Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Síða 35
11. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Mæðradagurinn
Taramy.is:
Skemmtilega lítið af mörgu
Gífurleg fjölbreytni einkennir verslunina Taramy, sem er hvort tveggja vefverslun og
verslun, að Jöklafold 26, reykjavík.
„slagorðið hjá mér er eiginlega orðið
„skemmtilega lítið af mörgu“,“ segir
eigandinn, Guðrún Þorbjörg Kristjáns
dóttir, en auk þess sem afar margra
grasa kennir í versluninni þá gætir
Guðrún þess að sitja ekki uppi með of
stóran lager, sérpantar fremur það
sem viðskiptavininn vanhagar um og
ekki er til á staðnum.
meðal þess sem Taramy býður
upp á eru gervibrjóst en til þeirra
rekur fyrirtækið jafnframt upphaf
sitt: „móðir mín stofnaði þetta fyrir
tæki árið 1978 vegna þess að hún
greindist með brjóstakrabbamein. Á
þeim tíma voru ekki til nein gervibrjóst
fyrir konur sem urðu að gangast undir
brjóstnám og engin umræða var um
sjúkdóminn – hann var tabú. Þetta
hefur sem betur fer breyst mikið.“
Taramy býður auk þess upp á
mjög falleg nærföt og undirföt fyrir
konur undir merkinu anita, gjafir sem
hæfa vel á konudeginum, auk margra
annarra heppilegra gjafa. Til dæmis
eru í boði fallegar handtöskur fyrir
konur.
sérstaka athygli vekja skemmti
legar og mjög smekklegar postulíns
vörur frá Þýskalandi. Um er að ræða
skálar og bolla með svipi, það er, að
greinileg ásjóna er grafin í hvern hlut
og gefur þetta vörunum mjög smekk
legan og skemmtilegan svip.
Handskornir fuglar frá Dcuk eru í
miklu úrvali, endur, uglur, mörgæsir
o.fl., en þar eru engir tveir fuglar eins.
Fuglarnir eru settir í mörg hlutverk og
það endurspegla litskrúðug föt þeirra.
Ýmislegt annað er á boðstólum
eins og leðurveski, akstursgleraugu,
veiðigleraugu, kortaveski með rFiD
vörn og tvær áhugaverðar bækur;
skipulag kennarans – skipulagsbók og
Gaddakylfan, sérstæð ævisaga eftir
Kristján s. Guðmundsson.
Vefverslun Taramy, á slóðinni
http://taramy.notando.is/, sendir
vörur hvert á land sem er en fólk á
höfuðborgarsvæðinu sækir vörurnar
oftast í Jöklafold 26. Verslunin þar er
opin eftir samkomulagi og skal hringja
í síma 6992355 eftir klukkan 14 og
panta tíma.
að sögn Guðrúnar er skemmtileg
ast að skoða vefinn fyrst og koma
síðan á staðinn. „Oft sér maður þá
eitthvað sem maður hafði ekki tekið
eftir á vefnum,“ segir Guðrún. sjá
nánar á taramy.is.
Lín Design á smáratorgi fagnar eins árs afmæli og verður af því tilefni með 30% afslátt af öllum
vörum til 13. maí í öllum verslunum og
vefverslun fyrirtækisins.
„Við hönnum allar okkar söluvörur
sjálf og kappkostum að nota eingöngu
hágæðaefni og gætum þess að fram
leiðslan sé umhverfis væn. mikil hugsun
og vinna býr að baki öllum okkar vörum
og við seljum eingöngu hágæðafram
leiðslu. Vörurnar eru hannaðar hérna
heima af hönnunarteymi okkar en
framleiddar í Kína og við heimsækjum
verksmiðjurnar þar reglulega til að
fylgjast með framleiðsluferlum og
gæta þess að okkar kröfur um gæði og
umhverfisvæna framleiðslu séu upp
fylltar,“ segir Ágústa Gísladóttir, annar
eigenda Lín Design. Ágústa rekur
fyrirtækið ásamt systur sinni, Guðrúnu
Gísladóttur.
„Við leggjum mikla áherslu á íslenska
menningu, arfleifð og náttúru í okkar
vörum og er markmið okkar að hanna
vöru sem gleður og veitir vellíðan. Ný
vörulína kemur að jafnaði þrisvar til
fjórum sinnum á ári. Flestum vörum Lín
Design er pakkað í bómullarumbúðir
sem eru endurnýtanlegar. Nýjasta
pakkningin okkar er þannig að rúm
fötunum er pakkað inn í glæsilegt
púðaver (40×40) sem eykur fegurð og
notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá
hluti í rúmið í stað tveggja áður. Eitt
af markmiðum okkar er að láta nátt
úruna njóta vafans og henda engu.
Umbúðirnar utan um barnarúmfatn
aðinn frá Lín Design eru hannaðar sem
dúkkurúmföt. Í rúmfötunum notum
100% pimabómull sem er ein vand
aðasta gerð bómullar á markaðnum.
Við notum aldrei gerviefni og leggjum
alltaf höfuðáherslu á gæði. sængur og
koddar eru úr 100% andadúni, og ekk
ert fiður, eingöngu vistvænar sængur.“
Kósíföt sem láta þér líða vel
Vellíðan, mýkt og gæði einkenna fata
línuna frá Lín Design. „Þessi föt eru
hönnuð með það að markmiði að fólki
líði vel í þeim,“ segir Ágústa, en fötin
í kósílínunni eru í senn afar þægileg
og afskaplega smekkleg. Lín Design
býður kósíföt fyrir börn, unglinga og
fullorðna af báðum kynjum.
Heildverslun
Veigamikill þáttur í starfsemi Lín
Design er heildverslunin. „Við seljum
mikið til hótela og ferðaþjónustu
aðila. Í þeim geira eru sængurnar
og sængurverin okkar mjög eftir
sótt vegna góðrar endingar, enda
mikil gæði í þeim,“ segir Ágústa.
sængurverin eru afskaplega falleg
og mynstrin eru sótt í heim íslenskrar
náttúru. Fyrirtækjaþjónusta Lín Des
ign þjónustar fyrirtæki með jólagjafir,
tækifærisgjafir, hvatagjafir, og við
getum látið framleiða og merkja
vörur með lógói fyrirtækja og séð um
innpökkun á vörum allt eftir óskum
fyrirtækja.“
Netfang fyrir þá sem vilja panta úr
heildversluninni eða senda fyrirspurn
er sala@lindesign.is.
Lín Design er með verslun á
smáratorgi í Kópavogi, í Kringlunni og
á akureyri. Öflug vefverslun er síðan
rekin á vefsíðunni lindesign.is og er
sent frítt á næsta pósthús hjá viðtak
anda.
Viðskiptavinir Lín Design eru
ánægðir en Facebooksíða verslun
arinnar hefur yfir 43.000 fylgjendur.
Lín Design gerði skoðanakönnun
meðal þeirra fyrir skömmu og kom
í ljós að 95% eru ánægð eða frekar
ánægð með vörur fyrirtækisins.
Umhverfisvænar hágæða-
vörur á hagstæðu verði
LÍN DEsiGN – ÍsLENsK HÖNNUN: