Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Side 56
56 fólk 11. maí 2018 Alþýðufylkingin – Baelish Baelish-ætt- in er svo lítil að hún virðist aðeins vera einn mað- ur, Litli fing- ur. Eða Albaníu Valdi. Þetta er klók- asti maðurinn í landinu og allir vita að hann spilar langan leik. Að lokum mun hann enda á hásætinu en hvernig hann ger- ir það er okkur ráðgáta. Ekki líta af Albaníu Valda í eina sek- úndu. KrúnuleiKar í reyKjavíK Framsóknarflokkurinn – Tyrell Tyrell-ættin stýrir víðáttumiklu landbúnaðarhéraði og á glás af peningum. Líkt og Fram- sóknarmenn hafa Tyrell-lið- ar ávallt reynt að koma sér í mjúkinn hjá þeim sem situr á krúnunni. Fram- sókn tókst með klókind- um að komast í borgar- stjórn árið 2014 líkt og þegar Olenna kom barna- barni sínu í konungsdyngj- una. En Ingvar Mar virðist jafn ráðalaus og sonur hennar Mace. Björt framtíð – Baratheon Baratheon var eitt sinn ein mesta valdaætt Westeros og hinn brún- skeggjaði leiðtogi þeirra Robert sat í hásætinu. Það sama mætti segja um Bjarta framtíð sem var í ríkis stjórn og í meirihluta í þremur stærstu sveitarfélögunum. En nú eru Robert og allir bræður hans dauðir, og allir afkomendur þeirra líka. Karlalistinn – Næturvaktin „Ég skal engri konu giftast og vera engu barni faðir. Ég er sverðið í myrkrinu,“ segir í eiðstaf Næturvaktarinnar. Á Veggnum mikla hírast aðeins karlar, einangraðir í myrkri og kulda, bitrir yfir þeim litla stuðningi sem þeir fá. Íslenska þjóðfylk- ingin – Hvítgenglarnir Það er kannski ofsögum sagt að það stafi jafn mikil hætta af Íslensku þjóðfylkingunni og Hvítgenglunum. En ef flokk- urinn nær að sanka að sér jafn miklum fjölda af heila- og tilfinninga- lausum uppvakning- um og Hvítgenglarnir gera, þá getur hann lagt heilu byggðar- lögin í rúst. Frelsis- flokkurinn – Frey Framboðsfund- ur Frelsisflokks- ins við Ráðhús Reykjavíkur var vendipunktur í kosningabaráttunni líkt og Brúðkaupið rauða var í Krúnuleikum. Þar mundaði Gunn- laugur Ingvarsson drullusokk fyrir framan hátt í tíu manns með sigurbros á vör. Minnti þetta óneitanlega á glott Wald- ers Frey þegar hann hafði látið slátra allri fylkingu Stark-ætt- arinnar og drottningin sjálf lá kviðrist á gólfinu. Höfuðborgarlistinn – Spörvarnir Það veit enginn hvernig Spörvarnir urðu til. Enginn bað um þá en allt í einu voru þeir mættir og farnir að skipta sér af öllu. Trúar- regla sem virtist nærast á því að vera erfið við alla og rífa kjaft. Hinar ættirnir lærðu að það þýðir ekki að tipla á tánum í kringum Spörvana, ítrustu meðala var þörf. Flokkur fólksins – Fylgjendur R´hllor Flokkur fólksins boðar trú líkt og fylgjend- ur R´hllor, guðs ljóssins. Mantra flokks- ins snýst um fátæk börn og öryrkja og allir sem gagnrýna eru haldnir „illsku“ sem þarf að upp- ræta. Vonandi tekur hvíta konan Kolbrún Baldursdóttir ekki upp á því að brenna fólk á báli líkt og rauða konan Melisandre. Sextán flokkar bjóða fram krafta sína til að sitja í borgarstjórn Reykjavíkur í vor fyrir kosningarnar sem fram fara 26. maí. Kosningabaráttan er þegar orðin hörð og á aðeins eftir að harðna þegar nær dregur enda eygja margir þá von að ná fjögurra prósenta þröskuldinum til þess að fá mann kjörinn. DV reiknar með að ástandið verði líkt og í Krúnuleikum Georges R.R. Martin og fann samsvörun í helstu valdaættunum þar. n Hver mun standa uppi sem sigurvegari?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.