Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Síða 32
 22. júní 2018KYNNINGARBLAÐNorðausturland Íslenskt í hávegum haft Þú ert það sem þú borðar er leiðarljósið í okkar nálgun. Við leggjum áherslu á að gestirn- ir viti hvaðan maturinn kemur og á meðan okkur þykir gaman að taka á móti gestum sem eru langt að komnir þá viljum við gjarnan að maturinn ferðist eins stutta leið og hægt er,“ segir Ólöf Hallgrímsdóttir, sem rekur veitinga- og gistihúsið Vogafjós í Mý- vatnssveit. Að auki er þar hefðbund- inn búskapur, bæði eru kýr og kindur á bænum. Vogafjós tekur um 75 matargesti í sæti og um 15 í viðbót í huggulegu biðplássi þar sem hægt er að fá sér drykk á meðan beðið er eftir borði. Meðal veitinga eru reyktur silung- ur, hangikjöt, heimagerðir ostar og kjöt frá Vogabúinu sjálfu. Einnig er heimabakað brauð og kökur í miklu úrvali, meðal annars hverabrauð eða „Geysir bread“ eins og það er kynnt fyrir erlendum gestum. „Við erum aðilar að samtökunum Beint frá býli og tökum einnig þátt í verkefninu „Þjóðlegir réttir á okkar veg“ sem Matarauður Íslands stend- ur fyrir. Út úr þeirri hugmyndavinnu kom meðal annars rétturinn „Creme Brulé brauðsúpa“ sem verður fljót- lega á boðstólum í Vogafjósi. Hráefni í hana er hverabrauð sem við bök- um hérna í „neðanjarðarbakaríinu“ okkar, eins og við köllum það,“ segir Ólöf og undirstrikar að í Vogafjósi sé íslenskt í hávegum haft. Við reyn- um eftir því sem hægt er að bjóða upp á íslenskar, svæðisbundnar og heimagerðar afurðir. Við leggjum t.d. mikið á okkur til að verða okkur úti um ferskt, íslenskt grænmeti yfir vetrartí- mann. Yfir sumartímann er hægt um vik að fá úrvalsgott salat, tómata og gúrkur frá næsta grænmetisbónda í nágrenninu en yfir vetrartímann, þegar minna úrval er hér fyrir norð- an, þá sækjum við það til sunnlensku gróðurstöðvanna.“ Upplifun við Mývatn „Þetta er ekki bara veitingastaður sem býður upp á góðan mat úr úr- valshráefni heldur viljum við líka veita gestum okkar upplifun,“ segir Ólöf og vísar til þess að Vogafjósið er fjós, eins og nafnið gefur til kynna; hinum megin við gluggann í veitingasalnum er eiginlegt fjós þar sem kýr eru á bás og kálfar til að klappa. Hægt er að fá að fylgjast með mjöltum og smakka volga kúamjólk á mjaltatíma. „Við búum til osta úr okkar mjólk sem við notum með nánast öllum réttum á matseðli,“ segir Ólöf. Frá veitingasalnum er einnig frá- bært útsýni yfir Mývatn og suður yfir fjöllin. Gisting við Mývatn er mikil upp- lifun. Gist er í tveimur bjálkahúsum og einu timburhúsi sem staðsett eru í hrauninu skammt frá veitinga- staðnum. Herbergin eru rúmgóð og hægt að velja á milli 2ja, 3ja og 4ja manna herbergja sem öll eru með sérbaðherbergjum. Morgunverður er innifalinn og framreiddur á veitinga- staðnum í Vogafjósi. Herbergin eru fallega innréttuð og höfuðmarkmiðið er að gestum líði vel og geti slappað af eftir langan dag. „Við reynum að vanda til verka í því sem við tökum okkur fyrir hendur og teljum að það sé hluti af því að vera meðlimir í VAKANUM, sem er umhverfis- og gæða- kerfi ferðaþjónustunnar á Íslandi,“ segir Ólöf að lokum. Nánari upplýs- ingar um gistingu veitir gestamóttakan í Vogafjósi í síma 464 3800 eða í gegnum netfangið vogafjos@ vogafjos.is. Sjá nánar á vefsíð- unni vogafjos.is og Facebook-síðunni Vogafjós. VOGAFJÓS VIÐ MÝVATN:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.