Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Page 18
18 sport 11. maí 2018
Tók á sig launalækkun
til að vera áfram hjá KR
É
g er bara þokkalega sáttur,
svona eftir þessa leiki þá vær-
um við til í að vera með fjögur
stig en það er ekkert galið að
vera með þrjú stig. Við erum bún-
ir að fara á tvo af erfiðustu útivöll-
um deildarinnar, við vorum helvíti
svekktir að hafa náð að jafna gegn
Val en missa það niður svo. Það var
svekkjandi, við vonandi lærum af
því og erum með þrjú stig núna.
Þetta voru sterk þrjú stig í Garða-
bænum. Við erum að koma til
baka í báðum leikjum og erum að
sýna karakter, við klárum leikinn í
Garðabæ eftir að hafa verið undir.
Það er mikill karakter í okkur, þegar
Stjarnan jafnar í 2-2, þá hættum við
aldrei. Náum sigurmarkinu,“sagði
Pálmi Rafn Pálmason, miðjumað-
ur KR og fyrrverandi landsliðsmað-
ur í knattspyrnu, þegar DV ræddi
við hann í vikunni. Pálmi hefur far-
ið af stað með látum í sumar, skor-
að í báðum leikjum KR og virkar
með meira sjálfstraust en áður. KR
tapaði fyrir Val í 1. umferð Pepsi-
deildarinnar en vann góðan sigur á
Stjörnunni í 2. umferð.
Pálmi kom heim úr atvinnu-
mennsku haustið 2014 og var
afar eftirsóttur biti, öll stærstu
lið landsins höfðu áhuga á að fá
hann. Pálmi valdi að fara í KR sem
gerði marga stuðningsmenn Vals
reiða. Pálmi hafði nefnilega átt
frábæran tíma í Val áður en hann
fór í atvinnumennsku árið 2008.
Miðjumaðurinn, sem er 33 ára
gamall, hefur mátt þola talsvert
mikla gagnrýni síðan hann kom
heim, sumt af henni hefur átt rétt
á sér en annað ekki.
Vonandi er Rúnar að
hitta á rétta blöndu
Rúnar Kristinsson tók við þjálfun
KR í vetur eftir magurt ár í fyrra.
Rúnar þekkir það að ná árangri
sem þjálfari KR en honum til að-
stoðar er Bjarni Guðjónsson. Bjarni
var einmitt þjálfari KR á fyrsta eina
og hálfa tímabili Pálma í liðinu.
„Það eru litlar breytingar, þetta er
kjarni sem hefur verið lengi saman,
það er alltaf kostur. Fyrir tímabilið í
fyrra gekk allt í haginn. Við unnum
mikið á undirbúningstímabilinu
en svo fór að ganga illa þegar mótið
var flautað á. Þá vill þetta oft verða
þannig að þetta verður ströggl, það
var lítið sjálfstraust í liðinu þá. Við
höfum náð að snúa þessu, Rúnar
og Bjarni hafa verið að prófa hina
og þessa útfærslu á leik okkar og
hvað hentar okkur best. Það hafa
margir spilað og þeir hafa skoðað
allt, þeir eru vonandi bara að hitta
á rétta blöndu. Við förum inn með
svolítið öðruvísi lið í leikinn gegn
Stjörnunni en gegn Val í 1. um-
ferð. Þeir eru með fulla stjórn á því
hvernig við eigum að koma inn í
leiki, svo er það okkar að vinna úr
því að gera það almennilega.“
Loksins að spila sína stöðu
Undir stjórn Bjarna og síðar
Willums Þórs Þórssonar hjá KR
var Pálmi oftar en ekki að spila
aftarlega á miðsvæðinu, staða sem
hans helstu hæfileikar nýtast ekki
vel í. Þetta sá Rúnar og var fljótur
að breyta. „Það var eitt af því fyrsta
sem Rúnar sagði við mig þegar við
töluðum saman, hann vildi hafa
mig framar á vellinum en ég hef
verið síðan ég kom heim. Planið
hefur alltaf verið að ég ætti að vera
framar á vellinum, svo hafa bara
komið upp aðstæður sem hafa
orðið til þess að öll þessi ár hef ég
verið aftar á vellinum. Ég hef verið
í varnarsinnuðu hlutverki, það er
ein ástæða þess að ég hef ekki ver-
ið að setja neitt svakalega mikið
af mörkum. Ég hef fengið sóknar-
sinnaðra hlutverk hjá Rúnari,
þetta eru bara tvö mörk samt. Ef ég
held þessu ekki áfram, þá er það
ekkert sem verður talað um.
