Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Qupperneq 58
58 11. maí 2018fréttir
L
ýðræði er stórkostlega of-
metið fyrirbæri að mati
Svarthöfða. Skilvirkast væri
að setja öll völd í hendurn-
ar á öflugum leiðtoga sem kann
að meðhöndla máttinn. Slíkur
leiðtogi getur óáreittur lagt fram
skýra framtíðarsýn, tekið skjót-
ar ákvarðanir og komið hlutun-
um í verk. Lýðræði er svo mik-
il tímasóun. Spítali við Vífilsstaði
væri fyrir löngu risinn, Vatnsmýr-
in yrði orðinn leikvöllur hinna ríku
og frægu og allir þeir sem vinna í
svokölluðu „stjórnkerfi“ yrðu að
fara að vinna við eitthvað sem
gagn væri að.
Við ættum að taka af skarið og
útnefna Guðna Th. sem keisara.
Mögulega er hann of hjartahreinn
fyrir smekk Svarthöfða en það
má lengi vona. Erfiðar ákvarðanir
krefjast samviskuleysis.
Sennilega eru þó Íslendingar
of öfundsjúkir smáborgarar til að
geta sætt sig við alvöru keisaraætt,
jafnvel þó að Guðni væri ættfaðir-
inn. Til vara stingur því Svarthöfði
upp á að kjörnir fulltrúar verði
ákveðnir með hlutkesti.
Allt er betra en sá lýðræðis-
farsi sem fram undan er í kom-
andi sveitarstjórnarkosn-
ingum. Það er nánast hver
einasti vindbelgur í fram-
boði og allt bendir til þess
að kosningadagur renni
upp án þess að nokkur kjós-
andi muni ná að skyggnast
almennilega inn í loforða-
frumskóginn.
Nógu flókið er að reyna
að átta sig því hvort borg-
arsjóður sé vel eða illa rek-
inn þó að Albaníu-Valdi
og Gunnar Waage séu ekki
gjammandi fram í. Þetta er
ótækt bull. Hvernig létum
við þetta eiginlega gerast?
Lýðræðisfarsi fram undan
Svarthöfði
Kveikjarinn
var fund-
inn upp
áður en
eldspýtur
urðu til.
Ef lagður væri saman massi allra
maura í heiminum myndi hann skáka
massa alls fólks á jörðu.
Vissir þú að…
Helmingur
þeirra sem hafa
náð 65 ára aldri í
allri mannkyns-
sögunni er enn á
lífi í dag.
Fullorðinn mannslíkami hefur á milli eitt
til fjögur kíló af bakteríu samanlagt.
Einn blýantur
í meðalstærð
nægir til að skrifa
61 kílómetra
langt strik.
Konur og karlar mega
ekki borða saman á Vogi
n Kynjaskipting á Vogi n Bannað að sitja saman á fyrirlestrum
G
ripið hefur verið til rót-
tækra aðgerða á Vogi eftir
að DV greindi frá að 16 ára
stúlka hefði verið beitt kyn-
ferðisofbeldi á sjúkrahúsinu sem
sinnir áfengissjúklingum. Þá hef-
ur sú breyting einnig verið gerð
að konur og karlar mega nú ekki
sitja saman til borðs í matsaln-
um á Vogi. Sú breyting var gerð
fyrir nokkrum mánuðum. Þá hafa
ungmenni sérstök borð í matsaln-
um. Í kjölfar fréttar DV hefur ver-
ið skerpt enn frekar á reglum til
að koma í veg fyrir samneyti ung-
menna og fullorðinna. Einnig hef-
ur konum og körlum verið meinað
að sitja hlið við hlið í fyrirlestra-
sal sjúkrahússins. Konur sitja nú
hægra megin í salnum en karlar
vinstra megin.
Þá er það ekki rétt að ungmenna-
deild hafi verið eða verði lokað
eða standi til að taka ekki á móti
ungu fólki í framtíðinni. Deildin er
stundum uppnefnd Bangsadeildin
en forsvarsmenn sjúkrahússins eru
ekki hrifnir af nafngiftinni. Greint
hefur verið frá í fréttum undanfar-
ið að ungmennadeildinni yrði lok-
að en hún er starfrækt í óbreyttri
mynd. Arnþór Jónsson, formaður
SÁÁ, segir í samtali við DV:
„Það er misskilningur að
deildinni hafi verið lokað. Heil-
brigðisráðherra óskaði eftir því að
við hættum að taka við krökkum
yngri en 18 ára en deildin starfar
óbreytt. Hvert á unglingurinn að
fara? Þetta er langbesti staðurinn
fyrir þau til þess að koma og vinna
úr sínum málum. Vogur er stað-
urinn sem tekur á þessum heil-
brigðisvanda sem er sjúkdóm-
ur fíknarinnar fyrir þennan aldur.
Ég er mjög stoltur af ungmenna-
deildinni og finnst glatað að það
sé verið að uppnefna þessa deild
Bangsadeild.“
Konur á lokuðum gangi
Arnþór segir að kynjaskiptingin
hafi í raun byrjað árið 1995 en
kynjaskipting í matsal hafist fyrir
nokkrum mánuðum. Telur Arn-
þór að það hefði jafnvel mátt gera
fyrr enda auðvelt í framkvæmd.
Einungis þurfi að prenta út miða
og leggja á borðin. Hefur kynja-
skipting aukist á sjúkrahúsinu.
„Nú eru allir meðferðarhópar
kynjaskiptir, einnig svefngangar
á neðri hæð þar sem konur eru
á lokuðum gangi. Sameiginleg
rými í fyrirlestrasal og í matsal eru
kynjaskipt,“ segir Arnþór.
Ófremdarástand
Ófremdarástand hefur ríkt í
meðferðarúrræðum fyrir ungt
fólk. Helga Vala Helgadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
tók málið upp á Alþingi í vikunni.
Benti hún á að aðeins væru rek-
in tvö meðferðarheimili á vegum
Barnaverndarstofu fyrir samtals
rúmlega tíu einstaklinga. Þá eru
á barna- og unglingageðdeild sex
rými í neyðarvistun, þrjú stráka-
pláss, tvö stúlknapláss og eitt
svokallað gæsluvarðhalds- eða
sérverkefnispláss og eru plássin
hvort tveggja ætluð ungum fíkl-
um sem og börnum og ungling-
um með annars konar vanda.“
Vefmiðillinn Miðjan vitnaði í
Helgu Völu sem sagði: „Á þessu
ári einu hefur það gerst í rúm-
lega 20 skipti að ekki hefur ver-
ið hægt að taka á móti börnum
í verulegri neyð á neyðarvistun
BUGL, þar af 15 sinnum bara í
marsmánuði.“
Arnþór er staðráðinn í að
halda áfram að taka á móti ungu
fólki í meðferð. Neyðarástand
sé í samfélaginu og staðan verði
áfram óbreytt. Vogur mun taka á
móti unglingum á öllum aldri.
„Þetta er alveg framúrskarandi
góð þjónusta sem er veitt þar. Frá-
bært starfsfólk þar og besti að-
búnaður. Allt þarna er „state of
the art“, myndi ég segja. Annað er
fráleitt.“ n
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is „Glatað
að það sé
verið að uppnefna
þessa deild
Bangsadeild.
Arnþór Jónsson
Formaður SÁÁ.
Lof & Last
– Sanna Magdalena
Fólkið úr Hinni Reykjavík sem fyllir
framboðslista Sósíalistaflokksins
fyrir kosningarnar og allt annað
fátækt, valdalaust og kúgað fólk
sem rís upp, neitar að beygja sig
lengur og berst gegn kúgurum
sínum. Eins og þjónustu-
fulltrúarnir í Hörpu. Húrra
fyrir þeim. Ef við stöndum
saman getum við allt
#valdiðtilfólksins
Auðvaldið og þau sem ganga
erinda þess. Hvað er aumara en að
þjóna hinum ríku og valdamiklu? Á
kostnað allra hinna. Ekkert fallegt
við það, ekkert kjarkað og ekkert
smart. Bara hallærislegt og
ljótt. Ú á ykkur. Burt með
auðvaldið! Þið hafið ráðið
of lengi. Enginn saknar
ykkar. Bless.