Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 42
22. júní 2018KYNNINGARBLAÐSumarhlaup
DYRFJALLAHLAUP:
Heillandi utanvegahlaup í
náttúrufegurð Borgarfjarðar eystri
Dyrfjallahlaup er utanvega-hlaup um Dyrfjöll og Stórurð með endamark á Borgarfirði
eystri. Fer það fram laugardaginn
21. júlí og hefst kl. 11. Ungmenna-
félag Borgarfjarðar stendur fyrir
hlaupinu.
Afar mikil náttúrufegurð er á
svæðinu sem er hlaupurum mikil
upplifun. Hlaupið er 23 km langt
og hefst við Hólaland í innsveit
Borgarfjarðar. Þaðan er til að byrja
með hlaupið upp eftir gömlum
raflínuslóða sem liggur að Sanda-
skörðum. Þegar komið er langleiðina
upp í Sandaskörð er beygt til hægri
á merkta gönguleið sem liggur
að Eiríksdalsvarpi. Frá varpinu er
hlaupið um Tröllabotna, yfir Lamba-
múla, áleiðis að Urðardal þar sem
Stórurð liggur undir dyrum Dyrfjalla.
Úr Stórurð er hlaupið upp bratta
brekku í átt að Mjóadalsvarpi. Á
krossgötum ofan Stórurðar er beygt
til hægri og hlaupið eftir grófri
slóð undir hömrum Dyrfjalla, ofan
Njarðvíkur og Dyrfjalladals. Leiðin
liggur að Grjótdalsvarpi og þaðan er
hlaupið að mestu á grónu landi að
Brandsbalarétt sem er rétt fyrir inn-
an þorpið Bakkagerði í Borgarfirði.
Síðustu 700 metrana er hlaupið á
malbiki að fótboltavelli UMFB þar
sem hlaupið endar.
Drykkjarstöðvar eru á þremur
stöðum á leiðinni, eftir 6 km, 12 km
og 18 km, þar sem boðið er upp á
vatn og orkudrykki.
Allir þátttakendur frá þátttöku-
pening er þeir koma í mark og verð-
laun verða veit fyrir þrjú efstu sætin
í karla- og kvennaflokki.
Sem fyrr segir er það Ungmenna-
félag Borgarfjarðar sem heldur
Dyrfjallahlaupið en hlaupið fór
fyrst fram í fyrra, á 100 ára afmæli
félagins. Afar vel tókst til og stefnt
er að því að Dyrafjallahlaupið verði
árlegur viðburður hér eftir enda um
að ræða mjög spennandi utanvega-
hlaup.
Nánari upplýsingar eru á hlaup.is
og ingafanney.com/dyrfjallahlaup.