Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Síða 9
22. júní 2018 FRÉTTIR 9
Gylfaflöt 6 - 8
LOKUM 20. JÚLÍ
HLÖKKUM TIL AÐ TAKA Á MÓTI
YKKUR 14. ÁGÚST AÐ GYLFAFLÖT 6-8
VEGNA FLUTNINGAhann var nýbúinn að segja við móð-ur sína að hann væri svo spenntur og hlakkaði svo til að sýna okkur
það að hann gæti orðið edrú.“
Kristján bjó hjá móður sinni og
systkinum í Grafarholtinu fram á
vorið en þá stefndi fjölskyldan á
að flytja búferlum austur á Stöðv-
arfjörð. Hann ákvað þá að flytja að
heiman og fékk herbergi á leigu í
Hafnarfirði. Fjölskyldan tæmdi
íbúðina og Kristján flutti inn í her-
bergið þriðjudaginn 5. júní, sama
dag og hann fékk þær fréttir að
ekki væri pláss fyrir hann í með-
ferðinni á Teig. Dagbjört segir:
„Ég og litli bróðir, átján ára,
komum að honum látnum í her-
berginu á laugardeginum.“
Dánarorsök Kristjáns er ekki
enn kunn þar sem krufning ligg-
ur ekki fyrir en samkvæmt lækn-
um eru taldar mestar líkur á að
ofneysla einhverra efna hafi dreg-
ið hann til dauða.
Alltaf með bestu einkunnirnar
Kristján hafði allt til brunns að
bera til að eiga gott og gæfuríkt líf.
Hann átti fjölskyldu sem studdi
hann, hann var afburðanemandi
í skóla og vinsæll meðal allra sem
kynntust honum. Dagbjört segir:
„Hann þurfti ekkert að hafa
fyrir því að læra. Sem dæmi þá
sleppti hann áttunda bekknum.
Þá vorum við búin að ræða mikið
saman um þetta því hann var van-
ur því að vera langhæstur í bekkn-
um. Ég sagði við hann að nú gæti
sú staða komið upp að hann yrði
ekkert endilega hæstur í bekknum
en hann gerði sér lítið fyrir og varð
samt langhæstur þó hann hefði
sleppt heilu ári.“
Á unglingsárum Kristjáns bjó
fjölskyldan í Vogum og Krist-
ján sótti Stóru-Vogaskóla. Árið
2005 var hann með hæstu með-
aleinkunina í sjöunda bekk, 2006
í þeim níunda og árið 2007 var
hann verðlaunaður fyrir bestan ár-
angur í tíunda bekk, bæði heilt yfir
og í íslensku og stærðfræði.
Aðrir krakkar sóttust mikið eftir
því að vera með honum en Krist-
ján greindist snemma með félags-
fælni og var tregur til að vera inn-
an um fólk. Andrea segir:
„Öllum sem kynntust honum
líkaði vel við hann strax við fyrstu
kynni. Ég þekki ekki neinn sem
var illa við hann. Krakkarnir vildu
vera vinir hans og voru alltaf að
reyna að hafa samband og reyna
að fá hann með en hann vildi alltaf
vera heima. Það eru mörg ár síðan
hann lokaði sig frá umheiminum,
hann hitti aldrei neina fyrir utan
fjölskylduna og var meira að segja
hættur að mæta í fjölskylduboð.“
Kristján sótti einn vetur í
Menntaskólanum í Hamrahlíð og
nokkrar annir í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja en flosnaði þá upp úr
námi. Kerfið greip ekki inn í á nein-
um tímapunkti og greindi að þarna
var drengur í miklum erfiðleikum.
Þá fór að bera á þunglyndi og mikl-
um kvíða. Í eitt skipti leitaði Dag-
björt með hann til geðlæknis en lítið
kom út úr þeirri heimsókn. Kristján
lokaði sig af í herberginu sínu, hlust-
aði á tónlist og las mikið á netinu.
Duglegur í vinnu og komst
aldrei í kast við lögin
Um sautján ára aldur fór Kristján
að nota fíkniefni til þess að deyfa
sársaukann, fyrst kannabis og
önnur vægari efni. Dagbjört segir:
„Hann var svo klár að hann var
búinn að komast að því að maga-
lyf sem hann þurfti að taka, Imm-
odium, var hægt að misnota. Það er
hægt að kaupa einn pakka í lausa-
sölu, stundum eru afgreiddir tveir.
Þegar hann talar fyrst um þetta við
lækna þá trúðu þeir honum ekki því
hann var sautján ára. Það er mor-
fínskylt efni í þessu og ef þú tekur
nógu mikið þá kemstu í vímu.“
Eftir að Kristján hætti í skólan-
um fór hann að vinna og starfaði
lengi hjá Dominos í lagerstörfum.
Hann var duglegur í vinnu og yf-
irmenn hans voru ánægðir með
hann. Honum var treyst fyrir stöðu
lagerstjóra í afleysingum.
En reglulega, um það bil
einu sinni á ári, kom það fyrir
að Kristján gat ekki unnið vegna
þunglyndis sem leiddi til fíkni-
efnaneyslu. Aldrei komst hann í
kast við lögin og aldrei var hann
handtekinn. Andrea segir:
„Þó hann væri í neyslu þá var
hann ekki að fara af heimilinu.
Það var ekkert djamm á honum
eða neitt svoleiðis.“
Með hverju árinu sökk Krist-
ján dýpra og dýpra í þunglyndi án
þess að fá faglega aðstoð. Und-
ir lok ársins 2017 var hann kom-
inn í harða fíkniefnaneyslu lyfseð-
ilsskyldra lyfja á borð við Xanax og
Oxycontin. Um tíma í vor náði hann
að hætta neyslunni en neyslan
var aðeins aukaafurð. Til að sigr-
ast á henni þurfti hann að vinna
bug á sínum andlegu veikindum
sem voru orsökin og þá brást kerfið
honum. Dagbjört segir:
„Í raun finnst okkur viðmót
starfsfólksins ekki vera aðfinnslu-
vert, nema í þetta eina skipti. Það
voru skrýtin svör hjá fagaðila. Það
þarf að gera meira í þessum málum
því við erum að missa fleiri og fleiri.
Það virðast ekki vera til úrræði fyr-
ir þetta fólk. Það þarf að vera hægt
að grípa fólk sem lendir í andlegri
krísu áður en það fer að reyna að
lækna sig sjálft með því að reykja
gras og prófa hin og þessi efni til
þess að deyfa sársaukann.“ n
Hægt er að leyta sér aðstoðar
í Hjálparsíma Rauða krossins í
síma 1717 allan sólarhringinn.
LÉST EFTIR LANGA BARÁTTU
VIÐ ÞUNGLYNDI OG KVÍÐA
n Kerfið brást afburðanemandanum Kristjáni n Var ári á undan í skóla vegna námshæfileika sinna
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu þjónustu
okkar á Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
„Þó hann væri í
neyslu þá var hann
ekki að fara af heimilinu.
Það var ekkert djamm á
honum eða neitt svoleiðis.
Yfirburðarnemandi Tekur við verðlaunum í 10. bekk.