Mér líður betur í þessari stöðu,
þetta hefur verið minn leikur í
gegnum tíðina. Koma með hlaup
inn í teiginn og vera í kringum
markið. Í gegnum ferilinn hef ég
náð að skora svolítið af mörkum,
flest af þeim eru inni í teig. Ég á
það til að koma mér í færi og þá er
það undir mér komið að nýta þau,
mér líður vel að fá svona frjálst
hlutverk. Það gengur vel þessa
stundina, svo er það bara spurn-
ing hvað þeir vilja gera. Ég geri
það sem þjálfararnir segja mér og
reyni að gera það vel.“
Gagnrýnin varla ósanngjörn
Þegar talið berst að gagnrýni á leik
Pálma síðustu þrjú árin segir hann
að hún hafi átt rétt á sér, það hafi
hins vegar spilað inn í að hann lék
ekki sína bestu stöðu. „Hún hefur
örugglega ekki verið ósanngjörn,
hún getur varla verið ósanngjörn.
Ég veit ekki hversu mikil eða lítil
hún var, ætli hún hafi ekki bara
verið sanngjörn. Ég held að það
hafi verið reiknað með því að ég
kæmi heim og myndi skora svo-
lítið af mörkum, ég gerði það ekki.
Ég hef oft verið dæmdur af mörk-
unum sem ég skora, það er alveg
eðlilegt að svo sé. Ég hef ekki verið
að spila neitt sóknarsinnað frá því
að ég kom heim fyrr en kannski
núna, ég geri kröfur til sjálfs mín.
Ég hef sjálfur ekki verið sáttur við
mig, þannig séð. Mér finnst ég
hafa skilað mínu hlutverki ágæt-
lega, ekkert hræðilegt, ekkert stór-
kostlegt. Ég veit vel hvað ég get,
mér finnst ég hins vegar vera að fá
það út núna, miðað við þá stöðu
sem ég spila. Mér finnst ég vera að
fá meira út úr því sem ég get. Þessi
gagnrýni átti alveg rétt á sér.
Ég hef ekkert verið ósáttur við
spilamennsku mína í því hlut-
verki sem ég hef fengið, ég var
ekki ósáttur við sjálfan mig í fyrra.
Maður vill alltaf meira, ég býst við
miklu af mér. Mitt hlutverk var að
koma boltanum í spil og reyna
að brjóta niður sóknir, frekar en
að búa til og klára. Ég skilaði ekki
hræðilegu verki í því að byggja upp
spil, ég var þá eðlilega ekki á hin-
um endanum að reyna að klára
eins og núna. Ég vil alltaf meira.“
Framtíðin var óljós
Samningur Pálma við KR var að
renna út eftir síðustu leiktíð, það
tók talsverðan tíma fyrir KR að klára
málin við hann og hann átti í við-
ræðum við önnur lið. Pálmi vildi
hins vegar fyrst og fremst vera í KR,
hann telur sig eiga óklárað verk í
Vesturbænum. „Það var bara bið
og ég var ekkert stressaður nema
kannski undir lokin, ég var að því
leytinu til ekki sáttur við að vera
að fara frá KR þarna. Mér finnst
ég ekki hafa lokið því sem ég ætl-
aði mér hérna, það líkar mér illa.
Mig langar að ná takmörkum mín-
um í KR, langar að vinna titla hérna
í Vesturbænum. Það er eitt af því
stærra að vinna titla með KR, það er
gríðarlega góð stemming í klúbbn-
um þegar gengur vel. Mig langar að
upplifa það, ég var að vonast til þess
síðasta haust að við næðum saman.
