Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Qupperneq 34
11. maí 2018KYNNINGARBLAÐMæðradagurinn
Camelia.is:
Við erum í samstarfi við tvær æðislegar heildverslanir í Bretlandi. Önnur þeirra er
ein stærsta og fallegasta heildversl-
un Bretlands á sviði húsgagna og
fylgihluta fyrir heimili og erum við
eina verslunin á Íslandi með samning
við hana. Vörurnar frá þeim eru mjög
sérstakar og hreint út sagt æðislegar.
Gæðin eru í toppklassa og verðið er
einstaklega gott miðað við gæðin.“
Þetta segir Katrín einarsdóttir hjá
netversluninni Camelia.is sem sér-
hæfir sig í fallegri gjafavöru og vöru
fyrir heimilið.
„Hin heildverslunin er gjafavöru-
verslun með fylgihluti fyrir heimilið.
Þar er að finna vinsælli vörur á góðu
verði og eru vörurnar þeirra við
flestra hæfi. með þessu móti getum
við bæði boðið upp á ódýrari heim-
ilis- og gjafavörur sem fylgja helstu
tískustraumum í innanhússhönnun
hvers tíma, og einnig vandaðri og
dýrari gæðavörur sem eru fágætari.
Þetta er frábær blanda og ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Við vorum einnig að taka inn vörur
frá danska merkinu madam stoltz,
en vörurnar frá þeim eru handunnar,
af miklum gæðum og á einstaklega
góðu verði. en við erum sífellt að
stækka við okkur og munum taka inn
nokkur ný merki á næstunni, aðallega
frá hinum Norðurlöndunum.
Okkar helsta aðalsmerki er þó
veggmyndirnar okkar. Við semjum við
listamenn alls staðar að úr heiminum
og kaupum réttindi til dreifingar á
hönnun þeirra hér á Íslandi. Við erum
erum með mikið úrval af veggmynd-
um sem við látum prenta fyrir okkur
og við svo römmum inn sjálf. mynd-
irnar okkar eru gríðarlega vinsælar
allt árið um kring enda eru þær á
góðu verði, og alveg einstakar þar
sem þær fást ekki annars staðar hér
á Íslandi og við seljum þær tilbún-
ar í römmum. myndirnar eru mjög
vinsælar í gjafir fyrir öll tækifæri og
er stundum svo mikið að gera að við
eigum erfitt með að anna eftirspurn.“
Ánægðir viðskiptavinir
„Það sem mér finnst skipta mestu
máli, er ánægja viðskiptavina minna.
Ég þjónusta alla persónulega og
legg mikið upp úr því að aðstoða
viðskiptavini mína eins vel og ég
get. Verslunin stendur og fellur með
ánægju kúnna minna og ég er virki-
lega þakklát fyrir alla viðskiptavini,
enda væri verslunin ekki til án þeirra.
má til dæmis nefna að fyrir síðustu
jól seldum við jólagjafir í hundraða-
tali og eftir jólin fengum við aðeins
tvær vörur til baka. Það má einnig
nefna að við bjóðum upp á mjög
rúman skilarétt, en það er hægt að
skila vörum innan tveggja vikna og
fá fulla endurgreiðslu við skil, en það
veitir viðskiptavinum ákveðið öryggi
þar sem það er jú verið að panta í
gegnum netið og fólk hefur ekki séð
vörurnar berum augum.“
Að vanda valið
Katrín leggur mikla áherslu á ánægju
viðskiptavina og að bjóða vörur sem
njóta vinsælda:
„Hver einasta vara í versluninni er
valin af mikilli kostgæfni og markmið-
ið er að allar vörur sem við tökum inn
seljist vel. Við erum dugleg að fylgjast
með helstu tískustraumum og kapp-
kostum að bjóða það sem fólk sækist
eftir hverju sinni. Á sama tíma reynum
við þó að vera öðruvísi og reynum að
bjóða ekki upp á mikið af vörum sem
fást annars staðar á Íslandi.
Vinsælustu vörurnar í Camelia.
is núna í vor eru eucalyptus-gervi-
greinar sem eru afskaplega fallegar,
ásamt glervasa frá madam stoltz.
einnig má nefna veggmyndirnar
frá moods og króm-gólflampann
okkar.“
Camelia.is sendir um allt Ísland
og allar pantanir yfir 12.000 kr. eru
sendar frítt heim að dyrum.
sjá nánar á camelia.is. Camelia.
is er einnig á Facebook, instagram
(camelia.is) og snapchat (camelia.is).
Í tilefni Mæðradagsins verður
Camelia.is með Netkast dagana 11.–16.
maí með flottum tilboðum á sérvöldum
vörum!
Toppgæði á
hagstæðu verði