Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Síða 14
14 11. maí 2018bleikt - kynlíf
Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði I Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Rúmföt & lök
mikið úrval
Sloppar
fyrir bæði kyn
Handklæði
Mikið úrval
Gerið gæða- og verðsamanburð
Logi heldur framhjá
með karlmönnum
n Er Guðfinna of venjuleg í kynlífinu? n Hvað á Logi að gera?
Hæ Ragga
Það tók langan tíma að
safna kjarki til að skrifa þetta
bréf til þín. Erindið varðar mál
sem fyllir mig skömm og kvíða.
Ég er kannski tvíkynhneigð-
ur en get ekki hugsað mér að
horfast í augu við það. Síð-
ustu fimmtán ár hef ég leyft
mér af og til að hitta karlmenn
og stunda með þeim kynlíf.
Þegar það er afstaðið líður mér
hræðilega illa – ég fer heim,
reyni að haga mér eðlilega
og gleyma þangað til þörfin
kviknar aftur. Ég er í sambúð
með konu, sem hefur varað í 20
ár. Hún veit ekkert. Ragga mér
líður ógeðslega illa yfir þessu –
hvað á ég að gera?
Með kveðju, Logi
Hæ Logi
Málið snýst um að þú ert
búinn að vera haldandi fram-
hjá konunni þinni í einn og
hálfan áratug. Þess vegna líð-
ur þér illa. Kynhneigðin kemur
málinu ekki við. Jú, ókei, það
er örugglega glatað að vera
heltekinn af skömm yfir kyn-
hneigð öll þessi ár – en hættu
fyrst að halda framhjá eða
endaðu sambandið með kon-
unni svo þú getir stungið getn-
aðarlim þínum á þá staði sem
þig langar. Margir lifa þannig
lífi! Meira að segja innan sam-
banda, því opin sambönd eru
líka til!
Eitt að lokum – ég ræð þér
frá því að hrynja á hnén og
játa allar syndir þínar fyrir
konunni – það kann sjaldnast
góðri lukku að stýra. Skömm-
in er þín og úrvinnslan er þín,
ekki dömpa þessu yfir á kon-
una.
Gangi þér vel, kæri vinur,
Ragga
Hæ Ragga
Ég fylgist mikið með umræðu
um kynlíf og sambönd í samfé-
laginu, meðal annars með þínum
skrifum. Mér finnst merkilegt og
heillandi að uppgötva hvað fólk er
að pæla og gera varðandi kynlíf,
en á sama tíma hef ég orðið hugsi
varðandi mitt eigið kynlíf. Ég er
svo rosalega venjuleg. Ég er í sam-
bandi, 49 ára gömul, stunda kynlíf
að meðaltali tvisvar í viku án allra
tækja, leikja eða hlutverka – í raun
bara inni í rúmi og fíla það í botn.
Sjálfsfróun stunda ég af og til, og ef
ég kíki á klámefni er það yfirleitt
kynlíf konu og karls í trúboðastell-
ingu. Ég hef aldrei haldið framhjá,
ekki maðurinn minn heldur (svo
ég viti), og mig hefur aldrei lang-
að í annan mann þessi 9 ár sem
við höfum verið saman. Nú spyr ég
– getur verið að ég sé of venjuleg?
Er ég óvenjulega venjuleg? Er ég að
missa af alls konar?
Bestu kveðjur, Guðfinna
Elsku venjulega Guðfinna
Mælikvarðinn á gott kynlíf er að
viðkomandi fái þarfir sínar upp-
fylltar og upplifi ánægju. Mér
sýnist á öllu að þú sért einmitt
svo heppin að vera í þeirri stöðu.
Kynlíf er svo magnað fyrirbæri.
Öll (vel flest að minnsta kosti)
höfum við grunnþörf fyrir kynlíf
og nánd við aðrar manneskjur, en
svo er fjölbreytnin í smekk, tján-
ingu og virkni hér um bil óendan-
leg. Samkvæmt tölfræði frá Kins-
ey-kynlífsrannsóknastofnuninni
frægu stunda aðeins 28% fólks
yfir 45 ára kynlíf einu sinni í viku
eða oftar – mörgum ætti því að
finnast þú ansi virk og meirihátt-
ar flippuð því þú horfir á klám af
og til. Kinsey vitnar á heimasíðu
stofnunarinnar í rannsókn frá
2006 þar sem aðeins 4% kvenna
viðurkenna að hafa horft á klám-
efni síðasta mánuðinn. Í nýrri
rannsóknum eru tölurnar hærri –
en konur eru þó mun líklegri en
karlar til að halda klámnotkun
sinni leyndri.
Þannig að þín upplifun á því að
vera voðalega venjuleg er algjör-
lega út frá sjálfri þér. Það er ná-
kvæmlega ekkert að því að njóta
kynlífs í þeim mæli og á þann hátt
sem þú segir frá í bréfinu. Ef þú
hins vegar finnur fyrir forvitni eða
löngun til að prófa eitthvað nýtt,
hvet ég þig eindregið til að ræða
það við manninn þinn og kanna
hvort grundvöllur sé fyrir smá
kynferðisflippi í sambandinu.