Svo við gætum byggt upp eitthvað
gott, vera í baráttu um að vinna eitt-
hvað. Ég fór ekki langt í viðræður
við önnur lið, það var í raun ekkert
annað í gangi. Það var alltaf í fyrsta
sæti að halda áfram, það var aldrei
nein alvara í neinu öðru.“
Tók á sig launalækkun
Til að vera áfram í KR þurfti Pálmi
að lækka laun sín, hann hafði ver-
ið einn launahæsti leikmaður
deildarinnar. KR er ekki í Evrópu-
keppni í ár og hefur félagið ekki
sömu fjármuni til að spila úr og
áður. Pálmi var meðvitaður um
það og eftir að hafa bara verið í fót-
bolta hefur hann farið út á vinnu-
markaðinn. „Það er ekkert feimn-
ismál, ég tók á mig launalækkun.
Ég kom heim úr atvinnumennsku
og það voru fleiri lið en KR sem
vildu fá mig þá, það var þannig. Ég
fékk góðan samning, það var aldrei
neitt mál. Ég var miklu meira en til
í það, ég reiknaði aldrei með því að
ég myndi vera áfram á því sama og
ég var. Það var líka fínt að fara að
reyna að koma sér út á vinnumark-
aðinn, reyna að fara að gera eitt-
hvað af viti þar. Það var aldrei neitt
vandamál fyrir mig að taka ein-
hverja launalækkun, það var lítið
sem ég hugsaði út í það. Ég byrjaði
um áramótin hjá VÍS og er bara að
gera allt vitlaust þar, ég er í topp-
málum þar. Það er öðruvísi að vera
að vinna með fótboltanum, ég hef
gaman af því. Það var farið að kitla
að vinna aðeins, það styttist í að
ferlinum ljúki. Það er ekki eins og
ég eigi fleiri, fleiri ár eftir. Það er fínt
að fara að búa sér til ferilskrá á al-
mennum vinnumarkaði. Ég er ekki
enn þá klár í að hætta í fótboltan-
um, þegar maður hættir að hafa
gaman af þessu og líkaminn segir
stopp, þá verður maður að hætta og
gott að vera með reynslu af vinnu.“
Eins og góður Pajero-jeppi
Þrátt fyrir hækkandi aldur er Pálmi
í frábæru formi, hann hefur sloppið
vel við meiðsli og segist ekki finna
neinn mun á sér frá unga aldri. „7,
9, 13, þá hef ég verið mjög hepp-
inn með meiðsli í gegnum tíðina.
Ég breytti aðeins til í vetur og fór
í crossfit úti á Granda. Þar voru
ég, Óskar Örn Hauksson og Grét-
ar Sigfinnur. Þar vorum við í þjálf-
un, við vorum látnir taka helvíti
vel á því. Á köflum var maður að
hugsa hvað í andskotanum mað-
ur væri að gera þarna. Hann kom
manni í mjög gott stand á stuttum
tíma, svo reynir maður að halda sér
í frábæru formi. Ég hætti í cross-
fit þegar ég fór að vinna, núna er
það bara vinna og æfa með liðinu.
Ég finn ekki neinn mun á mér, ég
hef aldrei verið fljótur að hlaupa.
Ég hef lítinn hraða að missa, svo
lengi sem ég er ekki 25 sekúndur
með 100 metrana þá er þetta í góðu
lagi. Ég finn ekki neinn mun, ég er
í mjög góðu formi og held auðveld-
lega út í 90 mínútur. Ég vil meina að
ég eins og góður Pajero, ég fer frá
A til B, geri það alltaf. Fer það ekki
hratt en ég fer það.“
Þetta er KR
Þegar Pálmi er spurður um mark-
mið KR í sumar kemur fljótt í ljós að
hann er meðvitaður um kröfurnar
í Vesturbæ, þær eru alltaf að vinna
titla. „Við stefnum á Evrópusæti, þar
á KR að vera. Þangað stefnum við,
auðvitað viljum við svo vera með í
baráttu um titilinn. Við ætlum að
bæta árangurinn frá því í fyrra, ef
það gengur upp sem við erum að
leggja upp með. Ef við náum í úr-
slit, þá viljum við vera með í barátt-
unni. Þetta er KR,“ sagði þessi geð-
þekki Húsvíkingur að lokum. n
n Líkir sjálfum sér við Pajero-jeppa n Segir gagnrýnina hafa átt rétt á sér
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
„Ég vil meina að
ég eins og góður
Pajero, ég fer frá A til B,
geri það alltaf. Fer það
ekki hratt en ég fer það.