
það ætti erindi í keppn-
ina eða ekki, þá geta
flestir verið sammála
um að Ari var glæsileg-
ur fulltrúi þjóðarinnar
og skilaði sínu framlagi
með glæsibrag.
Á meðal þeirra
sem fylgdu Ara í þetta
stærsta ævintýri lífs
hans til þessa, var
kærastan. Hin heppna heit-
ir Sigurbjörg María Kristjáns-
dóttir og verður hún tvítug á
árinu. Í Facebook- færslu eft-
ir undanúrslitakvöldið síðast-
liðinn þriðjudag, þar sem ljóst
var að Ísland kæmist ekki upp
úr undankeppni þetta árið,
skrifar Sigurbjörg:
„Hann Ari minn hefur stað-
ið sig svo ótrúlega vel síðustu
mánuði. Allt sem hann hefur
tekið sér fyrir hendur hefur
hann gert frábærlega og ég er
alltaf jafn stolt af honum. Í gær
sat ég í höllinni og hlustaði á
hann flytja lagið og það eina
sem ég gat hugsað var: „Vá, hann
gjörsamlega negldi þetta.“ Það
hefur verið algjört ævintýri að
fylgjast með Eurovision-ferl-
inu hans og sjá hvað hann hefur
þroskast sem söngvari. Hann
stóð sig svo vel í gær og ég gæti
ekki verið stoltari af honum Ara
mínum. Ari ég elska þig.Takk
kæru vinir fyrir allan stuðn-
inginn.“
Fræga Fólkið og örvar amors
Ari og Sigurbjörg María hittu
leikarann Will Ferrell.