Bestu kveðjur,
Ragga
Kynlífsorðabankinn
Um nokkra hríð hefur ykkar einlæg
safnað nýyrðum og orðskýringum sem
tengjast kynlífi. Íslenska tungan er
vissulega göfug og ljóma sveipuð, en
á sama tíma ansi fátæk þegar kemur
að orðum og hugtökum um kynlíf, kyn-
hneigð sambönd og svoleiðis nokkuð.
n Handrið – sjálfsfróun, óháð kyni.
n Að fara suður – að veita munngælur.
n Að fara afsíðis – að stunda sjálfs-
fróun.
n Tindermyndablinda – þegar
einstaklingur skráir sig á Tinder og birtir
óviðeigandi myndir – er ekki dómbær á
eigin myndir.
n Bróner – holdris karlmanns af völd-
um karlkyns vinar.
n Brómantík (e. bromance) – djúp
vinátta eða ást milli tveggja gagnkyn-
hneigðra karlmanna.
n Kynlífsþynnka – tómleikatilfinning
eftir ríkulega ástundun kynlífs. Oft
hægt að koma í veg fyrir með samtölum
og knúsi.
n Skeggblinda – þegar skeggsækni
einstaklings er á það háu stigi að
annað í fari þess skeggjaða, svo sem
persónuleiki, hættir að skipta máli.
n Bjullur – brjóst á karlmanni. Hjá
sumum karlmönnum safnast fita
undir geirvörtur á bringunni svo úr verða
brjóst. Fræðiheitið er „gynecomastia“.
Stundum er orsökin truflun á horm-
ónastarfsemi en í öðrum tilfellum er
fitudreifingu líkamans um að kenna.
n Rimma – sögnin að rimma vísar
til þess þegar tunga er notuð í þeim
tilgangi að örva endaþarmsop.
n Tvípoka – þegar tveir smokkar eru
settir á lim fyrir samfarir. Þess ber að
geta að framkvæmdin er ekki talin fela
í sér aukna vörn gegn þungun eða smiti
sjúkdóma.
n Loðtaco – píka. Tveir barmar, safa-
ríkt innihald – og hár!
n Kvensmokkur – sérstakur smokkur
úr pólýúretan-plastefni sem notaður
er til að klæða leggöng fyrir samfarir. Á
báðum endum er stinnur hringur sem
heldur smokknum á sínum stað.
n Reðurteppa (e. cockblock) – prýðileg ís-
lenskun á þessari sögn. Hér er átt við þegar
einstaklingur kemur í veg fyrir möguleika á
kynlífi þar sem karlmaður tekur þátt.
n Skonsa – nýyrði yfir kynfæri kvenna.
Komst fyrst í hámæli eftir fyrirsögn í
frétt Morgunblaðsins.
n Slölli – sleikur eða tungukoss.
n Dráttarvél – titrari, kynlífsleikfang.
n Búðingur – vottur af holdrisi hjá
karlmanni.
n Gæluvarðhald – kynlífsleikur þar
sem aðili er bundinn og þiggur gælur í
því ástandi.
n Líkþrá (e. necrophilia) – þráin eftir
því að hafa samræði við lík.
n Samlóka – vísar til kvenna sem
hafa átt sömu ástmennina, samanber
kviðmágar sem lengi hefur verið notað
um karlmenn sem hafa sængað með
sömu konunni.
n Argur – að vera argur þýddi áður fyrr
að vera samkynhneigður karlmaður.
n Handavinna – að nota hendurnar til
örvunar kynfæra.
n Mótorbátur – þegar andlit er sett
milli brjósta, blásið og höfuð hrist á
sama tíma.
n Þjókall (e. booty call) – símtal,
gjarnan seint um kvöld, þar sem boðið
er til kynlífsstundar.
n B-blettur – vísar til blöðruhálskirtils
karlmanna. Hægt er að örva blöðruháls-
kirtilinn gegnum endaþarm og magna
þannig upp tilfinningu við fullnægingu.
n Kynsæl/l – einhver sem stundar
mikið kynlíf og nýtur kynferðislegra
vinsælda.
n Hnefaleikar (e. fisting) – það athæfi
þegar hnefi er settur inn í líkamsop til
kynferðislegrar örvunar.
n Andlitsseta (e. face sitting) – þegar
kona situr klofvega á andliti annarrar
manneskju til dæmis þannig að snípur
nemi við nef og leggöng við munn.
n Saflát (e. female ejaculation/
squirting) – losun á vökva við full-
nægingu hjá konu. Vökvinn kemur úr
kirtilvef sem umlykur þvagrásina og er
svipaður að samsetningu og vökvinn
sem blöðruhálskirtill karlmanna
framleiðir.
Áhugasömum um málþróun, nýyrði
og skilgreiningar má benda á vefinn
Kynsegin frá ö til a – www.otila.is
Ragnheiður Eiríksdóttir er
hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi
hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni,
Hamraborg 11. raggaeiriks@gmail.com
www.raggaeiriks.com
Logi minn, karlagirndin er ekki málið! Er Guðfinna of venjuleg í kynlífinu?„Er ég
óvenjulega
venjuleg? Er ég
að missa af alls
konar?
„Ég er í
sambúð
með konu, sem
hefur varað í
20 ár. Hún veit
ekkert