Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Side 22
22 UMRÆÐA Sandkorn 22. júní 2018 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Hræðsla við Sósíalista Það er fast skotið hjá Vinstri grænum og Samfylkingu í átt að Sósíalistum þessa dag- ana. Það mátti greinilega finna í taugaveikluðum skotum fulltrúa flokkanna að Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borg- arfulltrúa Sósíalista, á borgar- stjórnarfundi í vikunni fyrir að fara í samstarf með Sjálfstæðis- flokknum við skipun í nefndir. Talar Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinn- ar, um „svonefnda sósíalista“ vegna samstarfsins um að raða niður í nefndir. Það mætti halda að hvorki VG né Sam- fylkingin hafi setið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Leki og lygar Það varð nokkrum sinnum uppi fótur og fit á þessum sögulega borgarstjórnarfundi í vikunni. Fulltrúar meirihlutans neituðu að kalla minnihlutann „stjórnarandstöðu“ líkt og Ey- þór Arnalds, oddviti Sjálfstæð- isflokksins, bað um. Svo kom upp leki í stjórnsýslu Ráð- hússins, stjórnarandstaðan hafði látið skrifstofu borgar- stjórnar fá listann yfir fulltrúa sína í nefndir og listinn rataði til Lífar og Dags. Líf reyndi að ljúga því að hún hefði heyrt þetta á göngum Ráðhússins á meðan Dagur talaði um að þetta væru opinber gögn. Það skyldi þó aldrei vera að skrif- stofan, sem er gegnsýrð af stuðningsfólki meirihlutans og samstarfsfólki Dags og Líf- ar í áraraðir, hafi látið þau vita hverja minnihlutinn ætlaði að tilnefna í nefndirnar? Stendur ykkur á sama? Í DV í dag er rakin saga Kristjáns Steinþórssonar, ungs manns sem barðist við þunglyndi og önnur andleg vandamál frá æsku. Kristján var afburðanem- andi og vinsæll meðal skólafélag- anna en hvergi í skólakerfinu var gripið inn í þegar hann smátt og smátt sökk dýpra í þunglyndi og fíkniefnaneyslu sem afleiðingu af því. Hann flosnaði upp úr námi og datt út úr kerfinu. Þegar hann leit- aði á náðir kerfisins aftur nokkrum árum síðar kom hann að lokuð- um dyrum, mætti sinnuleysi og skætingi. Það var ekki pláss fyr- ir hann. Afleiðingin var sú að við misstum bráðgáfaðan dreng þann 9. júní, algerlega að óþörfu. Hver sem er getur lent í svarta hundinum svokallaða sem tek- ur fleiri og fleiri líf á hverju ári. Ef velferðarkerfið bregst ekki við á fullnægjandi hátt leitar fólk í það að „lækna sig sjálft“, deyfa sárs- aukann með fíkniefnum sem nóg framboð er af. Sérstaklega hinu svokallaða læknadópi, lyfseðils- skyldum ópíóðum og öðrum mjög vandmeðförnum lyfjum. Saga Kristjáns er ekki einstök, hún er dæmigerð. Við þekkjum öll einhvern sem berst við andleg veik- indi og sorglega margir þekkja ein- hvern sem hefur tekið eigið líf. Sjálf- ur á ég þrjá vini sem glímt hafa við þunglyndi, allir hafa þeir haft sjálfs- vígshugsanir og tveir þeirra reynt að ganga alla leið. Þetta er svo við- kvæmt og það þarf svo lítið til að missa þetta verðmæta fólk. Einn slæmur niðurtúr, einar vondar frétt- ir, ein höfnun frá kerfinu og þetta er búið. Þess vegna verða þessi mál að vera hundrað prósent í lagi. Þetta er ekki dulið vandamál, allir vita að geðheilbrigðismál eru í ólagi á Íslandi og þunginn í um- ræðunni hefur verið mikill í meira en tvö ár. Stjórnvöld lofa öllu fögru og alls konar hópar, nefndir og ráð hafa verið skipuð. Árið 2016 setti Kristján Þór Júlíusson, þáver- andi heilbrigðisráðherra, af stað aðgerðaráætlun í geðheilbrigðis- málum. Sama var uppi á teningn- um ári síðar hjá Óttari Proppé, arftaka Kristjáns. Gera átti skurk í þessum málum en engu að síður gekk illa að veita auknu fjármagni í málaflokkinn. Þetta sumar, 2017, tóku fimm ungir menn í íslensku rokksenunni eigið líf og tveir menn sviptu sig lífi inni á geðdeild. Það sama virðist ætla að vera uppi á teningnum núna. Nýr heil- brigðisráðherra, Svandís Svav- arsdóttir, er tekin við og „geðheil- brigðisáætlun hrint í framkvæmd“. Kunnuglegt stef en ekkert virðist breytast. Biðlistarnir eru ennþá til staðar, bráðamóttaka geðsviðs er ennþá aðeins opin í sjö tíma á sólarhring, enn er mikill skortur á sálfræðingum víðs vegar í kerfinu og enn byrjar sumarið á því að við missum unga fólkið okkar. Ráðamenn verða að skilja að þetta er neyðarástand og það þýð- ir ekki að bregðast við þessu með orðunum einum saman. Það á enginn sem er í lífshættu að koma að lokuðum dyrum og það er vel hægt að bregðast við þessu. En það verður að vera pólitískur vilji til að það gangi eftir. Því spyr ég Svandísi Svavarsdóttur og alla ríkisstjórn Ís- lands: Stendur ykkur á sama? n „Einn slæm- ur niður- túr, einar vondar fréttir, ein höfn- un frá kerfinu og þetta er búið. Leiðari Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Spurning vikunnar Kemst Ísland upp úr riðlinum? „Ég held að þeir komist í sextán liða, þetta verður erfitt en þeir spila vel saman sem heild.“ Íris Hildur Birgisdóttir „Nei, ég held að það takist ekki. Það eru einfaldlega betri lið þarna.“ Sigurjón Arnarson „Ég held að maður verði bara að trúa því.“ Sigurborg Jónsdóttir „Auðvitað, því við erum bestir.“ Eyþór Pálmason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.